- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
14. ágúst, 2008 at 05:39 #472122502614709Participant
10 tindar. Það hefur verið að gerjast hjá mér hugmynd útfrá umræðum um uppáhaldsfjall að sniðugt væri að setja saman lista yfir skemmtileg fjöll.
Áskoranir sem allir Ísalparar ættu að taka – klassík. Bara svona til að hafa eitthvað að gera og til að hjálpa fólki og hvetja til dáða. Hvað finnst mönnum. Svo væri hægt að halda áfram og búa til topp 10 klifur- og ísklifurleiðir. Er andvaka og óska eftir jákvæðri umræðu!1. Hvannadalshnjúkur
2. Hrútsfjallstindar
3. Þverfellshorn
4. Skarðatindur
5. Herðubreið
6. Þumall
7. Hraundrangi
8.
9.
10.14. ágúst, 2008 at 05:47 #529902502614709ParticipantSorry risastór mistök nr. 3 á að vera Þverártindsegg. Greinilega ekki nógu andvaka!
14. ágúst, 2008 at 09:01 #52991Siggi TommiParticipantKlárlega þarf Skessuhorn að fara hátt á þennan lista
14. ágúst, 2008 at 09:07 #529921606805639MeðlimurGóð hugmynd Ingvar. Spurning um að setja Tindinn/Einbúa í Tindfjöllum inn
14. ágúst, 2008 at 11:43 #529932806763069MeðlimurEinnig Eyafjalljökul
14. ágúst, 2008 at 12:01 #52994SissiModeratorÞað eru flestar leiðir sem ég hef farið á Esjuna flottari en Þverfellshorn, finnst ykkur að það ætti kannski að vera Kistufellshorn eða Hátindur frekar?
Annars er fjall sem mér dettur í hug, kannski soldið búðingafjall, en stendur hátt upp, er svipmikið, frábært útsýni og fyrirtaks skíðabrekka – Hekla. Hvað finnst ykkur?
Svo er nú mikið af gæjalegu dóti fyrir norðan og eitthvað fyrir austan líka sem má ekki gleyma alveg…
Hils,
Sissi14. ágúst, 2008 at 12:34 #529952502614709ParticipantJá það vantar meira fyrir norðan og austan, ítreka að Þverfellshorn átti að vera Þverártindsegg… ég vil fá fleiri ábendingar og vonandi samstöðu um topp 10. Ég veit ekki með Eyjafjallajökul – frekar Tindfjöll er það ekki… Eitthvað á Vestfjörðum? ef þetta á að vera hvatning. Hvað með Búrfellshyrnu (Ormapartý, ofl) ?
14. ágúst, 2008 at 12:51 #529962902725569MeðlimurDýjafjallshnjúkur væri verðugur fulltrúi norðursins.
Svo mætti athuga að setja uppgöngu á þessa 10 tinda sem inngönguskilyrði í klúbbinn.14. ágúst, 2008 at 12:55 #529971606805639MeðlimurKerling í Eyjafirði? Auðveld ganga svosem en hæsta fjall við byggð norðan heiða
14. ágúst, 2008 at 18:42 #52998Gummi StParticipantFlott hugmynd,
ég hef aðeins verið að þvælast undanfarið og þeir eftirminnilegustu sem þú taldir ekki upp af minni hálfu væru
Lambatindur á ströndum
Dyrfjöll Borgarf. eystri
Birnudalstindur suðursveit
Skessuhorn Borgarf vestari
Eyjafjallajökull suðurland
Tindfjöll suðurland
Kirkjufell snæfellsnesi
Hlöðufell línuvegi
Loðmundur Kerlingarfjöllum
Stöng Berufirði
Snæfell Fljótsdalshérað
Arnarfell, Hofsjöklisvo það sem mér dettur í hug en vegna leti á ég eftir að fara á
Kverkfjöll, báðu megin
Hnapparnir
Tröllakirkja
Hamarinn vatnajökli
Þorvaldstindur
Hásteinar Hofsjökli
Eiríksjökull
Hrútfell
Grendill Goðahnjúkum
Tungnafellsjökulljæja… ég fæ samviskubit um hvað ég á mikið eftir ef ég tel meira upp…
en það er nú samt gott að þú hugsar eitthvað af viti þegar þú getur ekki sofið.. hehe
14. ágúst, 2008 at 23:42 #529992502614709Participant1. Hvannadalshnjúkur
2. Hrútsfjallstindar
3. Þverártindsegg
4. Skarðatindur
5. Herðubreið
6. Þumall
7. Hraundrangi
8. Skessuhorn
9. Tindfjöll
10. DyrfjöllKannski ætti frekar að vera eitthvað fyrir westan í staðinn fyrir Tindfjöll eða Dýjafjallshnúkur. Mér finnst þetta vera glæsilegur listi. Flestum finnst ganga á Snæfell tilkomumeiri en Herðubreiðarganga en þarf drottningin ekki að vera þarna… En gaman fullt af góðum fjöllum nefnt. Þetta er náttúrulega til gamans gert og hverjum þykir sinn fugl fagur en því fleiri sem leggja e-h til málanna því betri niður- og samstaða….. Ívari fannst Skarðatindur of erfitt en það er unnt að fara mismunandi leiðir og þetta á að vera áskorun……
15. ágúst, 2008 at 11:25 #53000Björgvin HilmarssonParticipantHAHAHA, þetta er nú farið að minna á einhverja útjaskaða byggðapólitík… hver reynir að koma sínum landshluta að eins og það sé eitthvað aðalatriði.
Er ekki málið að skilgreina almennilega hvers konar lista er verið að reyna að ná fram áður en menn fara að setja saman fullt af listum sem eiga fátt sameiginleg annað en að innihalda nöfn á misháum hólum og hæðum? Er þetta bjútí-, hardcore- eða skemmtikeppni?
Ég bara spyr
15. ágúst, 2008 at 11:37 #530012502614709ParticipantÞetta er bjútí- hardcore- skemmtikeppni. Klúbburinn hefur staðið fyrir ferðum á Þverártindsegg, Hrútsfjallstinda, Tindfjöll, Þumal, Hraundranga og Skessuhorn. Þannig að það hefur verið til vísir að þessu. Spurning hvort það sé hægt að búa til topp 10 lista eitthvað sem allir ættu að reyna að stefna á ? Eitthvað sem væri hægt að kalla klassík og hafa það á einum lista til að hvetja menn til dáða.
15. ágúst, 2008 at 11:55 #530021908803629ParticipantÞetta er snilldarhugmynd og hvetjandi. Ánægjulegt að lummulega hugmynd mín að uppáhaldsfjalli varð að einhverju alvöru.
Annars hef ég ekkert við hann að bæta enda flennigóður listi… og hef nú skýrari sýn á hvert á að stefna. Takk.
15. ágúst, 2008 at 12:12 #53003Björgvin HilmarssonParticipantJá ég er líka sammála… gott framtak. Einhver minnstist á Snæfell. Eiginlega finnst mér eitthvað vanta ef það er ekki á listanum. Það er hátt, ekki mjög hardcore, en afa mikið bjútí auk þess að veita gríðargott útsýni til allra átta, yfir jökla, niður á vötn og sjó, yfir stærstu mistök okkar íslendinga, inn á hálendi og áfram mætti telja. Spurning um topp 11
15. ágúst, 2008 at 14:09 #530042008633059MeðlimurÁgæt hugmynd en kannski mætti útfæra þetta þannig að listinn nái yfir „klassískar leiðir“ en ekki bara klassísk fjöll? Dæmi: Skessuhorn – NA-hryggur (vetur), Hvannadalshnjúkur – Virkisjökulsleið (sumar og vetur). Þessar leiðir þurfa að vera smá „challenge“ og krefjist lágmarks búnaðar, en samt að vera á allra færi. Jafnvel kæmi til greina að hugsa upp nýjar og áhugaverðar leiðir á þekkt og minna þekkt fjöll. Þannig væri fókusinn frekar á leiðina en á fjallið sjálft. Svona listi hlýtur að vera mjög dýnamískur og kalla á reglulega endurskoðun. Hugsanlega gæti stjórn klúbbsins birt árlega nýjan lista sem áskorun fyrir félagsmenn og hvatt til þess að menn sendu inn myndir/frásögn af leiðunum. Til að virða alla landsbyggðapólitík þyrfti í framhaldinu að taka saman lista yfir verðug viðfangsefni í hverjum landshluta.
kv,
JLB15. ágúst, 2008 at 17:12 #530052502614709ParticipantJá það eru fleiri en ein leið uppá flest af þessu – Skarðatindur t.d. líklega það erfiðasta á listanum – menn velja bara leið eftir getu.
En þetta þarf að vera „Challenge“. Líklega ætti Snæfell að vera þarna – hæsta fjall utan jökla o.s.frv. Ég setti Dyrfjöll þarna af því að ég veit hann er „torkleifur“. Í raun ætti þetta að vera 10 erfiðustu fjöllin. Annars hef ég nú bara farið helminginn af þessu…18. ágúst, 2008 at 10:48 #53006Siggi TommiParticipantKlárlega setja inn Snæfell í staðinn fyrir Skarðatind.
Skarðatindur er orðinn svolítið „niche“ þó hann sé flottur og allt það.Annars er pínu dularfullt að hafa Tindfjöll sem „fjall“ þar sem þetta er jú samsafn af mismerkilegum tindum. Veit ekki alveg hvernig ætti að tækla það.
18. ágúst, 2008 at 11:02 #53007Gummi StParticipantGætir sett „Tindfjöll – Ýmir og Ýma“ ?
19. ágúst, 2008 at 15:54 #530082502614709ParticipantJá þetta er búið að vera fínt- var samt að vonast eftir breiðari umræðu og von um að einhverjir gamlingjar kæmu með eitthvað … Skaraðtindur niche fletti þessu upp en skildi það samt ekki. Fékk í magann yfir leiðinni sem Ívar fór – svo er einhver lengri leið til ….Gaman að hafa erfitt allir þurfa ekki að geta Allt. En Snæfell ætti að vera þarna – kannski taka Tindfjöll út? Annars er ekkert endanlegt í þessu og svona er náttúrulega til skemmtunar en ekki einhver endanlegur sannleikur. Hvað með Kirkjufell? … 9 Snæfell 10 Kirkjufell…
19. ágúst, 2008 at 17:49 #530092008633059MeðlimurÞarf ekki að skilgreina aðeins betur þennan topp 10 lista og tilgang hans? Ákveða fyrst hvernig á að velja fjöll á hann áður en beðið er um tilnefningar. Hvað segja menn annars um þetta, til hver er svona listi og hvernig á að velja fjöllin á hann?
Ein hugmynd væri að hafa þar bara „tæknileg fjöll“, tinda þar sem allar leiðir upp eru torfærar nema hafa einhverja þekkingu, líkamlegt form og/eða búnað. Hraundrangi og Þumall væru á listanum því ég býst við að flestir vilji nota línu og tryggja þar. Jafnvel að fara ekki upp nema með einhverjum reyndari. En hvað með Hnjúkinn, vissulega er betra að hafa brodda undir iljum og exi í hendi en hæsta fjall landsins getur varla talist mjög „tæknilegt“, í það minnsta ekki normal leiðir þar upp? Það er líka spurning hvort við svona val eigi að leggja til grundvallar alveg hlutlæga mælikvarða (t.d. hæð yfir sjó), hálf hlutlæga (t.d. tæknilegur/líkamlegur erfiðleikastuðull) eða þá bara eitthvað algjörlega huglægt („skemmtileg“, „falleg“ eða „eftirminnileg“ fjöll)?
19. ágúst, 2008 at 21:59 #530102502614709ParticipantFlest erum við með einhvern lista í kollinum fjöll sem við ætlum að klifra/ganga á. Esjan er fín en kemst ekki á listann þetta á að vera smá áskorun. og já helst tæknilegt – hér eftir fer ég aldrei línulaus á Hvannadalshnjúk t.d. eins og maður gerði í „gamla Daga“. Hraundrangi og Þumall eru meira brölt en klifur og þurfa að vera á listanum – þetta er ekki ferðafélagið heldur Ísalp. Ég held að einfaldasta skilgreining ætti að vera 10 erfiðustu tindar á landinu – topp 10. Kannski er bara bull að vera að standa í þessu! En ég held samt þetta geti verið fínt ef við tökum því ekki of alvarlega – spennandi að sjá t.d. topp 10 klifur og ísklifurleiðirnar – jafnvel 10 byggingar í Reykjavík fái að fljóta með…
20. ágúst, 2008 at 01:49 #530111704704009MeðlimurTilgangur: Efla áhuga manna á fjallamennsku þeirrar gerðar sem reynir á kunnáttu við klifur og meðferð öryggisbúnaðar
Skilgreining: Á listann eru sjálfstæðir fjallstindar yfir 1200 metrum sem eru þess virði að þeir séu klifnir (samkvæmt almennum og viðurkenndum hugmyndagrundvelli fjallamennsku) og eru fjölbreyttir innbyrðis hvað varðar upplifun á náttúru, tæknilega áskoranir og hugsanlega erfiðleika við aðgengi og í veðri.
Þar hafiði drög að tilgangi og skilgreiningu. Gott starf Ingvar. Góðar umræður. Gott kaffi.
24. ágúst, 2008 at 21:11 #530122006753399MeðlimurFrábær hugmynd Ingvar,
Ég gerði mér stuttan lista yfir leiðir og tinda í fyrravetur og sé ekki eftir því – það er gott að eiga sér markmið.
Þetta er nottlega persónulegt hvað fólki finnst vera uppáhald eða klassík en það væri kúl að sjá hvaða leiðir aðrir telja mestar og bestar og jafnvel geta haft það sýnilegt í „prófíl“ hvers félaga?
Svona sameiginlegur listi verður enn betri með óformlegri atkvæðagreiðslu og líklegast að sem flestir uppáhaldstindar/leiðir ísalpara verði á honum. Það er ekki spurning að tindarnir eiga allir að vera áskorun og hæfileg blanda brölts, klifurs og skíðaleiða.
ps.
fór á hnjúkinn í vikunni og mæli með að vera í línu…24. ágúst, 2008 at 21:31 #530132502614709Participantjá ég sendi meil á stjórnina hvort þeir væru ekki til í að taka þetta upp á sína löngu arma – ræða á félagsfundi o.s.frv. Svona verður aldrei óumdeild og endanlegt . Það verður líka gaman að sjá topp 10 ísklifurleiðirnar og kletta- hvað segja jaxlarnir á ekki að deila þessu með okkur……
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.