Það var hópur fólks mættur í Skútuvoginn kl.8 í morgun.
Góð stemmning var á stæðinu þó enn væri mið nótt.
9 skíðamenn héldu í Skarðsheiðina þar sem skíðað var geisiflott gil milli Skessuhorns og Skarðshorns, eða 2 gilið frá Skarðshorninu.
Skíðamenn ætla að reyna lýsa því í kvöld fyrir þeim sem vilja heyra hversu fáránlega góður snjórinn var í þessu gili. Erum við ekki viss um fólk muni trúi okkur enda ekki til lýsingarorð sem lýsir því nógu vel hvernig var að skíða í þessari unaðslegu lausamjöll.
Sjáumst í kveld upp úr 8.
p.s. heyrði að stemmningin í Múlafjallinu hefði verið góð og giska á að um 12 klifrarar hafi verið mættir á staðinn. Nánar um það frá þeim.