Sælir félagar
Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum að Hátindahöfðinginn Þorvaldur V. Þórsson, betur þekktur sem Olli á þessu síðum, er á góðri leið með að leggja hæstu tinda landsins að fótum sér. Í Útiveru hefur verið gerð grein fyrir ferðum hans það sem af er en nú hefur verið bætt um betur því verkefni Olla hefur fengið sína eigin síðu.
http://www.utivera.is/100haestu
Verið ófeymnir við að koma með ábendingar um það sem betur má fara.
Svo er bara að hvetja kallinn áfram með athugasemdaforminu Hvar er hann?
Svo er bara að taka frá þá tinda sem hann á eftir og panta far með honum.
Kv, Jón Gauti