Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Nýr leiðarvísir fyrir Stardal
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
23. apríl, 2007 at 21:40 #46807
Siggi Tommi
ParticipantJæja, eftir langa meðgöngu hef ég nú lokið við að endurgera klifurleiðarvísinn fyrir Stardal.
Sjá https://www.isalp.is/art.php?f=86
(eða beint á http://www.rds.is/siggi/klifur/topo/index.htm)
Með von um að almenn ánægja sé með þetta framtak og að djásnið eigi eftir að nýtast mönnum vel í dótaklifrinu í sumar…
23. apríl, 2007 at 22:58 #513860808794749
MeðlimurMagnað stöff og frábært verk unnið.
Til hamingju með þetta!24. apríl, 2007 at 08:38 #51387Páll Sveinsson
ParticipantGlæsilegt.
Ánægður með framtakið.Sérstaklega ánægður með að þú skulir hafa slept því sem fór hvað mest í taugarnar á mér í gamla ÍSALP vísinum.
Gleymdist þó í einni leið. Hvíta deplinum;-)
kv.
Palli24. apríl, 2007 at 08:54 #51388Ólafur
ParticipantKúl!
Sprungan milli 7-up og Flagsins hefur líka verið klifruð og ég held að hún hafi verið gráðuð 5.9. Ég klifraði hana amk einhverntíma en veit fyrir víst að ég var ekki fyrstur. Minnir að það standi eitthvað um þetta í einhverjum gömlum fréttapistli.
Hvað var það sem fór svona í taugarnar á þér í gamla leiðarvísinum Palli?
ÓliRaggi
24. apríl, 2007 at 09:05 #513890311783479
MeðlimurGlæsilegt Siggi!
Halli
24. apríl, 2007 at 09:14 #513900703784699
Meðlimurflott framtak….búinn að prenta út og vonandi fá vinirnir að fljóta með í klifur í sumar.
kvHimmi
24. apríl, 2007 at 09:16 #51391AB
ParticipantVel að verki staðið.
Glæsó.
AB
24. apríl, 2007 at 10:01 #51392Siggi Tommi
ParticipantMig grunar að það hafi verið „leiðin er tortryggð“ sem hafi farið fyrir brjóstið á PS.
Hann vill meina að með nútíma stærðum af vinum og svoleiðis séu margar áður tortryggðar leiðir það ekki lengur.
Það má vel vera en þó líklega ekki algilt, því sumar sprungur uppfrá eru sennilega jafn ótryggjanlegar nú og þá.
Ég fór þó að ráðum PS og hreinsaði þetta út víðast hvar.Fleygurinn er ennþá í Hvíta deplinum ef ég man rétt (það er alla vega fleygur í svarta veggnum).
Palli ætti kannski bara að hamra járnið úr aftur og fara leiðina „klín“ til að sanna mál sitt…24. apríl, 2007 at 10:14 #513932806763069
MeðlimurMjøg kul, sumir eiga skilid stort klapp a bakid!
24. apríl, 2007 at 10:20 #513940309673729
ParticipantGlæsilegt !
kveðja
Helgi Borg24. apríl, 2007 at 10:25 #51395Smári
ParticipantFrábært framtak. Búinn að prenta hann út og til í slaginn…
kv. Smári
24. apríl, 2007 at 13:03 #51396Ólafur
ParticipantFleygurinn er ennþá í Hvíta deplinum – nema þá að Andri sé búinn að taka hann og setja í klifurminjasafnið sitt ásamt hnetunni sem var í þakinu á Óperu.
24. apríl, 2007 at 14:12 #513972704735479
Meðlimurmjög flott!
24. apríl, 2007 at 14:20 #51398AB
ParticipantGóður Óli:)
Nei, ég hef ekki fjarlægt fleiri ryðgaðar tryggingar úr Stardal.
Hnetan úr Óperu er enn heima, ásamt gamalli skrúfu sem við Steppo fundum í NV-vegg Skessuhorns. Já, kannski að þetta sé vísir að klifurminjasafni, Óli þú mátt vera aðstoðarsafnvörður!
Það væri vel þegið ef einhver nennti að sækja vininn sem Stefán Hús gleymdi í Tjaldinu í Eilífsdal, sá gripur myndi sóma sér vel í safninu. Ég sé fyrir mér enskan texta við gripinn: ,,This spring loaded camming device has been to the top of Nanga Parbat and also helped Steve House to make an astonishing ascent of the much coveted route „The Tent“ in Eilífdalur, Iceland.
Vinsamlega snertið ekki sýningargripina.
Ég fjarlægði hnetuna úr Óperu einfaldlega vegna þess að hún var ónýt og ég þurfti að nota plássið fyrir tryggingu. Ég frétti svo síðar að einhverjir kappar hefðu fengið fortíðarljóma-kast og fundist ég vera að skemma eitthvað. Æ æ.
AB
24. apríl, 2007 at 14:41 #513992005774349
MeðlimurMjög fínt sko.
HRG.
24. apríl, 2007 at 15:40 #514002303842159
MeðlimurKúl!
kv Haukur
24. apríl, 2007 at 19:01 #514012003793739
MeðlimurGlæsilegt framtak.
Kv.
Halli24. apríl, 2007 at 19:11 #514022506663659
ParticipantGlæsilegt framtak hjá þér.
Takk fyrir þetta.kv,
GSSps.
Tengt opnun klifurmynjasafnsins má svo hittast í „Dalnum“ og rifja upp afhverju þær voru svona „tortryggðar“ með hexur og kubbahnetur einar að vopni.24. apríl, 2007 at 22:57 #514030703784699
MeðlimurStiftamt…..var það þarna í topo-num…..skoðaði það nú ekki sérstaklega…..bara af því að það er nú forsíðumynd dagsins!
Gimp
25. apríl, 2007 at 08:27 #51404Páll Sveinsson
ParticipantFleiri en einn hefur farið Hvíta depilin án þess að klippa í riðhrúguna. Hvort það var til að sanna að fleigar og boltar eru óþarfir eða þeir hafi ekki treist honum veit ég ekki.
Fékk nú einu sinni BB í fangið í þeirri leið og þá hélt fleigurinn.
Þegar ég las í gegnum þennan vísi þá fékk ég fiðring í magan og búinn að heita mér því að skreppa í dalin og rifja upp gamla takta.
kv.
Palli27. apríl, 2007 at 09:40 #514051908803629
ParticipantÞetta er glæsilegt rit, frábært framtak. Með þennan leiðarvísir að vopni held ég að ég geti loks látið verða af því að spreyta mig í dótaklifrinu… hneturnar hafa allavega gert lítið gagn heima…
Takk fyrir þetta Siggi.
27. apríl, 2007 at 13:21 #51406Siggi Tommi
ParticipantMinni á að Gerðubergs leiðarvísirinn er þarna á vefsíðunni líka.
Það er einnig frábært klifursvæði, sérstaklega fyrir þá sem eru komnir upp úr rásholunum í dótaklifrinu.
Ekki sérlega byrjendavænt svæði en frábært öngvu að síður. -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.