Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
2. nóvember, 2011 at 22:01 #475350503664729Participant
Tíðindi úr klifurheiminum.
Valdimar Björnsson náði að klifra leiðina Darwin dixit áðan (sector laboratori í Margalef).
Hann er þar með fyrsti Íslendingurinn til að klifra 8b+ eða 5.14.a.
Valdi kláraði leiðina eftir 8 daga vinnslu (tveir dagar í fyrra og sex núna).Til hamingju Valdi. Njóttu lífsins á Spáni. Þú ert snillingur!
Kveðjur úr snjókomunni í Finnmörku
JVS2. nóvember, 2011 at 22:18 #569962109803509MeðlimurGlæsilegt!!! Innilega til hamingju með árangurinn Valdi.
Afreksíþróttamaður hér á ferðbestu kveðjur,
Berglind, Arnar og Katla María2. nóvember, 2011 at 23:01 #56997SmáriParticipantGlæsilegt Valdi, til hamingju!
Smári
3. nóvember, 2011 at 08:34 #570052806763069MeðlimurGlæsilegt!
3. nóvember, 2011 at 08:42 #57006gulliParticipantFlottur Valdi, til hamingju! Hvaða leið er svo næst?
3. nóvember, 2011 at 11:12 #57008Arni StefanKeymasterTil hamingju Valdi!
3. nóvember, 2011 at 16:23 #57011Siggi TommiParticipantMagnað og já loksins…
Til hamingju Waldorf og haltu áfram á sömu braut!3. nóvember, 2011 at 16:52 #570120808794749MeðlimurFáránlega vel gert Valdi. Hlakka til að heyra og sjá eitthvað af þessari leið og uppferð þinni.
3. nóvember, 2011 at 16:59 #57013Björgvin HilmarssonParticipantVá! Þetta er rosalegt, gráða sem maður eiginlega skilur ekki. Til hamingju með þetta kappi.
3. nóvember, 2011 at 21:30 #570161210853809MeðlimurFrábær árangur hjá Valda!
Í raun löngu tímabært miðað við árangur síðustu ára (4*8b o.s.fv.). Hann heldur ótrauður áfram og næst leggur hann Sviss undir fót (og hönd).Fagna umræðum og fréttum af afrekum í klettaklifri!
3. nóvember, 2011 at 22:43 #570172802693959MeðlimurMátti til að kíkja á Youtube og sá einhvern Thomas Schmi…rja sig þarna upp. Tek að ofan fyrir þér Valdi og er … flabbergasteraður!
kveðja til Spánar
Jón Gauti15. nóvember, 2011 at 18:45 #57042SissiModeratorValdi á forsíðunni á 8a.nu (listinn vinstra megin). Geðveikt!
21. nóvember, 2011 at 14:24 #57047ABParticipantEins og Sissi benti á klifraði Valdi eina 8A (V11) grjótglímu um daginn. Nú bætti hann um betur og fór leiðina Freak Brothers 8A+ (V12) í Chironico í Sviss. Þetta er erfiðasta grjótglímuleið sem Íslendingur hefur klifrað.
Fyrir þá sem ekki eru talnaglöggir þá eru grjótglímur af gráðunni 8A ógeðslega erfiðar og 8A+ leiðir eru fáránlega ógeðslega erfiðar.
Kveðja,
AB -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.