- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
13. nóvember, 2007 at 10:53 #45940
0703784699
MeðlimurVar vitni að því að Leifur notaði orðið Harðkjarna, á fyrirlestri sínum í gærkveldi, þegar hann sagði klifur á 8000 metra tind ekki lengur bara f. hinn harðkjarna fjallamann? Fóru þá af stað heimspekilegar vangaveltur hjá mér um hvað er að vera harðkjarna?
Síðan sá ég Björgvin óvarfærnislega notast við orðið Hard Core þegar hann vitnaði í sérstaka tegund ísaxa hér á undan.
Kannski er ekkert eitt svar við því hvað harðkjarna er? 8.000 metra klifur, grafarfoss eða glymur, laugavegurinn eða laufaskörð?
kv. Himmi með puttann á þjóðfélagsumræðunni
13. nóvember, 2007 at 13:05 #51884AB
ParticipantFerskjur eru harðkjarna. Eða voru það plómur?
AB
13. nóvember, 2007 at 13:28 #518850311783479
MeðlimurEr ekki avokato hardkjarna? Eda er pomegranate thad?
HG
13. nóvember, 2007 at 13:34 #51886Smári
ParticipantÓlífur á ítölskum pizzastöðum eru harðkjarna, komst að því þegar ég nánast braut nokkrar tennur hægra megin í kjaftinum.
Smári
13. nóvember, 2007 at 15:56 #518872806763069
MeðlimurGrædgin verdur mørgum ad falli!
13. nóvember, 2007 at 16:30 #518881908803629
ParticipantEf við förum aftur að umræðuefninu þá held ég að við getum aldrei verið sammála um hvað harðkjarna er.
Helst held ég að við getum sagt að skilgreiningar fólks um harðkjarna ráðist af því hversu duglegt það er í að stunda jaðarsport, þ.e.:
– Aldrei í jaðarsporti, þá er allt sem er jaðar harðkjarna
– Stundum í jaðar, þá eru þeir sem eru virkilega góðir í jaðar harðkjarna
– Duglegir í jaðar, almennt sú skilgreining að ef það eru ekki margir sem ná þessu erfiðleikastigi, þá harðkjarna. Þó sumir sem segja – allir sem stunda jaðaríþróttir = harðkjarna.
– Ofurhugar í jaðar… harðkjarna hvað?Held við komumst ekki lengra en þetta…
14. nóvember, 2007 at 09:30 #518890703784699
Meðlimur…þá held ég að ég velji plómur,
Gimp
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.