- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
21. september, 2009 at 14:55 #47311JokullMeðlimur
Í ljósi þess að aðstæður til utanhúss iðkunnar flestra okkar áhugamála eru í hinu árlega uppnámi sem kallað er haust á Íslandi datt mér í hug að sýna ykkur þessar frábæru myndir.
Þarna er að finna myndir sem sanna það enn og aftur að oft leitum við langt fyrir skammt og að hér á okkar farsældarfróni er ýmislegt hægt að gera. Allar þessar myndir koma frá atvinnumönnum í myndabransanum, en fyrir utan hirðljósmyndara ÍSALP Guðmund Tómasson eru þarna allt útlendingar á ferð og sannast þar hið fornkveðna að glöggt sé gests augað.
Njótið velJökull
21. september, 2009 at 17:18 #54497BjörkParticipantvá takk fyrir þetta, ótrúlega flottar myndir.
Alveg rétt margt hægt að gera á Íslandi og hægt að taka sér gott vetrarfrí og skíða og klifra fullt.
Enda eru Íslendingar alveg eitthvað að fara í ferðir veturna og vorin til að skíða og klifra á Íslandi. Frábært alveg.
21. september, 2009 at 22:21 #545001908803629ParticipantKærar þakkir fyrir þetta – brakandi flottar myndir!
23. september, 2009 at 13:43 #545050703784699MeðlimurJá það er óþarfi að ferðast hálfan hnöttinn til að fá flott klifur enda af nógu er að taka heimafyrir. En ætli það sé ekki einmitt aðstæðurnar títtnefndu sem draga menn á fjarlægari slóðir, þeas veðrið.
Ef hægt væri að klípa í kletta utandyra í 12 mánuði á ári að þá væri ef til vill Spánn ekki svo vinsæll áfangastaður meðal íslenskra klifrara. Ekkert gaman að handleika plastið megnið af árinu. Því miður að þá vantar einnig uppá að geta fyllt uppí þessa ófáu rigningardaga með smá slúttandi bergi ( http://picasaweb.google.com/himmi78/Mars2009#5319591114990089842 )
Svo er það haustið sem æsir upp mannskapinn með sínum frostaköflum svona rétt áður en það rignir aftur. Snjór sem kemur og fer jafnóðum.
En annars þá er Ísland bezt í heimi og takk fyrir glimrandi myndir!!!
kv.Himmi
1. október, 2009 at 22:26 #54537JokullMeðlimurFyrir þá sem eru orðnir spenntir að þá er gott að vita að á Dalvík voru 15cm jafnfallnir í morgun og ísleiðir í hæð eru barasta farnar að sýna sig… Smellti inn fleiri skemmtilegum myndum sem flestir ættu að hafa gaman af. Í þett sinn er það steinolíu skíðamennska af dýrustu sort eða úrtak úr heli ski vertíðinni á Tröllaskaganum 2009.
Njótið vel
Jökull
12. október, 2009 at 10:49 #54553Anna GudbjortMeðlimurNei það er ekki verra að byrja mánudaginn með smá myndaglápi héðan.
Hvernig eru annars snjóalög víðsvegar um landið? Einhverstaðar hægt að byrja að safna rispum undir skíðin?
13. október, 2009 at 12:06 #545572802693959MeðlimurGlæsilegar myndir Jökull. Fylgist spenntur með snjóalögum og byrja strax í kvöld að breikka skíðin fyrir hið norðlenska púður.
Góðar kveðjur í kotið.
Jón Gauti -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.