Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Fall í Grafarfossi
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
13. janúar, 2011 at 19:37 #474940502833219Meðlimur
Fall í Grafarfossi
Við Jón Yngvi og Ívar fórum í Grafarfossinn í gær, ætluðum að taka létt klifur. Fyrstu tvær spannirnar vorum við Jón Yngvi að klifra sem við værum guide og kúnni og Ívar sólóaði allt í kringum okkur að taka myndir sem auglýsing fyrir Fjalló (Íslenska fjallaleiðsögumenn).
Í öðrum stansi vildi Ívar gera eitthvað skemmtilegt, sá þar kerti sem náði ekki alveg saman. Hann klifraði upp að því, skoðaði sprunguna fyrir neðan kertið og ákvað að síga niður til að ná í frendana (vini). Gerði það og kom aftur upp. Svo var byrjað að klifra. Hann setti inn þrjár skrúfur og einn vin, var kominn neðst inná kertið þegar hann hætti við kom niður. Hann vildi meina að þetta væri vel gerlegt prófaði aftur en hætti við á sama stað og var nú ekki alveg sáttur við að hafa hætt við.
Þá var röðin kominn að mér því Jóni leist ekkert á þetta. Ég klifraði sömu leið og Ívar, upp að kertinu. Náði að klemma löppunum utan um lítinn ísdrjóla og kom mér hærra upp, var kominn með lappirnar í ís en var með þær undir mér (eins og banani). Þá vantaði eina heyfingu uppá að ég kæmist með lappirnar í góðan og þægilegan ís en tók of hátt á öxinni (hélt með báðum á annari öxinni) og hún poppaði út og ég féll u.þ.b. 7m. og ca.1,5m niður fyrir megintryggingu í 10cm, skrúfu með screemer og vininn, líka með screemer. Mest allt fallið fór í skrúfuna enda var hún hærra en vinurinn, það rifnaði aðeins úr screemernum ca 1cm. Ég fékk smá högg á hnéð og bólgu í kaupbæti. Í fallinu hélt ég öxinni en hin varð eftir uppi. Eftir smá hvíld var hjartslátturinn farinn að róast og þá var ekkert annað í stöðunni en að klifra aftur upp, þó ekki nema til að ná í öxina. Ég náði því og setti inn skrúfu þar sem hún var, klifraði örlítið hærra í mun betri ís og setti inn aðra skrúfu og seig niður. Jóni leist ennþá ekkert á þetta, Ívar lagði þá af stað og klifraði þetta upp í toprope og kláraði síðan upp úr leiðinni, sem var alls ekkert auðvelt 90° pumpandi klifur. Kláruðum allir upp, mjög fengir því að þetta var búið.Siggi með bólgið hné
http://picasaweb.google.com/prentdrekinn/Grafarfoss#13. janúar, 2011 at 20:51 #561710111823999Meðlimurusss heppni í óheppni þarna! Gott að heyra að þú ert ok og ég vona að bólgan jafni sig áður en þú giftir þig
Note to self : bannað að detta í leiðslu13. janúar, 2011 at 21:13 #56173Freyr IngiParticipantHvað er Ívar að ana ykkur útí eiginlega?
Gott að heyra að ekki fór verr.
Er það samt rétt skilið að þú hafir dottið í 10cm ísskrúfustubb?
Vel gert hjá þeim stutta!Og… hvar er þetta kerti eiginlega miðað við Orginalinn?
Kv,
Freysi
13. janúar, 2011 at 22:33 #561740502833219MeðlimurJá ég datt í 10cm stubb með screemer það rifnaði aðeins úr honum ca.1cm
ég er að bíða eftir mynd frá Ívari, þá get ég sýnt það nákvæmlega hvar þetta er.
Siggi
13. janúar, 2011 at 23:34 #561772806763069MeðlimurCotton is not the stuff legends are made from!
Legends are made of Titanium
14. janúar, 2011 at 02:01 #561781506774169MeðlimurMaður spyr nú bara: hver þarf óvini…. :
14. janúar, 2011 at 08:39 #56179Páll SveinssonParticipantGrafarfoss lengi lifi.
Ánægður með ykkur snillingar.
kv
Palli14. janúar, 2011 at 09:27 #561800502833219MeðlimurMyndinn af Grafarfossi kemur ekki inn..
http://picasaweb.google.com/prentdrekinn/Grafarfoss#5561970202782545986
19. janúar, 2011 at 12:40 #56203SissiModeratorSvona fyrst það er þráður hérna um fall, ætlar enginn að commenta á fall í Orion?
19. janúar, 2011 at 12:59 #56205SkabbiParticipantSveinn Friðrik Sveinsson wrote:
Quote:Svona fyrst það er þráður hérna um fall, ætlar enginn að commenta á fall í Orion?Þú segir fréttir, hvaða fall í Orion áttu við?
Skabbi
19. janúar, 2011 at 14:02 #562070703784699MeðlimurÉg hafði fregnir af tveimur sem fóru Orion í gær en ekki heyrt neitt af falli?
19. janúar, 2011 at 14:49 #56208gulliParticipantJá Sissi, þetta er mjög spennandi. Þú verður að leysa frá skjóðunni. Hefur nú ekki verið vandamál hingað til!
20. janúar, 2011 at 16:20 #56216Páll SveinssonParticipant -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.