Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Eilífsdalur
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
25. október, 2004 at 08:16 #46054Stefán ÖrnParticipant
Ég og Fjallaskarpur skelltum okkur inn í Eilífsdal á laugardaginn og hittum þar fyrir Robba og Sigga Tomma.
Þar er allt að gerast en engar leiðir myndu teljast vera komnar í góðar aðstæður. Skelltum okkur allir í Einfarann sem er íslítill núna en að sama skapi í skemmtilegum aðstæðum. Ekki nenntum við upp á brún því skoran efst í leiðinni er ís- og snjólaus með öllu.
Þar sem brekkan undir leiðunum er algerlega snjólaus er aðkoman að leiðunum erfiðari en ella. Það sem venjulega er þægilegt snjóbrekkurölt er núna frosinn lækjarfarvegur með litlum höftum. Þægilegast er að ganga upp og niður lækjarfarveginn neðan við Tjaldsúlurnar eða upp mosahrygginn á milli Einfarans og Tjaldsúlanna. Ekki þægilegt að fara niður mosahrygginn hins vegar.
N’joy!
Steppo
25. október, 2004 at 10:13 #49032RobbiParticipantÞess má geta að bóndakonan á bænum tók okkur á tal. Hún sagði að okkur ísklifrurunum væri guðvelkomið að leggja við bæinn hennar. Keyrt er inn í hlaðið hjá bænum og síðan í gegnum eitt hlið. Þaðan niður að útihúsi. Hún sagði að ekki væri ráðlagt að geyma bílinn þar því þar ganga hestar lausir, heldur ætti maður að opna líka næsta hlið og fara alveg upp að útihúsinu og loka á eftir sér því þar eru engir hestar. Þeir eiga það til að tyggja bílana
Robbi25. október, 2004 at 11:42 #49033Siggi TommiParticipantJá, og í suðvesturhorni girðinganna frá útihúsunum er hlið sem er ekki með rafmagnsgirðingu ef menn vilja sleppa við girðingabrölt.
Hliðið inn á sumarbústaðasvæðið við Valshamar er nefnilega meira og minna lokað frá október fram á vor og því vandkvæðum bundið að komast þá leiðina. Við komumst að því að nyrðri leiðin, þ.e. frá bænum, er ekki nema nokkur hundruð metrum lengri í mesta lagi, maður sleppur við að vaða ána uppi á dal auk þess sem mýrarnar eru mun skárri þeim megin. Mælum því hiklaust með henni.
Vonum svo bara að þessir kuldar haldist því þetta var ótrúlega efnilega þarna innfrá en vantar ennþá slatta af góðum frostadögum til að verða alveg reddí.Hvernig gekk annars hjá Þórisjökulsförum?
25. október, 2004 at 14:05 #49034SissiModeratorMættum upp á Select á einhverjum óguðlegum tíma, eftir fínt kvöld á Airwaves. Fallegt veður á fjöllum. Þoka í Þórisjökli þannig að við vorum komnir alveg upp að Birkitrénu þegar við loksins fengum staðfestingu á því sem allir óttuðust: að Angelina Jolie er maður. Grín – það var sem sagt ekki arða af ís í leiðinni.
Nema hvað, menn hressir á því og var því brölt upp gilið við hliðina. Fínt 3 gráðu brölt kannski með einu hafti, ágætlega langt og góður ís/snjór.
Allir bara nokkuð sáttir held ég, betra en að hanga heima.
Sizmeister 2K
25. október, 2004 at 14:26 #49035ÓlafurParticipantAthyglisvert
Maður fer að halda að það sé hættur að myndast ís þarna. Hér áður fyrr var það árlegur viðburður að fara þarna uppeftir og þá var hægt að treysta á að þarna væri ís eftir sambærilega frostakafla og núna. Síðustu 3-4 ár virðist mér þetta hafa verið frekar dapurt…ég keyrði þarna uppeftir fyrir 3-4 árum í fullt af snjó eftir langan frostakafla og þá var ekki snefill af ís í leiðinni. Mér sýnist Þórisjökullinn búinn að vera frekar dapur alveg síðan og ekki lengur hægt að treysta á að komast í góðan ís þar.
Spurning um að fara bara frekar á Airwaves…eða labba inní Eilífsdal.
25. október, 2004 at 14:49 #490363008774949MeðlimurEn hvernig með skarðsheiðina?? Er einhver búinn að tékka á leiðunum þar, hvað sem þær heita nú aftur
S
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.