- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
14. október, 2007 at 21:49 #46073
Páll Sveinsson
ParticipantÞað var skálað í Kampavíni með stæl á Heklu á laugardaginn þegar hátindahöfðinginn kláraði síðasta tindinn. Veðrið var virkilega skemtilegt en það var varla stætt í skafrenning og frosti. Það voru ca. 60-70 manns sem samglöddust Olla á tindinum og enn fleiri þegar komið var niður.
Enn og aftur til hamingju Olli.
kv.
Palli14. október, 2007 at 22:37 #51739Smári
ParticipantTil hamingju gamli
þú náðir þessu áður en þú komst á sextugsaldurinn…
Hvað á svo að gera áður en þú verður sextugur?
kv. Smári
14. október, 2007 at 23:13 #51740Stefán Örn
ParticipantTil hamingju með að hafa náð markmiðinu og afmælið!!
Steppo
15. október, 2007 at 00:05 #51741Sissi
ModeratorTil hamingju með þetta glæsilega mission og afmælið. Þú ert klikkaður og gerður úr einhverju allt öðru en við hinir (kevlar, karboni og kjarnorku – k-in þrjú myndi Umferðar Einar eflaust segja)
Congrats, ótrúleg harka.
Sissi
15. október, 2007 at 01:40 #51742Anonymous
InactiveTakk fyrir fögur orð!
Ég var nú næstum klökkur af því að sjá hversu margi mættu þarna á Hekluna og sumir fengu eldskírn sína í skítviðri sem við allir þekkjum til fjalla. Það er alltaf gaman að setja sér háleit marmið og ennþá meira gaman þegar maður nær þeim. Menn spyrja hvað er næst??? Er ekki bara bíða eftir ísnum og berja svolítið á hinum landsins forna fjanda eða hvað???? Ég er ekki alveg dauður enn. Þetta er allt spurning um hugarfar og smá heppni með gen ásamt kannski smá þrjósku. Umfram allt það sem maður má ekki gleyma: að hafa svolítið gaman af þessu og skapa sér minningar sem maður getur yljað sér við þegar maður er kominn í ruggustólinn eftir 40 ár.
Olli15. október, 2007 at 06:57 #517430311783479
MeðlimurTil hamingju Olli, thetta er magnad afrek!
Bestu kvedur
Halli15. október, 2007 at 07:51 #51744Ólafur
ParticipantTil allrar hamingju Olli! Þú ert þrautseigur andskoti, því verður ekki neitað.
Hefði verið gaman að fara með í einhverja af ferðunum en maður er víst fjarri góðu gamni. Ég lofa hinsvegar að mæta þegar þú tekur 100 hæstu í Skandinavíu.
-órh
15. október, 2007 at 10:38 #517450309673729
ParticipantMagnaður! Til hamingju Olli.
Eðlilegt næsta skref væri bók með leiðarvísi á 100 hæstu tinda landsins og góðum ferðasögum í bland.
kveðja
Helgi Borg15. október, 2007 at 11:41 #51746Robbi
ParticipantTil hamingju !
robbi15. október, 2007 at 12:39 #51747AB
ParticipantVel af sér vikið. Einstakt afrek. Nú geturðu slakað á í viku eða svo þar til þú hleypur af stað í næsta verkefni.
Kveðja,
AB
15. október, 2007 at 17:24 #51748Ágúst Þór Gunnlaugsson
ParticipantTil hamingju Olli með að hafa klárað þetta risaverkefni.
Kveðja. Ágúst Þór
15. október, 2007 at 17:56 #517492402833609
MeðlimurInnilegar hamingjuóskir Olli með þetta magnaða afrek
Kv. Unnur Bryndís
15. október, 2007 at 21:32 #517500508693779
MeðlimurVið sem erum uppaldir í sveit vitum að það er alsiða að verðlaunagripir séu eftirsóttir til undaneldis. Margur bóndinn hefur rétt úr kútnum við að eiga slíka gripi enda getur „tollurinn“ hlaupið á tugum þúsunda.
Olli er búinn að skipa sér sess sem veglegur kjörgripur og næsta verkefni (eftir hóflega hvíld) hlýtur að vera að opna banka þar sem boðið verður upp á afreksmannaundaneldi. Innifalið í verðinu getur verið blómabúnt frá Dísu….
Til hamingju með AFREKIÐ!
kv.lambi
15. október, 2007 at 22:36 #517510111823999
Meðlimurtil hamingju Olli með þetta einstæða afrek!
kv Helga M
16. október, 2007 at 06:58 #517522003793739
MeðlimurTil hamingju með þetta.
Þetta á eftir að vera góð saga til að segja komandi kynslóðum í ellinni.
Kv.
Halli16. október, 2007 at 11:34 #517531704704009
MeðlimurÞetta var nú FRÁBÆRT og til lukku. Vænti þess að sjá rit útgefið, ekki minna en sjöhundruð síður. Sendi einnig hamingjuóskir með áratugina fimm. Ö.
17. október, 2007 at 06:44 #517542806763069
MeðlimurFrábær framkvæmd á frábæri hugmynd sem á örugglega eftir að verða mörgum hvattning til dáða.
Tel samt líklegt að þetta „met“ eigi eftir að standa jafnvel lengur en hitt metið hans Olla.
Enda ekki fyrir hvern sem er að fylgja í þessi fótspor.
Til hamingju Olli !
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.