Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Boltun við Snorrastaðatjarnir
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
21. apríl, 2006 at 13:43 #46764Bergur EinarssonParticipant
Við fórum nokkrir Hafnfirðing út að Hæstahjalla við Snorrastaðatjarnir á Reykjanesi til að fagna sumri með smá klettaklifri.
Mér til mikilla vonbrigða hefur einhver tekið sig til og boltað toppankeri yfir tvær af bestu leiðunum. Nú er ég ekki mikill öfgamaður, hvorgi með né á móti boltun, en þarna á hún engan vegin rétt á sér. 7 stórir múrboltar settir í stórar stein nibbur sem þræl passa fyrir slinga. Auk þess er illa gengið frá boltum og þeir eru engum nýtilegir nema að menn komi sjálfir með augu og rær með sér.
Veit að ég er væntanlega ekki að skammast út í rétta mannskapin en langaði bara að koma þessu á framfæri. Hvet alla til að vera almennt vakandi fyrir góðri umgengni á klifursvæðunum okkar. Einnig að vanda til verka þegar menn eru að bolta. Mér finnst að minnsta kosti tveir snyrtilegir boltar, vel frágengnir með keðju á milli, í slétta klöpp sem býður ekki upp neinar aðrar trygginar vera allt annað mál heldur en illa frágengin hrúga af múrboltum.
22. apríl, 2006 at 23:54 #50476Freyr IngiParticipantja svei!
Hvar eru annars Snorrastaðatjarnir?
Vogunum??
F.
26. apríl, 2006 at 12:53 #504770702892889MeðlimurEn hvernig kemst maður að háabjallanum núna, er ekki búið að grafa allt í tætlur þar sem gamli afleggjarinn inn að snorrastaðatjörnum var?
26. apríl, 2006 at 14:31 #504781210853809MeðlimurTu ert væntanlega ad tala um leidina med gamla vininum og eina tarna vid hlidina. Tad hefur allavega ekki verid vandamal med toppankeri tarna adur og buid ad klifra tarna i tonokkur ar. Kannski hægt ad bolta toppankeri vid adrar ledir eda bolta leidir tarna, hver veit ?!?
kv. Josef -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.