Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Aðstæður
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
27. mars, 2006 at 00:20 #46945Björgvin HilmarssonParticipant
Við Robbi kíktum í Múlafjall í dag (sunnudag) og fórum Stíganda sem var í fínum aðstæðum. Vel kertaður á kafla reyndar.
Rúntuðum svo aðeins um til að skoða aðstæður á öðrum svæðum. Það er bara slatti af ís í mörgum leiðum. Íringur virðist t.d. vera fínn, 55gráðurnar og tvíburagil eru líklega í aðstæðum og stefnt á að skoða það betur eftir vinnu á morgun. Án þess að fara neitt voðalega nálægt þá fannst okkur eins og Grafarfossin væri þó ekkert spes. En við kíktum líka á hann seinnipartinn og því var sólin búin að skína á hann allan daginn.
Það á skilst mér að vera frost alla vikuna svo ísinn hleðst vonandi upp. Gaman gaman… allir út að klifra!
27. mars, 2006 at 13:20 #50416RobbiParticipantFór engin neitt annað ? Klifraði enginn, enginn á skíðum, enginn að glápa á sjónvarpið. Halló.
Sharing is caring…maður gerir ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn !
Robbi.27. mars, 2006 at 13:52 #504172806763069MeðlimurFór austur. Hrútfellstindarnir líta vel út. Neðstu fossarnir eru reyndar morknir og lausir frá en þar fyrir ofan virðist allt vera gott. Snjóflóðahætta í lágmarki eftir því sem ég gat best séð. Mögulegt grjóthrun í sólinn svo vakna mjög snemma!
Hnjúkurinn frá Svínafellsjökli lítur mjög vel út. Reyndar er bara ís á skriðjöklinum en hægt væri að skíða alla leið niður að honum.
það er líka slatti af ís við Klaustur sem kom nokkuð á óvart. Reynar orðinn hvítur en samt sem áður líklega klifranlegur. Tilvalið svæði fyrir ykkur mix-masters!
Knoll og Tott líklega klifranlegir en vantaði smá upp á að vera tryggjanlegir (austan við Vík).
Sól og blíða á láglendi og vafalítið hægt að klifra á Hnappavöllum á meðan norðanáttinn varir.
Fátt um fína drætti neðan jökuls á Eyafjallajökli = þarf að bera skíði upp og niður.
27. mars, 2006 at 15:21 #50418SissiModeratorKlifurhúsið var í þokkalegum aðstæðum, svalir vindar léku um leiðirnar sem náðu allflestar niður.
27. mars, 2006 at 17:38 #50419Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantVar í Tindfjöllum. Hrikalega lítill snjór en við fórum á Ými á laugardegi í hörkufrosti, roki og geðveiku útsýni.
28. mars, 2006 at 10:09 #50420SkabbiParticipantKíktum tveir í Búhamra eftir vinnu, bæði í Tvíburagil og 55 gráður. Mikill ís í báðum leiðum en heldur morkinn þar sem sólin hafði skinið á ísinn allan daginn. Þó mátti finna línur í báðum leiðum sem ekki snéru beint upp í sólina og voru vel klifranlegar. Hugsanlega eru aðstæður betri snemma dags.
Vel ferðarinnar virði, myndir síðar.
Skabbi
28. mars, 2006 at 16:11 #504210310783509MeðlimurJá fór í bíltúr til Calgary framhjá Banff og Canmore. Sea of wapors er að komast í aðstæður og Professor falls er í góðum enn vantar nokkuð upp á Terminator að komast í aðstæður, klifruðum Weeping wall fyrir nokkru… Pilsner, Carlsberg, Heineken, Guinnes og Stout eru allir inni ætlum að líta þangað eftir nokkra skíðadaga. Mig langaði annars bara að vera memm.
Kveðja heim
Einar Ísfeld28. mars, 2006 at 16:56 #504220704685149MeðlimurHér á Norðurlandi hefur snjóað í 6 daga.
kv
Bassi30. mars, 2006 at 09:48 #50423SkabbiParticipantHér eru svo myndirnar hans Bjögga úr Búhömrum síðastliðin mánudag:
http://www.vonlausa.org/gallery/view_album.php?set_albumName=album50
Cherio
ska
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.