Jæja, gott að geta hreyft sig aðeins eftir þessa blessuðu hlákutíð. Stór hópur gerði sér ferð inn í dal í morgun eftir klassískt stopp á Select um 7. Ági, Ási, Sædís, Gunni, Valdi, Marianne, Skabbi, Siggi og undirritaður.
Við þrír síðastnefndu fórum í Þilið sem var í stórfínum aðstæðum en ekki endilega dagurinn fyrir softshell. Hin fóru í Einfarann og áttu einnig góðan dag á fjöllum. Nokkrar myndir hér:
http://grettisgata.eitthvad.is/main.php?g2_itemId=35118
Kv,
Gulli