Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Hva vantar ykkur ís???? Hér er nóg
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
19. febrúar, 2003 at 09:25 #462930304724629Meðlimur
Æi greyin er ísinn búinn?
Mér skilst að ég búi á eina staðnum á landinu þar sem er frost þessa stundina. Núna er smá jafnfallinn snjór síðan í nótt og þeir sem ekki trúa mér ættu að kíkja inn á bb.is og klikka á veðurmyndavél til hægri á skjánum. Var á gönguskíðum í gær með Global Extreme liðið og drullutöpuðu þau fyrir köllum sem eru allir yfir sextugt. Úr varð hin besta skemmtun. Á morgun fer ég með þau í ísklifur í Naustahvilft.
Ef einhverjir eru í ferðahug þá er vel hægt að klifra ís í Skutulsfirði og kannaði ég líka aðstæður í Önundarfirði í gær og var töluvert um ís í fjallinu Kaldbak. Veit ekki með Óshlíðina en get kannað það ef menn hafa áhuga.Kaldar kveðjur frá ÍS-afirði
19. febrúar, 2003 at 10:00 #47733KarlParticipantVeit Messner af þessu?…….
Kalli
19. febrúar, 2003 at 11:15 #477341709703309MeðlimurHef góða reynslu af skipulagningu Rúnars Óla.
Hann eldar líka ágæta kjötsúpu med alles.Er líka fullviss að drengirnir úr björgunarsveitinni á Ísafirði taka vel á móti SAS-örum.
Stebbi
19. febrúar, 2003 at 16:59 #477351402734069MeðlimurGóð ferðatilhögun á Ísafirði er að taka með sér eitthvert góðgæti á flugvöllinn til að kjammsa á meðan beðið er eftir flugi. Þá fer maður allavega ekki banhungraður aftur á gistiheimilið þegar fluginu verður svo loksins aflýst!
Böbbi
19. febrúar, 2003 at 23:38 #477360304724629MeðlimurBöbbi er einhver kergja? Mig minnir að þú hafir bara verið svo þunnur að þú mættir á flugvöllinn í Holti í staðinn fyrir á Ísafirði…
Að öllu gamni slepptu sýnist mér að veðurútlit helgarinnar sé ekkert glæsilegt fyrir landið í heild svo ætli það verði ekki að fresta þessu.
Er að græja mig fyrir morgundaginn (fimmtudaginn) og býst við góðum degi á fjöllum….7-9-13
rok
20. febrúar, 2003 at 09:54 #47737ÓlafurParticipantEr ekki málið að halda ísklifurfestivalið í Eilífsdal (sennilega einn af fáum ó-íslausum stöðum á landinu) og flytja Telemarkmótið uppí Bláfjöll. Fregnir herma að hinn landsfrægi, norðlenski KEA-snjór sé eitthvað á undanhaldi.
Norðanmenn og aðrir „útálandingar“ – verið velkomnir í borgina.
ÓliRaggi
21. febrúar, 2003 at 00:45 #477380704685149MeðlimurTelemarkhátíðin á Akureyri 2003, henni verður ekki frestað og allra síst verður hún flutt eitthvað til! Það snjóaði síðustu nótt hér fyrir norðan og einnig aðeins í dag. Það er nægur snjór í fjallinu, það var t.d. opið á Dalvík um síðustu helgi og í vikunni og þeirra skíðasvæði stendur mun lægra en skíðaaðstaða allra landsmanna í Hliðarfjalli við Akureyri. Það hefur ekki verið hægt að hafa opið í Hlíðarfjalli fyrir suðvestan roki síðustu vikur, það er enn snjór í fjallinu. Þótt snjóalög nú í febrúar séu líkari því sem maður á að venjast í byrjun maí, þ.e.a.s. blautt vorfæri í sól og sunnanvindi.
En það er hægt að hugga sig við það, að mars er snjóþyngsti mánuður ársins hér á Akureyri og sá úrkomumesti. Úrkomumælingar nærri því síðustu fimm áratugi staðfesta það. (sjá skýrslu um úrkomumælingar á skeytaveðurstöðvum á Íslandi á árunum 1945 til 1991 gefna út af Háskóla fjölritun 1993) Í þessari skýrslu sést að ööl þessi ár hefur vanalega byrjað að snjó lítið eitt síðustu vikuna í febrúar og síðan kyngt niður snjó fyrstu tvær vikurnar í mars.
Ekki örvænta heldur farið að hugsa fyrir gistingu og staðfestið þátttöku ykkar hér á síðunni, og vinsamlegast takið fram hvort þið ætlið að taka þátt í hófinum á laugardagskvöldið.
kveðja
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.