Það fór væntanlega ekki framhjá mörgum að Örn félagi okkar Magga og Jóns Heiðars fór í þyrluferð frá Heljareggjum eftir ágætis flug niður af kletti…
Nú stefnir í að kallinn nái ekki að jafna sig fyrir alpaferð okkar félaga, upp á Matterhorn og Monte Rosa Massif (Spaghetti Traverse) og því erum við einum manni færri… sem er verra þegar klifurdúó er gjarnan skilvirkara en tríóið.
Því spyrjum við – er einhver fantagóður fjallamaður með bullandi þörf fyrir fjallafjör spenntur fyrir að bætast í hópinn?
Við erum búnir að skipuleggja ferðina í höngla og því auðvelt að detta inn í prógrammið. Þá erum við óttalega frábærir og lofum taumlausu stuði í tíu daga ferð sem hefst 17. júlí með flugi til svitzlands.
Allir áhugasamir taki miða og fari í röð og sendið á mig línu – agustkr@gmail.com
[img]http://www.summitpost.org/images/medium/361237.JPG[/img]