Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Loxins
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
9. júní, 2004 at 12:49 #46451SissiModerator
Gaman að hliðarrennslismenn fái 5 mínútur frægðar á Ísalp, enda hefur oft orðið vart við ákveðinn áframrennslisfasisma innan samtakanna. Fyrir hönd hliðarrennslismanna fagna ég því mikið. Vei!
Þetta er mikilvægt skref í áttina að því að brettamenn séu viðurkenndir sem fólk. Eins og segir í texta með Róberti:
Until the philosophy
which hold one style superior
And another
Inferior
Is finally
And permanently
Discredited
And abandoned –
Everywhere is warÞví má svo bæta við að þetta er ótrúlega glæsilegur einstaklingur þarna á ferð
9. júní, 2004 at 13:03 #487600311783479MeðlimurÞað er alveg rétt að það hefur loðað við klúbbinn ákveðinn rétttrúnaður varðandi rennslið, og þá fólk sem rennir sér með öxl á undan haus verið sakað um villutrú ;o)
Það væri traust fyrir klúbbinn að fá brettamenn sem renna sér utan brauta sem félaga, það myndi auka breiddina í klúbbnum. Mig minnir þó að það hafi verið gerðar heiðarlegar tilraunir til að vekja athygli á okkur og hvað við gætum haft fram að færa fyrri þennan hóp. Kannski tími að minnar betur á okkur.
-hg
10. júní, 2004 at 09:19 #48761Siggi TommiParticipantBretti smetti.
Senda þetta lið sem rennir sér á þessum helvítis þorrabökkum bara aftur til miðalda… Ekki einu sinni Gunnar á Hlíðarenda hefði látið sér detta í hug brúka slík satans verkfæri.
Minni á sérferð þyrlu Gæslunnar á jökulinn á sunnudaginn að sækja gaur eftir vænasta pallaflug sem að sjálfsögðu endaði á bakinu. Ekki minnist ég þess að Þelamerkursveiflari hafi farið í slíka flugferð nokkurn tímann.
Enough said!11. júní, 2004 at 10:41 #48762GoliMeðlimurIss þetta er allt hommalegt. Mónóskíði er eina alvöru matsjó græjan!
11. júní, 2004 at 11:30 #487630311783479MeðlimurAuðvitað eru mónóskíðin það eina sem vit er í !!!
13. júní, 2004 at 23:05 #487640912812959MeðlimurÉg held að STÞ sé eitthvað tognaður í heilanum að láta þetta flakka hér á vefnum, en nóg um það. Mér finnst ekki svalt að koma með eitthvað comment um menn sem slasast við að stunda hobbýið sitt sama hvort um er að ræða brettafólk eða þelamerkursveiflara. Slæmur mórall… með von um slíkt komi ekki aftur fyrir.
hemmisig
16. júní, 2004 at 09:01 #48765Siggi TommiParticipantÞetta var nú ekki illa meint og vona að ég hafi ekki sært neinn með þessum ummælum. Hugsunin var ekki illkvittnisleg og bara góðlátlegt skot í þessu án mikillar spekuleringar um það sem HS nefnir.
Biðst afsökunar ef þetta var yfir strikið!
PS Hef sjálfur slasað mig illa til fjalla svo ég þekki þetta af eigin raun…
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.