Ísalpkvöld verður haldið á fimmtudagaskvöld og er meiningin að sýna myndina Ama Dablam: Beyond the void eftir ísalpfélagann Ingvar Á. Þórisson sem kleif fjallið haustið 2007.
Þetta er mynd sem allir íslenskir fjallamenn eiga að sjá og ef þeir hafa séð hana þá þarf að rifja hana upp af og til.
Allir ísalparar velkomnir! Klifurhúsið, efri hæð kl. 20.00
Heyrst hefur einnig að hægt verði að nálgast myndina á DVD á kvöldinu!