Þar sem fyrirhugað er að fara ísklifurferð í Þórisjökul vil ég koma fram með smá breytingu á ferðinni. Ég legg til að farið verði klukkan 7 að morgni í stað 8. Í ljósi þeirrar reynslu sem ég hef á að fara þangað uppeftir þá væri best að leggja af stað klukkan 7.
Það væri nú gaman að hafa sem flesta þarna með. Takk fyrir kærlega Helgi. Hrappur þér er alveg „vélkomið“ að koma með og mátt þú alveg leggja af stað klukkan 5. Grínlaust þegar við förum í Haukadalinn þá leggjum við stundum af stað klukkan 5!!! Morgunstund gefur…….
Klifurkveðjur Olli