Hæ
Við Björgvin, Gulli og Viðar sýndum kreppunni löngutöng og eyddum deginum í Múlafjalli. Ísaðstæður eru einkar góðar, þó svo að það breytist nú líklega á næstu dögum. Margar leiðir eru í fyrirtaks aðstæðum, þunnar en samt vel tryggjanlegar.
Klifruðum tvo af „þríburunum“, Fjúkanda, 3. gráðu afbrigði af ónefndu ísþili og tvær leiðir við uppgöngugilið.
Ekki spillti veðrið fyrir.
Allez!
Skabbi