- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
27. mars, 2011 at 16:30 #475872806763069Meðlimur
Hæ
Hlakka til að heyra af afrekum þeirra sem áttu förin sem við skíðuðum yfir á leið okkar af Hnúk og niður Svínafellsjökulinn.
Giska á að ferðinni hafi verið heitið á Kirkjuna, er það rétt?
kv.
ÍvarP.s.
Allt lítur hrikalega vel út í Öræfunum núna, fjöllin biðja bókstaflega um að einhverjir komi með axir eða skíði og leggi fallegar línur.27. mars, 2011 at 20:53 #565392301823299MeðlimurRétt er það, 10 manns toppuðu Tindaborgina í gær með Olla í fararbroddi. Gekk eins og í sögu en það tók sinn tíma að koma öllum upp, sólarhringsferð í heildina.
Sáum skíðaförin á bakaleiðinni, ekki amalegt að nýta þetta frábæra færi.
Setjum inn nánari ferðasögu fljótlega.
27. mars, 2011 at 21:16 #56553Gummi StParticipantJá það eru flottar aðstæður
Á myndinni sést útsýnið af Tindaborginni á Hnúkinn í gær
29. mars, 2011 at 12:02 #56556Gummi StParticipantfyrir áhugasama að þá eru komnar myndir inná http://www.climbing.is úr Tindaborgarferðinni um helgina
-GFJ
29. mars, 2011 at 13:14 #56557SmáriParticipantHrikalega flottar myndir, skál fyrir ykkur.
Smári
29. mars, 2011 at 15:14 #56558Björgvin HilmarssonParticipantTöff stöff Gummi!
Þetta hefur verið eðaldagur greinilega.
29. mars, 2011 at 19:38 #56559SissiModeratorDísus þið farið alveg með mig, bæði kirkjan og þessi helv. skíðaleið eru búnar að vera á listanum alla þessa öld, þetta er skandall.
Geðveikar myndir eins og venjulega Gummi, mega næs.
Sissi
29. mars, 2011 at 20:01 #56561AnonymousInactiveMega flottar myndir hjá ykkur Gummi. Þið klikkið ekki!
Sissi nú er tækifærið að fara. Tindaborgin(Kirkjan) er í nokkuð auðveldari aðstæðum núna heldur en 2007. Við skildum eftir tvær skrúfur til að síga niður á. Eina 30m frá topp og eina á blá toppnum. Er ekki málið að nýta þær. Mundu Carpe Diem!!29. mars, 2011 at 20:04 #565620111823999MeðlimurVÓ! Flottar myndir hjá þér Gummi, Íslands-söknuðurinn gýs alveg upp!
29. mars, 2011 at 20:54 #565632806763069Meðlimur„skildum eftir tvær srkúfur“ Ég hef grátið mig í svefn í margar vikur yfir þessum ör fáu sem ég hef tapað!
29. mars, 2011 at 21:21 #56564AnonymousInactiveKlukkan var orðin svo margt og myrkur að skella á. Skrúfan sem ég skildi eftir var gamall rússi(títaníum) sem ég hafði ekki notað í meira en 17 ár þannig að það var ekki mikil eftirsjá í henni. Ég kom með hana sérstaklega til að skilja hana eftir ef maður þyrfti.
30. mars, 2011 at 00:23 #56565SissiModeratorÍvar, þú joggar nú þarna upp og sækir þessar skrúfur, þaggi? Síðan er helvíti flottur cam í Tjaldinu sem hefur komið hærra en flestir Íslendingar.
Að lokum minnist ég þess að hafa séð hvítan Fruit of the Loom bol á Hraundranga, spurning um að taka hann bara í leiðinni. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Olli – já, myndi ekki hata það!
Sissi
30. mars, 2011 at 08:16 #565662806763069MeðlimurÆ, held ég sé ekki að skokka þarna upp fyrir rússa, en bolurinn er annað mál. Hvaða stærð var hann?
30. mars, 2011 at 10:48 #56568SissiModeratorHann er medium, stórglæsilegt eintak
30. mars, 2011 at 13:15 #565691012803659ParticipantSetti inn nokkrar myndir frá Öræfajökli sem voru teknar um helgina (Skíðaleið niður svínafellsjökulinn og fleira):
https://picasaweb.google.com/gudjonbj/HnukurIISvinafellsjokull#Myndirnar eru ekki í sama klassa og hjá Gumma (maður hálf skammast sín að pósta myndum á eftir þeim). En myndirnar ættu að gera ágæta hugmynd um aðstæður á jöklinum.
Myndirnar eru samansafn frá Ívari, Sigga Skarp, Gísla Símonar og mér.
30. mars, 2011 at 13:39 #565702301823299MeðlimurFlott ferð hjá ykkur, skemmtileg myndasería og sérstaklega gaman að fá þetta sjónarhorn í sprungunum.
Aldrei að skammast sín fyrir að pósta myndum hérna þó það væri ekki nema símamyndir til að sína aðstæður
30. mars, 2011 at 13:54 #56571halli@naturalis.isMeðlimurSkrúfan sem varð eftir á toppnum var sko enginn rússi, þar stendur núna útúr klakanum sveifin á 25 cm Petzl ekki ódýrasta sort. En þessa góðu skrúfu á ég ekki lengur því Magnús sem var með okkur í för keypti hana af mér eftir að við komum í hús. Hafði verðgildið rýrnað aðeins því hann greiddi fyrir með aðeins styttri Petzl með sveif.
ööö við nánaru hugsun … sko ég hlít að hafa verið prettaður í þessum kaupum því skrúfa í toppnum á Tindaborg er örugglega rándýr er það ekki? …. hmmmm30. mars, 2011 at 14:47 #56572KarlParticipantÞað var gott að ekki var skilinn eftir eðalmálmur sem mölur og ryð fá ekki grandað!
Þeir sem halda því fram að títaníum skrúfur bíti illa er sauðirnir sem föttuðu ekki að það þarf að brýna öll eggjárn, -sam hvort þau heita skíði, skautar, sporjárn, axir eða skrúfur…..
Auðveldast er að brýna skrúfur með þrihyrndri þjöl þar sem búið er að sljóvga eitt horn þjalar á smergeli. Það tekur mínútu að brýna títaníum skrúfu en allt að 5 mín að brýna stálskrúfu. Bitið endist líka 5X lengur í stálskrúfunni.
Ný brýnda títanskrúfu má skrúfa í gegnum 2″ þykka fjöl með annari hendi.30. mars, 2011 at 15:17 #56573AnonymousInactiveKalli!
Á góðum stálskrúfum er bolurinn mikið betur unninn(þ.e. sleipari) þannig að það er minna viðnám þegar skrúfað er inn. Ég hef alla vega ekki viljað vinna mikið með títaníum skrúfur eftir að ég fór að hanga(í fetlum) á annarri hendinni við setja inn skrúfur. Það er bara seinlegra sama þó maður brýni þær vel og maður pumast meira út.30. mars, 2011 at 18:00 #565742806763069MeðlimurFyrir virði um tveggja góðra ísskrúfa (og um 20 títaníum rússa) getur Hardcore kennt ykkur v-þræðingu og önnur sniðug ísklifurtrix.
Námskeiðið heitir Ísklifur I og Hardcore mælir með því að þið mætið. Gæti sparað ykkur stórfé í framtíðinni.
kv.
Hardcore (skrásett vörumerki)P.s. Hardcore mælir ekki með titanium ísskrúfum, þær eru álíka cool púlkurnar hans Kalla.
31. mars, 2011 at 12:49 #56577SissiModeratorÞað hljóta allir góðir menn og konur að fagna því að sjá að Hardcore H. Hardcoreson er farinn að spreyja aftur á isalp.is, þá fyrst verður gaman.
Annars skil ég ekki að Kalli hafi ekki verið fyrstur til að gera þetta: http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=4069
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.