- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
13. nóvember, 2008 at 08:11 #459202806763069Meðlimur
Hvað skal gera þegar er gott verður, of kalt til að fara í Stardal eða í Valshamar og samt enginn ís sjáanlegur?
Hér er ein hugmynd:
http://picasaweb.google.com/gudjons/Heljaregg#
http://picasaweb.google.com/ivarfinn/Heljareggin_VanmetinKlettalei#
Besti klifrarinn er sá sem skemmtir sér best, síðasta þriðjudag vorum það ég, Viðar og Guðjón!
13. nóvember, 2008 at 08:26 #53231Stefán ÖrnParticipantHeljareggin er alger snilld. Það er bara þannig!
Hvetjandi myndir verð ég að segja!
Hils,
Steppo13. nóvember, 2008 at 09:40 #532322806763069MeðlimurVerður = veður. Feitir puttar!
13. nóvember, 2008 at 10:27 #532332806763069MeðlimurJá og svo svona smá fyrir græju kallinn í okkur öllum (græju kallinn er líka í ykkur stelpur – hann er bara öðrvísi á litinn).
http://www.omegapac.com/op_products_linkcams.html
Guðjón lumaði á þremur af þessum elskum – og það er ekki lygi, þetta er tær snild.
Kosta bara „arm & a leg“ en ef maður á svona er engin þörf fyrir hendur eða fætur!
En nú er komið gott af að skrifast á við sjálfan sig.
Yfir og út,
Softarinn!
13. nóvember, 2008 at 23:58 #53234ÖddiParticipantTakk fyrir þetta….hressandi myndir Þessi leið er á listanum! Horfi alltaf þarna upp þegar ég keyri fram hjá. Hef heyrt og séð mikið af myndum af henni og veit að hún er líklegast klassiker en hvernig er bergið/tryggingar og slíkt…. er þetta betra/verra en t.d. Hraundranginn? Er kannski til topo af henni?
kveðjur úr Hjaltardalnum
Öddi14. nóvember, 2008 at 08:17 #532352806763069MeðlimurSæll
Tryggingar eru fullnægjandi miðað við erfiðleika. 1. auka spönnin er sú eina sem talist getur tæp (ég tók einu sinni 4m fall í henni). Flestir kjósa líklega að sleppa henni.
Sum staðar er smá run-out en þá er klifrið líka mjög auðvelt.
Þú finnur allar upplýsingar um þessa leið og aðrar klassískar klettaleiðir í leiðarvísi ÍSALP um Esjuna sem er annað hvort hægt að nálgast í KH eða á miðvikudögum hjá Ísalp.
kv.
Softarinn14. nóvember, 2008 at 09:23 #53236Stefán ÖrnParticipantHæ,
Ég myndi segja að bergið væri betra en Hraundranginn. Leiðin er í sjálfu sér auðrötuð – fylgir hryggnum upp á topp. Eina vesenið er blábyrjunin. Halda sér hægra megin (sunnan) við hrygginn í byrjun.
Hils,
Steppo14. nóvember, 2008 at 22:24 #532372303842159MeðlimurKúl flottir ekki slæmur þriðjudagur…
kveðja úr rigningunni í GB
Haukur -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.