Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Leiðarvisir af Munkaþvera
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
14. maí, 2003 at 09:35 #462582806763069Meðlimur
Eg rak augun i frekar flottan og einfaldan leiðavisir af Munkaþvera her i siðum felaga, nanar tiltekið hja Joni Hauk.
Voru ekki einhverjir að spyrja eitthvað um Munkaþvera? Jæja her hafið þið það!
Svona leiðarvisir gæti verið fyrirmyndin af leiðarvisum Isalp a netinu, einfalt og hægt að prennta ut a A4. Svona ef menn vilja fara þa leið.
Massa flott.
kv.Ivar
14. maí, 2003 at 11:14 #480100804743699MeðlimurFrábært framtak!!!
Gaman væri að sjá meira af þessu og safna þessu saman á síðunni!!
kv,
BÖG14. maí, 2003 at 12:48 #48011Jón HaukurParticipantJamm þetta er nú reyndar ennþá á vinnuformi, en engu að síður skárra en ekki neitt. Náði hins vegar ekki að setja myndina inn á síðuna í almennilegri upplausn, en eins og ég sagði í pistlinum þá er ekkert mál að senda myndina á þá sem hafa áhuga. Hugmyndin var að prófa þetta form fyrir leiðarvísi. Einn galli sem ég er búinn að sjá nú þegar er að menn þurfa að hafa myndina í góðri upplausn og vera með sæmilega góða prentara til að þetta skili sér. Stefnan er síðan að birta þetta í ársritinu með tíð og tíma.
jh
14. maí, 2003 at 13:25 #48012ÓlafurParticipantÞetta er hið besta mál. Svona á að gera þetta, einfalt og gott.
Er ekki einhver þarna úti sem lumar á góðri mynd af Pöstinni? Þá gætu þeir sem til þekkja lagt í púkk, sent inn leiðirnar, og við verðum komin með leiðarvísi þaðan á mettíma.
14. maí, 2003 at 14:20 #480130309673729ParticipantTek undir þetta, gott framtak! Ég er sammála þeirri framtíðarstefnu sem kemur fram í ársritinu að hafa leiðarvísa Ísalp á vefnum á opnum síðum, fyrir alla, alltaf. Eru ísalparar almennt sammála þessu?
Ég get útbúið leiðarvísa-síðu undir „Svæði og leiðir“ í efnisyfirlitinu á síðunni, þar sem fólk getur náð í leiðarvísa í fullri upplausn.
Það þarf helst að optimera ljósmyndir í leiðarvísum fyrir stærð og skýrleika í prentun. Málið er að það eru bandbreiddartakmörk á vefnum, og það kostar fullt af spesíum að fara yfir þau. Að auki eru prentarar misjafnir, eins og JHS bendir á, og því betra að ýkja kontrastinn þó það komi aðeins niðrá myndrænum gæðum. Þannig verða megin atriðin auðséðri, jafnvel á lélegum prenturum — ég get tekið að mér að fitla við myndirnar til að gera þær léttar og auðprentanlegri. Til að fólk eigi auðvelt með að höndla með leiðarvísana, er hentugast að troða þeim í pdf-skjöl.
Mér finnst reyndar persónlega teiknaðir kletta-leiðarvísar miklu skemmtilegri. Með því að troða þeim í vektor baseröð pdf-skjöl, er þeir líka léttir og auðprentanlegir á næstum öllum prenturum. — en það er talsverð vinna að gera þá, og ljósmynda-leiðarvísar eru miklu betri en engir.
Helgi Borg
vefstjórips.
Ég skal mynda Pöstina í bak og fyrir næst þegar ég á leið þar hjá, ef enginn verður fyrri til.14. maí, 2003 at 14:56 #48014Jón HaukurParticipantEr langt á undan ykkur, er með mynd af pöstinni í sarpi mínum… En það væri mjög gott að fá svæði fyrir svona vinnu á netinu, þannig að hægt sé að birta það sem verið er að vinna í, þá eru allar leiðréttingar og viðbætur auðveldari í aðgengi.
jh
14. maí, 2003 at 17:38 #480150309673729ParticipantDrög að þeim fyrsta komin inn.
14. maí, 2003 at 18:01 #480160804743699MeðlimurÞetta er frábært, eru ekki einhverjir með fleiri myndir? Hvað með t.d. Leirvogsgilið? Lítið nýtt og óþekkt…
Nákvæmt kort af Boulderi í Eyjafirðinum og Steinafjalli.15. maí, 2003 at 09:14 #48017ÓlafurParticipantAnnað svæði sem vantar stórlega leiðarvísi af er Gerðuberg.
Spurning um að mynda hana líka í bak og fyrir næst þegar maður á leið uppá Snæfellsnes.
http://home.wanadoo.nl/snowy-owl/images/west/html/ijs034.html
16. maí, 2003 at 10:57 #480181402734069MeðlimurGrjótglímuáhugamönnum í Eyjafirði hefur verið sett fyrir það verkefni að mynda í bak og fyrir helstu staði okkar!
Einn sá frægasti í dag, Grásteinn, er enn á bannlista. Kristín og Helga hafa gengið ansi langt í að fá leyfi til klifurs en íslenska bóndakonan hélt nú ekki uppi búi, bónda og börnum á veiku baki. Kristín gefst þó ekki upp!!
Einnig hafa þær fengið leyfi víðar og allir bændur (bara konurnar sem eru með einhver uppsteit) tekið vel í erindi þeirra. (meira að segja eiginmaður fyrrnefndrar bóndakonu).
Fylgist því með!
16. maí, 2003 at 12:11 #48019KarlParticipantBöbbi, -ert þú ekki tilvalinn til að sverma upp jái hjá settlegum búandikerlingum? -fyrst dömunum verður aðallega ágengt með karlana….
Kalli
16. maí, 2003 at 15:37 #480201402734069MeðlimurÞað er nú svo að flestar, ef ekki allar, konur hríðfalla fyrir rauða hárinu!!
Á síðustu árum hef ég þó tekið upp á því að fá mér strípur í hárið, til að draga athyglina frá kollvikunum. það virkar vel eins og sjá mátti á Ingibjörgu Sólrúnu!Trúlegast hef ég verið með blandaðan háralit síðasta haust því mér varð ekkert ágengt með kellu. Þetta samtal er auk þess orðið frægt í sveitinni og ég víst æði dónalegur. Ég er nú hræddur um að hún hefði nú frekar haldið kjafti ef munnurinn á mér hefði opnast almennilega og blótsyrðin a la Jónki farið að streyma út!!
Böbbi
Soon to be red again! -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.