Þrándarstaðafossarnir eru tveir og með talsverðu millibili. Seinni fossinn er í stórri skál með mörgum öðrum leiðum og fær því að vera skráður sér.
Neðri fossinn er stuttur (10m) en getur verið snarpur. WI 3-4 eftir árferði. Neðri fossinn er alla jafna mjög vatnsmikill og getur tekið langan tíma að komast í klakabönd. Klifrið með gát og passið að leggja ekki af stað ef hann er bara þunnt rör.
Þegar komið er upp úr fossinum, við næstu flúðir, er djúpur hylur sem oft frýs ekki yfir en getur verið falinn af snjó. Hér hafa klifarar farið ofan í og það er hægara sagt en gert að komast uppúr aftur. Farið með gát!
Auðvelt er að ganga upp fyrir fossinn og koma fyrir ofanvaði, sem gerir leiðina að frábærum stað fyrir byrjendur til að æfa tökin.
Í Kjósarskarði má finna ýmsar lengri og skemmri ís- og snjóleiðir. Frægust leiða þar er án efa Spori sem hefur verið mjög vinsæl byrjendaleið síðustu ár.
Skemmtileg ævintýraleið upp gil innarlega í firðinum í Reynivallahálsi, skömmu áður en komið er að Brynjudal. Byrjunin og endirinn bjóða upp á stífasta klifrið en miðkaflinn er nokkuð léttur.
FF.: Jón Geirsson og Snævarr Guðmundsson, 29. des 1986.
líklega hefur Jón Geirs et al. klifrað vinstra afbrygði af Nóngili fyrir 1990.
Brekkukambur
Stök leið eins og er, hugsanlega leynast þarna fleiri gersemar.
Litlasandsdalur og Gljúfurdalur
Litlasandsdalur er rétt vestan við Þyril, dalurinn fyrir aftan Þyril og fyrir ofan tankana. Beygt er af vegi yfir á malarveg við GPS hnit 64°23’39.8″N 21°26’04.8″W. Sjá kort fyrir neðan. Flestar leiðirnar eru austan megin í dalnum en ein stök leið er vestan megin í dalnum, Flöskuháls. Í dalinn renna tvær ár Gljúfurá og Bláskeggsá.
Sögusagnir herma að á tímabili hafi þessi dalur verið einskonar leynisvæði klifrara úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík. Engar upplýsingar hafa hinsvegar fengist um þessa laumupúka og því höfðu nær engar leiðir verið skráðar hjá Ísalp. Hefur á síðustu árum verið gerð bragarbót á því.
Til að komast í Gljúfurdal þarf að ganga eins og verið sé að stefna á Flöskuháls en fylgja síðan Gljúfuránni upp gljúfrið rétt hægra megin við Flöskuháls. Gangan upp í Gljúfurdal tekur um klukkutíma.
Þyrill Áberandi hamrar ofan við Þyrilsnes, sem er mjög áberandi kennileiti í Hvalfirði. Hér er nokkuð af ís og snjóleiðum en líka fjölspanna dótaklifurleiðir sem hafa ekki verið farnar á síðustu árum eða áratugum, hugsanlega vegna þéttninar í berginu.
Glymsgil Fær sér síðu vegna vinsælda, sjá Glymsgil
Múlafjall
Fær sér síðu vegna vinsælda, sjá Múlafjall
Brynjudalur Fær sér síðu vegna vinsælda, sjá Brynjudalur
Reynivallaháls
Stakar leiðir hér og þar yfir ágætlega stórt svæði
Hvalfjarðareyri
Skemmtilegt æfinga- og byrjendasvæði í fallegu umhverfi. Aðkoman er þægileg og einföld.
Beygt er til norðurs af Hvalfjarðarvegi (47) þar sem skilti vísar á “Hvaleyri” (64°19’53.8″N 21°44’34.6″W). Hægt er að keyra niður að stóru bílastæði á Hvalfjarðareyrinni og ganga í 10-15 mínútur í flæðarmálinu að klifursvæðunum. Gönguleiðin getur þó lokast á háflóði. Hægt er að keyra meðfram girðingu alveg að brún á svæði B og nota bifreiðina sem akkeri fyrir sig. Einnig er hægt að síga niður í svæði A þar sem töluverður ís safnast ofan við það (sjá mynd). Athugið að gangur á milli svæðis A og B er varla mögulegur á flóði; skipuleggið ykkur með þetta í huga.
Þar sem svæði B er samfelldur ísveggur af erfiðleikagráðu 3-4 þá skráum við það bara sem eina leið. Svæði A er hins vegar fjölbreyttara, með aðskildum leiðum frá WI2 upp í 4+/5. Þar gætu menn skráð einstakar leiðir.
Ýringur (WI5, 200-500m) er önnur klassík leið, nokkur hundruð metra austan við Flugugilið í suðurhlíð dalsins. Leiðin býður upp á alpafíling í þröngri skoru/rennu með nokkrum mislöngum höftum frá WI2-WI5 og endar öllu jöfnu í “Haftinu”, sem er 20-25m stíf spönn efst í skorunni áður en hún flest út fyrir ofan. Um 200m ofan við er svo um 50m WI3/4 lokahaft, sem endar nánast uppi á fjallinu og gefur þessi framlenging prýðis alpafíling á upp- og niðurleiðinni. Yfirleitt er farið labbandi niður úr Ýringi til vesturs (utar í dalnum) og er hægt að þræða sig ágætlega í gegnum skriðuna á 100-200m bili næst Ýringi.
Lokafossinn, Árni leiðir. Mynd: Sigurður Ragnarsson.
Klassísk leið, innst í Flugugili. Mikilfengleg hvelfing sem býður upp á tvær spannir sem gefa ekkert eftir. Getur reynst mjög erfið síðla vetrar þar sem stór hengja vill myndast í toppinn. Góður stans í litlum helli í miðri leið. Prófraun, fyrsta íslenska WI 5.
Leiðin er tæpir 100m að lengd og endar uppi á flötum stalli ofan við hvelfinguna.
Aðkoma sama og fyrir Kertasníki (upp gilbotninn) nema smá hliðarspor til vinstri í lokin – a) upp eitt 10m og annað 20m WI3-4 íshaft (stallur á milli) eða b) fara lengra til hægri inn í bratt mosaklifur í næstu rennu við hliðina á þessum íshöftum. Á báðum tilfellum endar þetta 50-100m aðkomuklifur í Óríon hvelfingunni… (mosaleiðin á hrygg hægra megin)
Algengast er að fara niður hjá Ýringi en einnig er hægt að fara niður gilið aftur en þá þarf að bakka niður aðkomuhöftin
Mynd fengin úr grein Páls Sveinssonar í 1988 ársriti ÍSALP um fyrstu ferð á Óríon. Gæða lestur fyrir áhugasama á bls. 14
“[…] fjarlægðin gerir fjöllin blá og ísleiðirnar aflíðandi.” – Skabbi eftir að hann fór leiðina í fyrsta skipti. Leiðin reyndist ekki aflíðandi.
Sjá má lýsingar Skabba á ferð hans og Robba í greininni “Kósíheit par exelance” sem birtist í ársriti 2009.
FF: Guðmundur Helgi Christensen og Páll Sveinsson, jan 1988.