Home › Umræður › Umræður › Athugasemdir › Athugasemdir um nýju heimasíðuna
- This topic has 13 replies, 8 voices, and was last updated 9 years, 2 months síðan by
Sissi.
-
HöfundurSvör
-
27. september, 2015 at 08:18 #58664
Helgi Egilsson
KeymasterLegg til að athugasemdir um nýju heimasíðuna komi fram hér í einum þræði. Vonandi líkar ykkur vel, en endilega bendið á tillögur að úrbótum og spyrjið ef eitthvað vefst fyrir ykkur!
1. október, 2015 at 09:09 #58691Skabbi
ParticipantHæ
Til hamingju með nýja síðu, við fyrstu sýn virðist hún vera öll hin glæsilegasta!
Ég fékk einhverja villumeldingu varðandi „vafrakökur“ þegar ég reyndi að logga mig inn. Það er allt rétt stillt hjá mér þannig að ég veit ekki hvað veldur. Endaði á að breyta lykilorðinu mínu (sem var tímabært hvort eð er), þá gekk þetta smurt.
Nú vonar maður bara að hér kvikni líf að nýju!
Skabbi
1. október, 2015 at 09:39 #586921908803629
ParticipantFálkaorðuna á stjórnarmeðlimi Ísalp! Frábært framtak 😀
1. október, 2015 at 10:03 #58693Skabbi
ParticipantHæ
Það virðist sem fullt nafn og mynd hafi ekki skilað sér yfir á nýju síðuna af þeirri gömlu. Til þess að skrifa pósta undir nafni þarf að fara í flipann efst til hægri á síðunni og „breyta upplýsingum um mig“. Einfalt!
Skabbi
1. október, 2015 at 10:15 #58694Ágúst Þór Gunnlaugsson
ParticipantGlæsilegt! Til hamingju ÍSALP!!!
Ági
1. október, 2015 at 10:24 #58695Ragnar Heiðar Þrastarson
ParticipantFrábært! Til hamingju allir Ísalparar.
1. október, 2015 at 10:37 #58696Ágúst Þór Gunnlaugsson
ParticipantÆtla að setja inn nokkrar „nýjar leiðir“. Hvernig ber maður sig að í þeim efnum?
1. október, 2015 at 10:58 #58697Rakel Ósk Snorradóttir
ParticipantVei til lukku.
Líkt og Ági er ég einnig með nokkrar leiðir til skráninga en hafði samband við Ottó sem sagði að hver sem er getur ekki skráð en það verður kannski opnað fyrir það í framtíðinni. Svona ef fleiri eru að spá í þessu.Annars er þetta flott og skemmtileg síða. Fæ samt alltaf villumeldingu þegar ég reyni að innskrá mig í tölvunni minni en hún virkar í símanum.
-
This reply was modified 9 years, 4 months síðan by
Rakel Ósk Snorradóttir.
1. október, 2015 at 11:00 #58699Sissi
ModeratorGeggjuð síða, til hamingju.
Fæ líka þetta vafrakökudæmi.
Annað, getur verið að það sé eitthvað bras með að komast inn erlendis frá? Halli G. í Sviss fær:
„Forbidden
You don’t have permission to access / on this server.
Additionally, a 403 Forbidden error was encountered while trying to use an ErrorDocument to handle the request.“-
This reply was modified 9 years, 4 months síðan by
Sissi.
2. október, 2015 at 11:58 #58747Skabbi
ParticipantHæ
Ég er á því að skráning leiða verði að vera öllum opin til þess að vefurinn geti gegnt sínu hlutverki. Enn er slatti af leiðum hér og þar um landið sem menn eiga eftir að skrá, og vonandi bætast nýjar leiðir við í vetur.
Skabbi
4. október, 2015 at 21:23 #58752Sissi
ModeratorEru týnd 2 ár af þráðum, t.d. inni á Almennt efnisflokknum?
23. desember, 2015 at 22:28 #59311Sissi
ModeratorDetta ekki allar umræður inn í „Nýjustu umræður“ á forsíðunni? T.d. almennt, keypt og selt og Skíði og bretti?
24. desember, 2015 at 11:19 #59317Þorsteinn Cameron
KeymasterÞað eiga allar umræður að detta inn, hefurðu tekið eftir að eitthvað vanti?
Og já, við vitum að það vantar 2 ár inn. Það varð því miður að velja að taka annaðhvort allt efnið af báðum databaseum sem lágu fyrir eða einungis eldra. Ef við tókum bæði þá tvöfaldaðist Userpoolið og við það brenglaðist allt forumið. Úr varð þessi ákvörðun. Til hefur staðið að reposta því litla efni sem vantar í nýja þræði sem pure text. Hvað finnst ykkur um þá lausn?
Skráning leiða er nú opin á alla notendur.
27. desember, 2015 at 00:11 #59330Sissi
ModeratorJá, sýndist þessir flokkar sem ég nefndi hér að ofan ekki detta inn.
Það væri eflaust skárra að ná þessu inn sem text en engu, sérstaklega varðandi nýjar leiðir og slíkt. Þið þekkið væntanlega best hvað er mögulegt í þessum efnum.
-
This reply was modified 9 years, 4 months síðan by
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.