Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísaðstæður 2012-2013
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
18. mars, 2013 at 21:39 #58247Gummi StParticipant
Klifraði í góðum félagsskap í Bröttubrekku á föstudag Single malt leiðunum blandað saman í frábærum aðstæðum, jólaís með rjóma.
Góður ís í stóra haftinu í on the rocks og skemmtilegar regnhlífar í vinstri leiðinni single malt og appelsín minnir mig að sé röðin á þessu.26. mars, 2013 at 10:31 #58258Jon SmariParticipantVið Snæbjörn fórum í Tvíburagil fyrir um viku síðan. Frekar fátækt af tryggjanlegum ís, en skemmtilegur ís í kringum mix-leiðirnar.
26. mars, 2013 at 10:34 #58259Jon SmariParticipantKlifraði Spora ásamt Stefán Ágúst í gær mánudaginn 25. mars. Ágætisaðstæður, ísinn nokkuð góður að mestu, en töluvert um regnhlífar og „snís“ efst.
26. mars, 2013 at 11:02 #58260SissiModeratorÞað virðist nú vera ýmislegt fleira í gangi, maður hefur rekist á myndir af Ýringi og fleira sem fólk hefur verið að berja, ísinn víðist leynast hér og þar þessa dagana.
Hvet klifrara til að sýna smá ást og pósta á vef allra fjallamanna, ekki bara fyrir ömmur og afa á illum samskiptamiðlum
29. mars, 2013 at 18:28 #58266Siggi TommiParticipantÆtlaði að hamra ís í Kinninni með Arnari og Berglindi síðustu daga en þar var allt á hraðri niðurleið í hlýrri vorsólinni. Heyrðum þungar drunur strax kl. 7:30 í morgun og hálfu fossarnir höfðu hrunið dagana á undan (þmt. efri parturinn af Stekkjastaur).
Var því lítið annað að gera en að flýja á hærri slóðir og endaði ég því ásamt Arnari og Ólíver heimamanni í SuperDupont (WI5) í Stólnum í Skíðadal í dag. Ísinn í fínu standi og í meira lagi í leiðinni þetta árið. Varð því úr hin besta skemmtun í blíðviðrinu. Fossinn gæti alveg þolað nokkrar vikur í viðbót ef ekki hlýnar mikið meira en þetta.
Aðrir Fossar í Stólnum (ofan Dælis og Másstaða) í fínu standi og snjórinn sæmilega stabíll.Gummi stóri og Arnar fóru í Ormapartý (WI4+) í Búrfellshyrnu í Svarfaðardal og áttu góðan dag.
Aðrar leiðir þar (Wanker Syndrome, Ýmir etc.) væntanlega í fínu standi líka.Annars er betra skíðafæri en ísfæri hér á N-landi en með góðum vilja má eiga góða klifurdaga á Skíða- og Svarfaðardalssvæðinu.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.