8 farast í snjóflóði á Mont Blanc

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur 8 farast í snjóflóði á Mont Blanc

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46366
    2008633059
    Meðlimur

    http://afp.google.com/article/ALeqM5jW5ATPLFRrRKkHVTBAPjzTHh7bFQ

    Það fer óneitanlega smá hrollur um mann við að lesa þetta, sérstaklega eftir að hafa farið þessa sömu leið fyrr í sumar!
    En þetta slys varð í fyrstu brekkunni eftir að komið er yfir jökulinn neðan við Cosmiques-skálann á „3ja fjalla traversuni“, Mont Blanc du Tacul – Mont Maudit – Mont Blanc.

    kv,
    JLB

    #53027
    Gummi St
    Participant

    já, þetta er hrikalegt.. sá þetta alltíeinu á mbl.is

    #53028
    Björk
    Participant

    Fimmmenningarnir, Árni Þór, Ási, Danni G, Arnar og Trausti, úr HSSR fóru á fjallið á sama tíma. Ákváðu að fara aðra leið og komust á toppinn. Veðrið er búið að vera skítt síðastliðna viku og reyndur þeir við þessa leið á föstudaginn en snéru við vegna snjóflóðahættu.

    #53029

    Láta ekki slá sig útaf laginu strákarnir, halda rakleitt áfram… sem er gott:

    http://visir.is/article/20080825/FRETTIR01/994589182

    #53030
    Jokull
    Meðlimur

    Átti leið um þessa ágætu brekku nokkrum sinnum í sumar bæði á upp og niður leið. Þetta er þriðja stóra íshrunið í sumar á sama stað og rétt að taka það fram að þetta var (serac) ís hrun sem síðan setti af stað snjóin fyrir neðan.

    Í fyrsta hruninu fórust að ég held tveir en enginn í annað skiptið. Það var frekar athyglisvert í sumar að fylgjast með fólki borða nestið sitt sitjandi á ískápsstórum ísstykkjum í neðrihluta brekkunnar á meðan maður hljóp framhjá dragandi sína gesti eins hratt og fæturnir báru mann.

    Ástæðan fyrir þessu hruni er bráðnun jöklanna á svæðinu sem er gríðarlega hröð og þess valdandi að ísbrekkurnar eru að verða brattari með meira íshruni. Þetta á við báðar stóru brekkurnar á Troi Mt Blanc leiðinni á Tacul og Maudit.

    Þess má að lokum geta að Íslandsvinurinn og fjallaleiðsögumaðurinn Gregory Facon átti þarna leið um rétt fyrir hrunið.

    Hér í Skíðadal er fyrsti snjórinn fallinn og fjöllin hvít niður í 1100m……

    Fjallakveðja

    Jökull Bergmann
    UIAGM Fjallaleiðsögumaður

    #53031

    Meira um strákana ef þið hafið misst af þessu: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/08/27/af_mont_blanc_a_matterhorn/

    #53032

    Tad voru enn ad falla ishlunkar ad falla tarna nidur brekkuna i gaer. Saum einn mola a staerd vid gott hjolhysi sem hrundi nidur brekkuna og endadi beint undir Tacul Triangle.
    I gaermorgun voru leidsogumenn ad fara upp brekkuna i „konnunarleidangur“ med kunna. Annars var Cosmiques Arête fjandi fin i gaer.

    Kv. Agust og Atli , ekki med summit fever.

    #53033
    0703784699
    Meðlimur

    Matterhorn er ekki hæsta fjall Sviss, einungis 4478m síðast þegar ég tékkaði….lélega blaðamennska þetta,

    Óska strákunum góðs gengis og endilega kíkja við á The North Wall Bar…..

    Gimp

8 umræða - 1 til 8 (af 8)
  • You must be logged in to reply to this topic.