Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Festivalið!
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
24. febrúar, 2008 at 13:02 #46103AnonymousInactive
Ég hef heyrt að það sé gríðarlega góð stemming á festivalinu.
Olli24. febrúar, 2008 at 20:54 #52498Páll SveinssonParticipantAlgör snild.
Gistiaðstaðan og öll umgerð var frábær.
Framkvæmdin er ÍSALP til mikilla sóma.Nýar leiðir WI – III og IV og V af öllum lengdum og gerðum
Nokkrar boltaðar leiðir upp í M7.Ég held að Robbi hafi verið búinn að skrá 19 nýar leiðir.
Það tekur nú nokkra daga að losna við brosið.
kv.
Palli25. febrúar, 2008 at 09:11 #52499SmáriParticipantTakk fyrir frábært festival….
þeir sem sátu heima vegna hræðslu um hláku og lítinn ís geta farið að naga sig í handabökin;)
kv. Smári
25. febrúar, 2008 at 10:51 #525001108755689MeðlimurÞetta var eðalfestival. Hef svo sem ekki samanburð við fyrri festivöl, en þetta var vel skipulagt og vel útfært. Veðrið og aðstæður voru með besta móti.
Takk fyrir góðar stundir og ómetanlega reynslu.
Bragi25. febrúar, 2008 at 12:02 #525010311783479MeðlimurHae
Thar sem eg atti thvi midur ekki heimangengt thetta arid a Isfestival Isalp, tha brugdum vid tveir Isalparar i viking her i Bretlandi a thad rad a halda „ex-pat“ festival i Cairngorms thjodgardinum i Skotlandi. Vid Helgi Hall klifrudum finustu mix leid i Corie an Lochain a laugardaginn i „character building“ vedri, eins og monnum er tittraett um her. Frabaer dagur a fjollum og pint-inn thegar nidur var komid bragadist snokktum betur en hann gerdi tveimur vikum fyrr, er vid fostbraedur vorum a ferd a svipudum slodum.
I gaer tokumst vid a vid margmenni i Coire an Sneachda thar sem allir vildu miga a sama hjarn blettinn og forum tvaer lettar snjoklifurleidir. Bretar eru naegjusamir og fara ekki fram a meira en fol og tha keyra menn 300milur og leggja i hann.
Fyrirtaks helgi!
Gaman ad heyra ad Isfestivalid hafi tekist vel!
Kvedja
Hallips. luma kannske myndum vid taekifaeri.
25. febrúar, 2008 at 12:28 #52502Arnar JónssonParticipantSælir,
Það er rétt að maður nagaði sko sér handabakið að komast ekki á þetta festival, en svona getur þetta bara verið. Ég og Óðinn smelltum okkur bara í smá sárabætur ferð í Múlan og klifruðum Rísanda sem var í príðisgóðum aðstæðum og náði ég með smá aulabragði að fá mér smá ís með dífu í fysta sinn hehe.. Hlakkar til að sjá myndir sem þið getið nuddað framan í okkur vitleysingana sem héngu bara heima.
Kv.
Arnar25. febrúar, 2008 at 15:58 #52503RobbiParticipantTakk fyrir frábært festival.
Samkvæmt minum kokkabókum þá voru farnar 27 nýjar leiðir og vantar ennþá eitthvað uppá.
Örleiðavísir kemur á netið eins fljótt og hægt er.
robbi25. febrúar, 2008 at 16:42 #525042906883379MeðlimurTakk fyrir dúndur helgi! Ætla ekki allir að skella myndum á netið og svona?
kv. Daði
25. febrúar, 2008 at 18:38 #52505Björgvin HilmarssonParticipantSmá uppástunga… Er ekki málið að koma sér saman um að einhver einn sem er með gallerý, sem virkar sæmilega vel, birti rjómann af myndum helgarinnar? Menn gætu þá sent á viðkomandi bestu myndirnar sínar og hann svo sett allar inn. Þá er hægt að sjá allt það besta á einum stað. Svo getur auðvitað hver og einn sett allar sínar myndir þar sem hann vill.
Einhver sem býður sig fram í að pósta öllu klabbinu?
26. febrúar, 2008 at 11:46 #52506SkabbiParticipantHæ
Ég þakka öllum sem mættu í Breiðdalinn um helgina, hún hefði ekki verið eins án ykkar!
Skráning í „Lúxxus-ís 2009“ hefst fljótlega. Súddi sér kjötsúpuna.
Allez!
Skabbi
26. febrúar, 2008 at 13:49 #52507SkabbiParticipantHæ aftur
Ég vil gjarnan tala saman stutta grein um festivalið til að birta á forsíðu vefsins. Ég óska því eftir myndum í greinina. Ef menn eru til í að senda mér 2-3 myndir sem þeir telja að lýsi klifri og stemmingu vel er það mjög vel þegið.
Póstfangið er sem fyrr:
skabbi(hjá)gmail.com
26. febrúar, 2008 at 20:20 #52508Siggi TommiParticipantÞakka öllum sömuleiðis kærlega fyrir helgina.
Hefði ekki verið sama án Súdda…Þrátt fyrir gríðarlanga keyrslu er ekki spurning að þetta var miklu meira en vel þess virði enda frábært svæði sem um ræðir.
Við sáum svo betur á leiðinni heim hvað Berufjörðurinn hefur upp á að bjóða fyrir ísunnendur. Sáum lítið til í tunglskininu á leiðinni austur svo Breiðdalurinn fékk athygli okkar alla… Tökum spretti í þeim firði næsta vetur, það er ljóst.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.