Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Jólaklifur
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
14. desember, 2011 at 15:40 #47618Ágúst Þór GunnlaugssonParticipant
Jæja krakkar, jólaklifur á laugardaginn! Er komin einhver staðsetning? Múlafjall er spikfeitt og Brynjudalur líka. Stutt að keyra og svona.
Hvað segir restin?
[attachment=359]PC131079_b.jpg[/attachment]
Gísli Sím í Rísanda í gærkv. Ági
14. desember, 2011 at 16:30 #57186Gummi StParticipantHljómar bæði vel, eigum við ekki að hittast bara á Select kl. 9 og fara þaðan í Brynjudal eða Múlafjall?
-GFJ
14. desember, 2011 at 23:21 #571871908803629ParticipantVeðurspáin lofar góðu og jafnvel keppniskuldi.
Allir sem ætla að mæta endilega láta vita af sér hér.
I’ll be there
14. desember, 2011 at 23:50 #571881207862969MeðlimurÉg mæti.
14. desember, 2011 at 23:58 #57189Jon SmariParticipantÉg mæti ef ég finn mér vængmann!
15. desember, 2011 at 13:26 #57191SkabbiParticipantHæ
Er ekki þægilegast að vera búin að ákveða hvert skal halda fyrir laugardagsmorgun? Aðstæður í Múlafjalli og Brynjudal eiga ekki eftir að breytast mikið fram að helgi. Ég sé ekki að það geri ákvarðanatöku þægilegri að vera með 10-20 manns á Select í morgunsárið að reyna að koma sér saman um dagskrá dagsins. Auk þess getur fólk þá látið vita af ferðum sínum fyrirfram, eða mætt seinna ef svo ber undir.
Skabbi
15. desember, 2011 at 15:18 #57195Arnar JónssonParticipantSetti smá könnun upp fyrir þetta hérna vinstrameginn. Veljið þar hvorn staðinn þið viljið
Kv.
Arnar15. desember, 2011 at 18:08 #571962109803509MeðlimurJón Smári Jónsson wrote:Ég mæti ef ég finn mér vængmann!Jólaklifrið hefur yfirleitt verið hugsað sem kjörinn vettvangur fyrir nýliða í sportinu til að láta sjá sig. Held að menn og konur geti verið ófeimin við að mæta „single“.
Tek undir með Skabba, væri sniðugt að ákveða staðsetningu fyrirfram.
Reyndi að kjósa en virkaði ekki.kv. Berglind
15. desember, 2011 at 21:17 #57201Jon SmariParticipantTakk fyrir þetta! Ég er ekki viss að ég komist á laugardaginn þó glaður vildi. Vonandi verður enn frost í kortunum eftir helgi.
15. desember, 2011 at 23:40 #572032809774899MeðlimurÉg mæti í múlann, Eyjafjöllin voru flott í dag.
16. desember, 2011 at 09:31 #57207Arni StefanKeymasterReikna með að mæta en fer kannski í fyrra fallinu.
16. desember, 2011 at 19:03 #57220BjörkParticipantég ætla að mæta.
16. desember, 2011 at 19:47 #57221gudomagMeðlimurég +1 mætum
16. desember, 2011 at 20:16 #572223103833689MeðlimurÉg kem.
16. desember, 2011 at 20:20 #572231908803629ParticipantSvo það hafi ekki farið framhjá neinum þá varð Múlafjall fyrir valinu í netkönnuninni og því verður stefnan sett þangað. Þá er stefnt austur á jökla á skíðum.
Ég virðist ætla að missa af þessu í ár þar sem veikindapest virðist hafa herjað á alla fjölskyldumeðlimina á heimilinu…
Skemmtið ykkur vel og allir skíða- brettamenn að mæta á Select klukkan 7:30 og ísklifrarar klukkan 9:00
16. desember, 2011 at 22:46 #572240105774039MeðlimurMæti beint í Múlann.
17. desember, 2011 at 01:12 #57227Arnar HalldórssonModeratorÉg, Biggi Blö og Ottó Ingi mætum á Select kl. 9
17. desember, 2011 at 21:13 #572283103833689MeðlimurHressandi dagur í Múlafjalli í dag
Ferlega ánægð með socialpartypepparana sem hengdu upp línur í dag
Takk fyrir daginn.
Heiða18. desember, 2011 at 14:59 #57229Freyr IngiParticipantJólaklifur
19. desember, 2011 at 12:26 #57231SkabbiParticipantHæ!
Ég þakka fyrir frábæran dag í Múlafjalli á laugardaginn. Frábært veður, góður ís og hellingur af skemmtilegu fólki. Verður ekki betra!
[img size=400]https://lh4.googleusercontent.com/-wW–voCofB0/Tu5yGbrgseI/AAAAAAAAD7Q/Vr2I2etKGP8/s800/P1030323.JPG[/img]
Nokkara fleiri myndir hér
Skabbi
19. desember, 2011 at 12:40 #572321210853809MeðlimurStórgóður dagur; Þakka sam(úti)veruna.
kv. Jósef
19. desember, 2011 at 12:55 #57233SissiModeratorSömuleiðis. Og sjitt hvað mig langar í svona litríkan galla eins og Freysi á. (Ástrík eða Steinrík)
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.