Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › RedChili skórnir komnir › Re: svar: RedChili skórnir komnir
8. nóvember, 2004 at 16:39
#49104
2005774349
Meðlimur
Ég virðist kannski ekki alveg hlutlaus ef ég fer að segja frá hvernig skórnir hafa reynst, en hvað með það.
Ég er búinn að klifra í Voodoo skónum síðastliðið ár og eitthvað styttra í X-Cube skónum.
Þetta eru einu skórnir sem ég hef verið jafnánægður með og Five-ten klifurskóna.
Þeir passa vel á minn fót, en svo eru alltaf einhverjir sem eru í einhverju „lappaveseni“, og passa misvel í klifurskó.
Þeir eru fljótir að teygjast í notkunarstærð, og maður þarf ekki að kaupa þá eins geðveikt þrönga og var gert hér áður fyrr.
Þeir virka líka það vel í klettum að maður þarf varla að styðja höndunum í lengur.
Hjalti Rafn.