hæhæ
Það má segja norsk-íslenska ísklifurfestivalið hafi verið sett í dag í Rjukan, nánar tiltekið á Krokan svæðinu fyrir þá sem þekkja til.
Hér eru stödd, Heiða, Björk, Geiri, Jökull, Steinar, Óli, Geir og von er á Herdísi á morgun.
Heiða og Björk búnar að vera hér í 6 daga, Óli og Steinar í 5 og Geiri, Jökull og Geir komu keyrandi í snjóstormi frá Stavanger seint í gærkvöldi.
Aðstæður hér eru þær fínustu, hitatölur rokkandi en nægur ís útum allt (allavega á íslenskan mælikvarða)
Hér koma nokkrar myndir og eflaust verður sagt betur frá seinna.
isklifurkveðjur