Af snjóalögum í Bláfjöllum

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Af snjóalögum í Bláfjöllum

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46860
    0801667969
    Meðlimur

    Bendi gönguskíðafólki á að nú má skíða frá bílastæðinu við Ármannskála og út á heiði. Nægur snjór ef menn bara halda sig nálægt hlíðinni. Þegar komið er upp fyrir ljósastaurana og út á heiði er bara að velja sér lænu. Sem sagt engin ástæða fyrir gönguskíðafólk að væla yfir snjóleysi. Samt ekki nægur snjór til að fara með troðara með stóra sporið til að búa til tvöfalda braut. Til þess er hraunið einfaldlega of gróft. Ótrúlega mikið landslag í þessu hrauni og skemmtilegt að skíða í áður en allt verður sléttfullt af snjó.

    Af Fjallinu sjálfu er það að frétta að það er kjaftfullt af snjó meðfram snjógirðingunni frá toppi og niður í beygju í Norðurleiðinni. Ýtt var frá girðingunni í gær og nú er vel þykkur púði yfir leiðinni svo langt sem girðingin nær. Í beygjunni er verið að berja upp snjógirðingu. Með hverri spýtunni sem í hana bætist því lengra niður er samfelldur snjór. Neðan girðingar er hins vegar enginn snjór eins og við er að búast.

    Væri búið að girða skíðasvæðið að einhverju marki þá er það engin spurning í mínum huga að örstutt væri í opnun. Þó snjóframleiðslukerfi væri komið upp hefði það engan snjó framleitt nú í haust v/ hlýinda. Snjóframleiðslukerfi mun koma í Fjöllin einn góðan veðurdag. Það mun hins vegar aðeins búa til brotabrot af þeim snjó sem þarf til að hafa svæðið opið. Það besta við snjóframleiðslukerfi, að mínu mati, er að áður en menn setja slíkt upp neyðast menn til að setja upp net snjógirðinga svo fokdýr gervisnjórinn hverfi ekki.

    Kv. Árni Þvergirðingur

    P.S. Las í 24 stundum nú áðan að opið sé í Hlíðarfjalli og þar sé nægur snjór. Hins vegar sé varla snjókorn í hlíðum Bláfjalla. Ég á nú erfitt með að koma auga á hin gríðarlega snjó í Hlíðarfjalli gegnum vefmyndavélarnar og ekki get ég séð að þar sé opið fyrir almenning. Þessi frétt er talsverð skrumskæling á sannleikanum.

    #51990
    Björk
    Participant

    Er einhvers staðar hægt að fara á planka niður brekku hér á Suðurlandi? Er maður að vera of bjartsýnn?

    #51991
    3008774949
    Meðlimur

    Jamm vel hægt að skíða í Tindfjöllum…gæti verið hart en allaveganna snjór

    #51992
    0801667969
    Meðlimur

    Það er hægt að skíða frá fjallsbrún og alveg niður stöku mjóa lænu á Suðursvæðinu. Það er þunnt á en þetta er massífur harður grunnur og grjótið sést vel. Fyrir sunnan Suðursvæðið eru ágætis brekkur og talsvert meiri snjór.

    Það er spáð viltausu veðri og snjókomu núna seinni partinn. Það eru samt ekki miklar líkur á að sá snjór klæði brekkurnar að einhverju marki því vindurinn er einfaldlega alltof mikill. Nú væri gott að hafa girðingar til að fanga þann snjó.

    Kv. Árni Ofsaveður

    #51993
    0801667969
    Meðlimur

    Föstudagur 30 nóv.

    Talsvert hefur bætt í snjó s.l. sólarhring. Það gerði smá glufu í veðrið um hádegi í dag og sást aðeins upp í Fjall. Allur þessi snjór hefur pakkast í skjólsæla staði, t.d. neðri hluta Kóngsgils, Suðurgil og auðvitað í snjógirðingar. Annars staðar hefur snjó tekið úr brekkunum.

    Allir ættu að geta fundið sér brekku við hæfi til að renna sér í. Hvet menn til að kíkja í Bláfjöllin um helgina ef veður leyfir.

    Bendi mönnum sérstaklega á að skoða allan þann snjó sem safnast kringum girðingar t..d. í Norðurleiðinni.

    Vek athygli á að þessi nýi snjór sest allur ofan á hart lag og verða menn því að huga að snjóflóðahættu.

    Kv. Árni Alf.

    #51994
    0902703629
    Meðlimur

    Rétt er það, skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er enn ekki búið að opna fyrir almenningi.

    Hins vegar er vel fært á gönguskíðum, telemark- eða fjallaskíðum á eða við skíðasvæðið (með skinnum). Færið hefur hins vegar verið hart og stundum vissara að mæta í frystihúsgallanum en Goretex-fatnaði.

    Norðanáttin síðasta sólarhringinn hefur hinsvegar gull-tryggt okkur snjóhvíta fönn, svo nú er bara að skella undir sig skíðunum og bruna af stað.

    Sving,
    Kristín

    #51995
    0808794749
    Meðlimur

    nú hlítur eitthvað að fara gerast í bláfjöllum????

    #51996
    0801667969
    Meðlimur

    Ekkert svo sem hægt að kvarta yfir snjóalögum. Spáin næstu vikuna gerir ráð fyrir að enn bæti í og engin hlýindi eru sjáanleg í kortunum. Hins vegar erfiðara að spá í hvort nokkuð annað gerist.

    Kv. Árni Alf.

8 umræða - 1 til 8 (af 8)
  • You must be logged in to reply to this topic.