- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
12. October, 2006 at 07:56 #45578
2806763069
Member…með byssukúlum í morgunsárið!
Var að fletta í gegnum blaðið í morgun og sá frétt um danskan leiðangur á Cho Oyu sem var vitni af aftöku kínverskra hermanna á 7 tíbetum.
Hér er fréttin á dönsku fyrir þá sem vilja:
12. October, 2006 at 08:40 #50682Anonymous
InactiveErtu eitthvað hissa á því þetta er það þjóðarmorð sem hefur algerlega farið undir radarinn hjá fréttamönnum. Kínverjar byrjuðu á því að gereyðileggja flest hof í landinu og annað hvort drepa eða flæma burtu alla munka. Þeir næst fluttu milljónir kínverja inn í Tíbet og banna síðan að notað sé móðurmálið í skólum landsins. Ef þetta er ekki þjóðarmorð af verstu tegund þá veit ég ekki hvað það heitir. Svo buðu íslensk strórnvöld forseta Kína í heimsókn eins og hann væri hetja fyrir nokkrum árum. Hvílík hræsni þegar hugsað er til þess að þetta sé allt gert fyrir nokkra viðskiptasamninga.
kv Olli12. October, 2006 at 11:06 #506830503664729
ParticipantÞetta kallar á nýja ályktun frá Ísalp……
12. October, 2006 at 12:52 #50684Anonymous
InactiveÉg skal skrifa undir hana persónulega!
16. October, 2006 at 20:47 #50685Öddi
ParticipantEf þið viljið sjá vídeó af þessu ógeði getið þið tjékkað á þessu: http://www.protv.ro/stiri/international/exclusive-footage-of-chinese-soldiers-shooting-at-tibetan-pilgrims.html
Fann þetta í gegnum rockclimbing.com.
þetta er ekkert annað en mannvonska af verstu gerð!!!
Maður getur ekki annað en orðið reiður.17. October, 2006 at 08:57 #50686Anonymous
InactiveMér finnst nú eins og flestum sé nú bara slétt sama.
17. October, 2006 at 18:51 #50687Sissi
ModeratorÉg myndi nú alveg styðja létt “Free Tibet” lógó hérna á síðuna.
Siz
18. October, 2006 at 11:59 #50688Smári
ParticipantÞetta er siðlaust og ógeðslegt en hefur ekkert með hagsmuni ísalp að gera frekar en þjóðarmorð sem framin hafa verið annarsstaðar í heiminum. Ég er þess vegna alfarið á móti því að ísalp fari að senda út ályktun vegna svona mála frekar en annara sem hafa ekki neitt með hagsmuni félagsins að gera, jafnvel þó þeir séu siðlausir og viðbjóðslegir.
kveðja, Smári
18. October, 2006 at 12:24 #506890503664729
ParticipantKommon!
Þetta var djók hjá okkur Olla.18. October, 2006 at 13:09 #506900309673729
ParticipantÞetta hefur reyndar með hagsmuni íslenskra fjallamanna og Ísalp að gera. Svona atburðir stuðla að átökum og óstöðugleika á svæðinu sem getur allt eins bitnað á íslenskum fjallamönnum í ferðum þarna.
Held reyndar að Ísalp eigi að byrja á að láta til sín taka með ályktunum á Íslandi.
kveðja
Helgi Borg18. October, 2006 at 16:13 #506911704704009
MemberÍslenski ályktunarklúbburinn.
19. October, 2006 at 12:08 #506920703784699
MemberAf hverju mótmælum ekki líka háu matarverði…það gerir það að verkum að við komumst sjaldnar í fjallaferðir því það er svo dýrt að lifa?
En öllu gamni sleppt að þá mæli ég með Storms of Silence með Joe Simpson…hún opnaði augu mín f. þessum hrikalegu þjóðarmorðum.
Hvort Ísalp mótmæli eða ekki…þá eru til klúbbar sem þú getur gengið í til að mótmæla þessu, ég fór í Ísalp til að öðlast meiri þekkingu á fjallaferðum, góðum félagsskap og svo ársritinu (sem eitthvað er farið að dragast).
kv.Himmi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.