Sælt veri fólkið. Nú er loksins von um að blaðið fari að birtast í blaðalúgum ísalpara. Mikil vinna hefur verið lögð í blaðið á síðustu vikum og nú er von til að það verði prentað innan fárra daga. Blaðið er helmassíft, 68 síður og nánast allt í lit sem er mikil nýbreytni. Stefnan er sett á að koma blaðinu í póst fyrir páska. Því viljum við hvetja alla þá sem eiga eftir að borga ársgjaldið að gera það svo þeir megi njóta vel. Blaðið verður væntanlega sent á þá sem hafa borgað ársgjaldið, ekki nema að stjórnin taki pólitíska ákvörðun um annað.
Að lokum þá vantar að sjálfsögðu efni fyrir næsta blað, þannig að það þurfi nú ekki að gera það að reglu að blaðið komi aðeins út annað hvert ár.
jh