Home › Umræður › Umræður › Keypt & selt › Dyna-Flex styrkir framhandleggsvöðvana!
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
3. júní, 2003 at 23:46 #468662804783779Meðlimur
Mig langaði að benda áhugamönnum um klifur á nýjan æfingarbolta sem styrkir handleggina og þá sérstaklega framhandleggsvöðvana á áhrifaríkan og skemmtilegan hátt. Hann hefur vakið athygli meðal íþróttafólks í hinum ýmsu greinum s.s. golfi, handbolta, tennis og íshokkí. Það er frekar erfitt að lýsa því í orðum hvernig boltinn virkar þannig að ég vil benda ykkur á að kíkja á http://www.dynaflex-intl.com (gyros) eða kíkja við hjá Fitness Sport Faxafeni 8, Nevada Bob Bíldshöfða 20 eða P.Ólafsson Trönuhrauni 6.
4. júní, 2003 at 11:12 #48050ÓlafurParticipantMig langar að benda áhugamönnum um klifur á nýja æfingatækni sem styrkir handleggina og þá sérstaklega framhandleggsvöðvana á áhrifaríkan og skemmtilegan hátt. Hún hefur vakið athygli meðal íþróttafólks í hinum ýmsu greinum s.s. golfi, handbolta, tennis og íshokkí. Það er frekar erfitt að lýsa því í orðum hvernig æfingatæknin virkar en í stuttu máli felst hún í því að toga sig upp með hendurnar á láréttri stöng eða kústskafti. Til að auka árangurinn ennfremur er kjörið að gera æfinguna með ab-flex bumbubana um kviðinn. Ég vil því benda ykkur á að kíkja við í klifurhúsinu en þar hefur verið komið fyrir járnstöng sem gerir klifrurum mögulegt að stunda æfinguna.
4. júní, 2003 at 14:09 #48051Siggi TommiParticipantOg hefur herramaðurinn einhverju hugmynd um hvað svona gripur kostar í þessum ágætu búðum?
Erum við að tala um fáa þúsara eða eitthvað í 10k andanum?4. júní, 2003 at 17:17 #480522804783779MeðlimurEg vil byrja á að taka undir að kústskaftið klikkar aldrei. En hins vegar mætti þess á milli nota boltann til að styrkja framhandleggsvöðvana, t.d. heima í stofu eða á skrifstofunni þegar menn komast ekki í stöngina.
Verðið er í kringum 2.950 kr.
Hérna fylgir stutt lýsing svo að menn átti sig betur á hvernig boltinn virkar:
The Original Dyna-Flex Pro Plus is designed with a high performance rotor, which can reach speeds of up to 10,000, rpm and puts out 38lbs. of torque. It also features a new „thermo band“, which aids the user in controlling this powerhouse. The Dyna-Flex Pro Plus was designed not only to be user friendly but to aid in sports rehabilitation and conditioning of the lower arm. It is being used for carpal tunnel syndrome, by musicians, for improving performance in sports, as well as, helping in repetitive stress for computer terminal operators.
6. júní, 2003 at 18:53 #480532510815149MeðlimurÆÐISLEGT!!!
Frábært, nú er maður loksins laus við þessar drepleiðinlegu klifuræfingar endalaust.
Fer potttétt að kaupa mér svona bolta og bíð spenntur eftir því að sjá hvernig þessi skemmtilegi háttur er á því hvernig framhandleggirnir á mér eiga eftir að koma til með að styrkjast….10. júní, 2003 at 09:06 #480542806763069MeðlimurVissi ekki að gólf væri íþrótt ?!?!?!
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.