Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Aðstæður
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
4. mars, 2009 at 20:25 #468542906883379Meðlimur
Sæl og blessuð
Veit einhver hvernig aðstæður eru í Vesturbrúnunum og Búhömrunum? Eða bara svona yfir höfuð hérna í kring um höfuðstaðinn?
kv. Daði Snær
5. mars, 2009 at 10:19 #538682806763069MeðlimurÓk fram hjá á mánudag og sá ekki bettur en að það væri ís í tvíbba gilinu. Öðru tók ég ekki eftir sem bendir til að það hafi ekki verið ís þar þá.
Annars ætti varla að vera neitt mál að finna klifranlegan ís núna, það er jú vetur!
Góða skemmtun!
kv.
SoftarinnP.s. Það var hvít lína upp Anabasis, ekki ólíklegt að hægt væri að eiga góðan dag þar. Reyndi einnig að horfa upp í NV-Veggin á Skessuhorninu en gat ekki ákveðið hvort ég væri að horfa á snjó eða ís þar (það snjóaði töluvert nóttina áður).
6. mars, 2009 at 16:38 #538692806763069MeðlimurTékkaði á Tvíbbagili í dag ásamt Viðari. Mikill ís yfir Himinn og haf. Einnig yfir Ólympíska sem við þó klifruðum. Einginn ís í þeim hlíðum sem snúa út úr gilinu. Ísinn annars orðinn nokkuð sólbakaður, en hverjum er ekki sama ef allar tryggingar eru boltar!
Kv.
Hardcore7. mars, 2009 at 17:17 #538702806763069MeðlimurGreinilega eini maðurinn sem enn er að klifra, ásamt Viðari auðvitað.
Við Viðar fórum semsagt í Anabasis í dag. Líklega eru aðstæður fínar en þessi leið verður að teljast með þeim mest uppskúfuðu sem ég hef farið. Hefði reyndar átt að vita það enda ekki í fyrsta skipti sem ég fer téða leið, en alveg örugglega það síðasta.
Anabasis fær eina stjörnu, og það er bara af því að skalinn nær ekki neðar!
Kv.
Hardcore8. mars, 2009 at 22:05 #53871Gummi StParticipantvið fórum í glymsgil á lau. þar var mjög þunnar aðstæður og komumst við ekki inn gilið, fórum bara krók sem var alveg klifranlegur en ekki feitur… múlinn leit hinsvegar vel út..
kv. Gummi St.
9. mars, 2009 at 10:26 #538722210803279MeðlimurFórum tveir í Spora á sunnudag í góðum aðstæðum, logn og næs þangað til maður var kominn uppfyrir brúnina.
kv. Stefán Þ.
9. mars, 2009 at 17:21 #53873Freyr IngiParticipantVar á Snæfellsnesi um helgina og þar eru löðrandi aðstæður!!
SÆLL!!
Freysi
9. mars, 2009 at 17:46 #53874Björgvin HilmarssonParticipantHvar varstu á Snæfellsnesi Freysi? Varstu bara að góna eða klifraðir þú eitthvað? Var að frétta frá amatör að það væri mikið af ís en væri fínt að fá það staðfest.
9. mars, 2009 at 19:35 #53875Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantSkrapp í Gilligil(Gilið ofan við bæin Gil á Kjalarnesi) með einn nýgræðing í sportinu. 35 m/s í hviðum á Kjalarnesi bauð ekki upp á nein afrek i Búhömrum. Ágætis aðstæður í gilinu. Keyrði svo Kjósarskarðið og þar vantaði ekki ísinn.
Ági
9. mars, 2009 at 19:49 #53876Freyr IngiParticipantÞað var sem sagt fjallamennskunámskeið á Gufuskálum þarna um helgina og þar voru klifnar nokkrar leiðir í Búlandshöfða. Einnig ein blaut leið í skál einni sem var örlítið austar (2min akstur).
Svo sá ég faallegar bláar línur neðan af vegi í Mýrarhyrnunni.
Þannig að já! Það er staðfest!
Freysi
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.