Vil bara minna á preppkvöld sem verður haldið í kvöld.
Dragið fram vetrargræjurnar, skíði og axir og dekrið við þær á preppkvöldinu.
Allir sem eiga preppgræjur eins og straujárn, brýni, þvingur og annað viðeigandi dót endilega mætið með það.
Hver og einn mæti með eigið vax (og p-tex) til að smyrja á sínar græjur.
Einnig gæti verið gott að vera með hausljós því við ætlum að tjalda fyrir utan Klifurhúsið!
Sjáumst kl. 20