- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
9. desember, 2008 at 10:20 #454122806763069Meðlimur
Getur vefstjórinn breyt skráningu á leiðinni Óli-Prik sem ég skráði um daginn?
FF skrifast á nemendur og kennara á fjallamennsku III fyrir mörgum árum. Annað heldur sér.
Palli, yfir-kennari á téðu námskeiði ætlar svo að nefna hina leiðinni og skrá – ekki satt Páll?
Dáldið stíf leið fyrir svona námskeið, en nemendurnir voru heldur ekki af verri endanum þó ég segi sjálfur frá
kv.
Hardcore9. desember, 2008 at 12:29 #53330RobbiParticipantHvernig væri að þessir kappar myndu nú bara skrá allt sem þeir fara…eða amk segja frá því. Þá væri þetta aldrei vandamál.
rh
9. desember, 2008 at 14:06 #53331AnonymousInactiveMig minnir að ég hafi verið á námskeiði þarna þegar Árni Jónssson úr HSSK var að leiða leiðina til hægri og tók massíft fall eða um 8-9 metra og endaði á haus rétt fyrr ofan jafnsléttu. Hann fékk að eiga skrúfuna sem hélt honum uppi og var það ef mig minnir rétt Rússi(títaníum skrúfa) sem var vel bogin eftir átökin. Það er til mynd af honum þar sem hann heldur á skrúfunni kengboginni.
Kveðja Olli9. desember, 2008 at 15:32 #53332RobbiParticipantÞað er semsagt búið klifra báðar leiðirnar sem eru þarna ?
http://picasaweb.google.co.uk/ivarfinn/TtARsmRk#5274937547620360546
greinilega skv. spjallinu.
Palli, you know the drill… ég vil nöfn og gráður á þessar leiðir. Ef engin nöfn eru til þá skeilliru bara einhverju á þetta. Ekkert gaman að ekkert heiti neitt og hafi engan erfiðleika.
Sendu mér bara póst og ég sting þessu inn í leiðavísi yfir Eyjafjöllin sem er langt kominn.ps. smá leiðiarlýsing skemmir ekki fyrir.
robbi10. desember, 2008 at 09:46 #53333Páll SveinssonParticipantÆi.
Voða eruð þið vondir við mig.Ég man ekkert hver af nemendunum leiddi þetta fyrst.
Hvað þá að þetta hafi verið nefnt.Eina sem sat eftir eru flugferðirnar sem nemendurnir tóku.
Sem er nú saga út af fyrir sig.Mjög skrítið að vera kennari og vita að nemandi muni taka fall og gera ekkert í því annað en að passa að blikka ekki augunum svo ég missi ekki af því.
Svona er maður inn við beinið.
kv.
Palli -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.