Ferðaskrifstofan Í.T. ferðir hefur ákveðið að standa fyrir ferð á Aconcagua (6962m.) í Argentínu í jan. 2009. Ekki verður þó farið nema 10 til 12 manns skrái sig hið minnsta. (hámark 16) Enn vantar að 3 til 4 bætist í hópinn svo ferðin verði ekki blásin af. Ef einhver hefur áhuga á ævintýraferð á hæsta fjall Ameríku þá endilega hafið samband við Í.T. ferðir.