Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ís-helgin-aðstæður
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
29. nóvember, 2008 at 17:42 #46038Freyr IngiParticipant
Fjórmennt var í 55° í Búhömrum í dag.
Þar voru undirritaður, Andri Bjarna, Gummi Tómasar og Sissi.Aðstæður voru svona að bresta á, blautur ís, ekki samvaxinn og þunnur á köflum.
Tvíburagil: alveg mígandi blautt
Nálarauga: Frekar þunnt en fönníAnnars sáum við til Gauja flubba á svipuðum slóðum.
Sá ekki hvert hann fór.Kv,
Freysi
29. nóvember, 2008 at 21:12 #53272SkabbiParticipantHæ
Í Kjósinni eru löðrandi ísaðstæður! Hafi menn áhuga á Spora eða öðrum leiðum í Kórnum eru aðstæður hreinlega til fyrirmyndar.
Ef e-r á leið um svæðið mæli ég sérstaklega með gilinu vestan megin við Spora. Á miðri leið upp gilið má hugsanlega finna rauðan skrímer með BD bínu. Hann á ég og þætti vænt um að fá aftur, skyldi e-r rekast á hann.
Svo er það bara Eilífsdalur í fyrramálið!
Skabbi
30. nóvember, 2008 at 19:11 #532732806763069MeðlimurJæja, allir að segja frá aðstæðum eftir ferðir helgarinnar!
Munið að maður gerir ekki neitt fyrir ekki neinn sem gerir ekki neitt fyrir ekki neinn.
Annars hef ég ekki margt að segja að svo komnu máli. Þær línur sem á annað borð eru feitar í góðum aðstæðum eru alveg að detta inn og það eru enn túrhestar og ís á Sólheimajökli.
kv.
Softarinn – fer hratt harðnandi – eins og vatnið!30. nóvember, 2008 at 20:35 #53274Freyr IngiParticipantFljótshlíðin varð fyrir valinu í dag hjá mér, Viðari Gumma Tómasar og Viktori.
Fórum „álið er málið“ í Þórólfsárgili og kíktum svo á Marðarárgljúfur líka.
Leiðir almennt nokkuð þunnar… en promising!Flott svæði þarna innfrá.
Hvernig er Eilífsdalur?
Freysi
30. nóvember, 2008 at 23:43 #53275SissiModeratorEitthvað að gerast með Stækkum Straumsvík?
1. desember, 2008 at 09:20 #532761012803659ParticipantSkrapp í Búhamrana eins og Freysi segir, ég fór létt bröllt í tvíburagilinu.
Það var fínt fyrri part dags en þegar sólin náði inn í gilið varð allt rennandi blautt. Heldur þunnt, en allt á réttri leið.
Myndir af aðstæðum:
http://picasaweb.google.com/gudjonbj/TvBuragili30NV#1. desember, 2008 at 12:23 #53277Siggi TommiParticipantJájá.
Fór við fimmta mann í Eilífsdal í bítið í gær.
Voru þar á ferð undirritaður, Gunni Magg, Marianne sportrotta frá Niðurlöndum, Gummi hinn hávaxni og Arnar hinn ekki-jafn-hávaxni.
Aðstæður uppfrá voru hressandi. Nóg af ís en fossarnir eru enn að loka sér, slatti af tjöldum og regnhlífum svo það þarf aðeins að þræða framhjá því vafasamasta. Ég, Gunni og Marianne fórum mið- og hægri Tjaldsúlurnar og var sú hægri sérstaklega tær f***ings snilld. Gummi og Arnar fóru í vinstri Súluna og var hún vel fær hægra megin.
Einfarinn var þunnur en fínn niðri. Efri spönnin upp vinstri var mjög úfin en eflaust gerleg. Sá ekki inn í hornið þar sem orginallinn liggur. Gummi og Arnar voru að hnoðast þarna svo þeir geta gefið betra rapport um það.
Þilið náði saman og ég myndi giska á að það sé svipað og var þegar ég fór þar í byrjun des í fyrra (fórum ekki alveg að því). Sjá http://picasaweb.google.com/hraundrangi/Ili8Des2007#Frost var með afbrigðum mikið fram eftir degi (12-15°C frost) og ísinn óheyrilega harður en mýktist aðeins þegar leið á daginn og hitaskilin nálguðust landið.
Lentum náttúrulega í að villast á slóðanum niðureftir og fórum örugglega 5 sinnum af leið en höfðum okkur þó niður að lokum.
Þrír voru með stórar myndavélar í túrnum svo það ættu að detta inn myndir af Dalnum á næstu dögum…
Siggi með kaldofa á hægri stórutá…
2. desember, 2008 at 11:33 #532780506824479MeðlimurÉg og Arnar Fel kíktum í spora á sunnudaginn.
Aðstæður voru svona frekar mjög blautar, hef sjaldan séð jafn þykka klakabrynju á línunni minni.
Annars er alveg bunki af ís þarna innfrá og fullt af línum í aðstæðum.Fæorum svo í góðan bíltúr um suðurlands undirlendið eftir prílið, norðurhlíðin á Heklu leit út fyrir að vera í fínum skíðaaðstæðum.
Doddi
P.S. það tapaðist skrúfa frá okkur í spora , BD express, ef einhver á leið þarna framhjá þá er viðkomandi vinsamlegast beðin um að kippa henni með sér íbæinn.
2. desember, 2008 at 13:01 #53279SissiModeratorSpurning um að fara að skella sér í Kjósina, mig vantar twista og skrúfur
2. desember, 2008 at 13:47 #53280SkabbiParticipantOh Doddi, þú ert nú meiri jólasveinninn. Akkuru sóttiru ekki skrímerinn minn? Sénsinn að ég skili þessari skrúfu…
Skabbi
2. desember, 2008 at 14:00 #532810506824479MeðlimurSorry, þegar við vorum komir upp var línan orðin það ísuð að það var ekki séns að klifra neitt meira þann daginn þeim línum, þannig að við löbbuðum bara niður
Doddi
2. desember, 2008 at 22:08 #53282Siggi TommiParticipantGummi stóri tók eitthvað af myndum í Eilífsdalnum.
Vona að hann sé sáttur við að ég sendi linkana frá honum hér inn.
http://www.internet.is/gummistori/ST2.jpg
http://www.internet.is/gummistori/ST3.jpgBáðar eru myndirnar teknar í mið-Tjaldsúlunni.
Hægri Súlan var enn feitari.Auglýsi eftir myndum frá Arnari og Marianne og svo fleirum frá Gumma.
4. desember, 2008 at 14:33 #532832103844569MeðlimurPiccas from our climbing are here: http://picasaweb.google.com/der.steen/IceclimbingInIceland#
can´t wait to go again
Marianne -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.