- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
4. desember, 2009 at 10:40 #47582BjörkParticipant
hæhæ
Höfum dreift eitthvað af ritum til félaga sem verða á vegi stjórnar.Ársritin fara annars í póst í dag.
Það eru eflaust margir með vitlaust skráð heimilisfang í prófílnum sínum og þ.a.l. fá ritið sent á vitlaust heimilisfang. Sá póstur endar aftur hjá okkur.Hvet fólk til að fara yfir þetta hjá sér og ef það er með vitlaust skráð heimilsfang og er að bíða eftir riti að láta mig vita.
bjorkh(at)gmail.com
kv. Björk
4. desember, 2009 at 10:47 #548550808794749MeðlimurOg ekki má gleyma félagsskírteinum sem finna má inni í ársritinu ásamt auka glaðning!
Lesa má allt um þá afslætti sem félagsmönnum bjóðast hér.
Séu einhverjir aðilar þarna úti sem vilja bætast í hóp þeirra sem bjóða okkur afslátt, þá endilega hafið samband við stjórn.
4. desember, 2009 at 11:43 #548562806763069MeðlimurVantar inn aflætti á námskeið fyrir Ísalp félaga – sem reyndar borga ansi fljótt upp árgjaldið fyrir þá sem nýta sér það.
Varð annars á vegi stjórar í gær – og þeir sem enn bíða eftir sínu ársriti hafa virkilega eitthvað að hlakka til.
kv. Ívar
7. desember, 2009 at 13:02 #54861Ragnar Heiðar ÞrastarsonParticipantVill nota tækifærið og hrósa ritnefnd og stjórn fyrir frábært ársrit…nice one. Og ekki skemmir glaðningurinn. Það liggur við að maður kaupa sér jeppa utan um gluggalímmiðann
8. desember, 2009 at 13:20 #548631908803629ParticipantÉg tek undir það. Frábært ársrit sem heldur bara áfram að batna.
Hvet menn að hætta að spá í snjó- og ísalögum í 2 mínútur og pósta inn tveimum setningum um hvað ritnefndin er að gera frábæra hluti – hún á það skilið fyrir óeigingjarnt starf.
8. desember, 2009 at 16:33 #548640111823999MeðlimurÓtrúlega flott ársrit og greinilega mikil vinna sem liggur þarna á bak við!
Húrra fyrir frábærri ritnefnd
Hlakka til að líma límmiðann á bílinnÞúsund þakkir
8. desember, 2009 at 20:28 #548652806763069MeðlimurHelga, ég er ekki viss um á blátt og appelsínugult fari vel saman!
8. desember, 2009 at 22:25 #548670304724629MeðlimurHvenær megum við landsbyggðarmenn og konur eiga von á herlegheitunum inn um lúguna?
8. desember, 2009 at 22:51 #548680111823999MeðlimurÉg held að það passi vel saman, en annars sprauta ég bara bílinn upp á nýtt svo hann lúkki við límmiðann
8. desember, 2009 at 23:14 #54869Anna GudbjortMeðlimurHelga: Appelsínan verður ALDREI sprautuð! Ef einvher svo mikið sem reynir það þá mynda ég human-chain utan um hana, fer í hungurverkfall og hringi í Sölva Tryggva!
…bíð eftir að fá mitt eintak í hendurnar en það sem ég hef séð hingað til lofar mjög góðu.
8. desember, 2009 at 23:59 #548700808794749MeðlimurÁrsritin fóru í póst á föstudag þannig að þau ættu að fara týnast inn til fólks.
Það verður að viðurkennast að nokkrir fengu heimsendingu en það er bara af því þeir áttu heima í næsta húsi við stjórnarmann eða unnu í sama húsi.
Reyndar átti sér stað leynilegur fundur á bílastæðinu í Hlíðarfjalli um helgina þar sem fulltrúi ÍSALP félaga á Akureyri fékk í hendurnar flest þau eintök sem tilheyrðu bæjarbúum. Er hann væntanlega búinn að dreifa þeim um bæjarfélagið, aðrir geta leitað á náðir lögreglunnar á Akureyri.9. desember, 2009 at 15:44 #548800304724629MeðlimurÞað sem fer í póst á föstudegi er borið út á mánudegi. Ertu viss um að þetta hafi verið sent af stað??? Maður er orðinn svo svaka spenntur.
rok
9. desember, 2009 at 15:58 #54881BjörkParticipantobbosí Rúnar.
Það kom víst ekkert heimilisfang á umslagið þitt úr prentun, það voru nokkur svoleiðis, svo þitt fór í póst í dag. Þykir það mjög leiðinlegt þar sem að þú ert svo rosalega spenntur.
Ef það væri kvöldflug til Ísafjarðar þá myndi ég fara og henda einu með vélinni.Minni alla á að uppfæra prófílinn sinn þannig að þær upplýsingar sem þar eru séu réttar.
9. desember, 2009 at 16:03 #54882SissiModeratorÞað verður ekki siglt á Ísafjörð fyrr en í vor, bilaði skipið.
9. desember, 2009 at 21:05 #548852412825119MeðlimurÉg fékk mitt delivered í vinnuna:) Flott rit, takk fyrir það. Var ekki lengi að ramma ísalp merkið inní rauða poloinn.
9. desember, 2009 at 21:31 #54886Páll SveinssonParticipantÉg er nú orðin frekar spenntur.
Bíð við lúguna á hverjum degi.kv.
Palli10. desember, 2009 at 09:44 #54888SmáriParticipantBúinn að vera að bíða spenntur en var að fatta að heimilisfangið var ekki skráð á síðunni, búinn að laga það og bíð nú enn spenntari.
kv. Smári
12. desember, 2009 at 17:45 #548962607862539Meðlimurvirkilega flott ársrit megið vera stolt af þessu.
13. desember, 2009 at 11:14 #54898Steinar Sig.MeðlimurFrábært ársrit. Ég las það næstum því spjaldana á milli fyrsta kvöldið eftir að ég fékk það.
kv.
Steinar14. desember, 2009 at 11:32 #54900SkabbiParticipantHæ
Ritnefnd þakkar hlýleg orð í hennar garð. Við vonum að fólk geti haft e-ð gagn og gaman af ritinu. Það er alltaf gaman að fá feeback frá lesendum, bæði klapp á bakið og ábendingar um það sem betur má fara eða hugmyndir að efni í næsta rit.
Nú sem endranær bendum við á að uppistaðan af ársritinu er innsent efni frá félögum í klúbbnum. Það er því full ástæða til að hvetja menn áfram í þeim efnum.
Allez!
Skabbi
15. desember, 2009 at 00:59 #54901bjarnifrimannMeðlimurAlvöru ársrit. Ég las það í döðlur um leið og það kom inn um lúguna.
17. desember, 2009 at 00:22 #549052808714359Meðlimurhreint út sagt frábært blað.
kv.
Jón H17. desember, 2009 at 00:33 #549062502835399MeðlimurÉg er ekki enn búin að fá mitt eintak, búin að kíkja í lúguna á hverjum degi. Samt er rétt heimilisfang skráð.
17. desember, 2009 at 18:09 #549120801667969MeðlimurEkkert heldur borist til mín. Borgaði reyndar árgjaldið ekki fyrr en 1. des. Kannski fer maður bara í Jólaköttinn!
Kv. Árni Alf.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.