Lóndrangar

Home Umræður Umræður Klettaklifur Lóndrangar

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46888
    0206862359
    Meðlimur

    hefur einhver hérna klifrað Lóndranga á Snæfellsnesi? Eða er þar bara lausir klettar og fuglaskítur?

    #47968
    Páll Sveinsson
    Participant

    Allir sannir fjallamenn hafa skrikað fótur í fuglaskít á flótta undan fílsælu.
    Þú finnur ekki betri stað en lóndranga til að æfa þá fymi. Þessi árstími er sérlega hentugur til þess.
    Þetta er eitthvað sem allir verða að prófa.

    Palli

    #47969
    Ólafur
    Participant

    Það er fínasta blanda af klettaklifri og ósviknu íslensku drulluspóli að fara á Lóndranga. Standard leiðin fer uppá stóra stallinn frá austanverðu. Síðan er fylgt augljósri gróf/sprungu uppá topp þaðan. Mér skilst að „suðurfésið“ á dranginum hafi einnig verið klifið og er það sennilega nokkuð strembnara.

    #47970
    1402734069
    Meðlimur

    Leiðbeinendur og námsliðar á námskeiðinu Fjallamennska III fóru upp nýja leið á Dranginum að vestanverðu. Greinilegur stígur er meðfram Dranganum að sunnanverðu og leiðin nokkuð greinileg.

    Leiðin var tekin í 3 spönnum. Arnar nemönd leiddi fyrstu spönnina upp í skarð vestast í Dranganum. Skemmtilegur stans með gott útsýni yfir brimið.
    Elvar Örn tók við og leiddi aðra spönnina. Slingum var brugðið um nibbur og grjót sem rokið sá til þess að losa um leið og Elvar náði stansinum og slaknaði á línunni. Skemmtileg og opin leið, sér í lagi þegar við þurftum að klofast yfir laust grjót sem Elvari tókst ekki að losa með Black Diamond hamrinum sínum. Í öðrum stansinum fundum við gamla fleyga og karabínur, trúlega eftir eggjatýslumenn en gaman væri að vita hvort um væri að ræða gamlan klifurstans?
    Kjarri, sem er greinilega grennri en lýtur út fyrir, náði einhvern veginn að koma sér fyrir í sprungunni í byrjun 3 spannar. Kannski var það bumbunni að þakka að honum tókst að komast þarna upp? En ofar fór hann og sprungan víkkaði.

    Virkilega skemmtileg leið! Skemmtilegt útsýni og fjölbreytt. Nibbur og brjót fyrir sling. Aðeins minna af tryggingum í þriðju spönninni en auðklifrað … svona þegar handtökin molna ekki.

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.