Ísklifur ferð á laugardaginn varð heldur endasleppt þegar ónefndur félagi á nýjum bíl gat ekki stoppað sig í brekkunni niður í Elífsdal og ók á keðjuna yfir brúna. Allt þetta gerðist þrátt fyrir að ekið hafi verið á broti af löglegum hraða. Það er því ástæða til að vara alla sem ekki aka um á verðlausum suzuki blæjubílum eða bílum með kengúru grind við því að aka yfir brúna. Reyndar er það vafasamt athæfi þó keðjan væri ekki til staðar því hinumegin við brúna er fjöldi hesta á beit og þeim finnst fátt betra en að naga saltið, sem gatnamálastjóri dreifir á götur Reykjavíkur, af bílum saklausra klifrara.
Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að brúinn brotnaði og keðjan féll, en sumarbústaðarmenn voru fljótir til að skella keðjunni aftur upp.