Irpugilskertið WI 3

Í Irpugili sem er 1 1/2 km vestan Hnappavalla í Öræfum. Þar eru landamerki milli Fagurhólsmýrar og Hnappavalla. Gengið fyrir tvö horn í gilinu.

Þetta er kerti, nokkuð bratt og skemtilegar hreyfingar í því, en ekki mjög hátt. Hitt verður að taka fram að þeir sem eru fyrstir til að klifra það eru auk mín og Arons 11 ára sonar míns eru 12 og 13 ára skólasystkini hans sem búa á Hnappavöllum. Kannski að landeigendur eigi sjálfir eftir að nota klifursvæðin sín á Hnappavöllum í fremtiden…

FF: Einar, Aron, Ingimundur og Katrín, 23. feb. 2002, 7m

Crag Öræfi, Austur og Suðursveit
Sector Hnappavellir
Type Ice Climbing

Sexí WI 6

Leið númer 4.

Fyrsta ísleiðin norðan, innan, við gilið þar sem Kaptein Kirk er. Skemmtilegar myndir frá Robba úr þessari leið og öðrum má finna hér

Byrjað á að fara út á fríhangandi kerti, við lok þess kemur svo annað fríhangandi kerti. Seinni hlutinn einkenndist svo af blómkálshausum sem voru ekki mikið léttari en kertin. Frábær leið sem er líka virkilega sexy.

FF: Ívar F. Finnbogason, Hjalti Rafn Guðmundsson og Einar Rúnar Sigurðsson, 10. feb. 2002, 40m

 

Crag Kirkjubæjarklaustur
Sector Kirkjubæjarklaustur
Type Ice Climbing

Golden Shower M 5+

Leið númer 3. á mynd

Í hlíðinni innan við Stjórnarárgil. Ein af fyrstu línunum handan við hornið.

Byrjar hægra megin við gult ísþil sem nær ekki niður, smá klettapríl upp í þunnan ís. Eftir þunna ísinn í ca. 4-5m hæð kemur þversprunga sem tekur stóra vini (blár og gulur BD). Hliðrað á sprungunni tíl vinstir og út á ísinn, þaðan er svo auðveldur leikur upp á brún. Jafnvægisleið frekar en kraftur.

Leið númer 3a. er ófarin.

FF: Ívar F. Finnbogason og Hjalti Rafn Guðmundsson, 09. feb. 2002

Crag Kirkjubæjarklaustur
Sector Kirkjubæjarklaustur
Type Mix Climbing

Kapteinn Kirk M 6+

Kafteinn Kirk goes up a chimney there on the middle of the picture, but at the top they traversed to the left before finishing the overhang

Strompur inni í litlu gili í hlíðinni inn af Stjórnarárgilinu.

Þunnur ís inni í sprungu vinsta meigin í ca. tveggja metra breiðum stompi. Klifra ísinn upp undir þak þar sem hægt er að setja inn lélegan vin, annars hægt að tryggja með útsjónasemi og ísskrúfum, hliðra á klettum undir þaki til hægri og yfir í holurnar í vegnum hægra meigin. Úr holunum er farið upp á ís þakið og upp á brún. Einnig hægt að klifra hærra upp hægrameigin og klifra alla leiðina með axir í ís. Fimm stjörnu leið.

WI 6+/M 6+

FF: Ívar F. Finnbogason og Hjalti Rafn Guðmundsson, 09. feb. 2002

Crag Kirkjubæjarklaustur
Sector Kirkjubæjarklaustur
Type Mix Climbing

Sýndarveruleiki WI 4

Leið númer 11 á mynd.

Upplýsingar um hvaða lína er sýndarveruleiki hafa skolast til og því er það ágiskun að leið 11 sé Sýndarveruleiki. Ef einhver hefur betri upplýsingar má endilega koma þeim á klúbbinn.

Önundarfjörður (þar sem Flateyri er)

Keyrt inn í Önundarfjarðarbotn að norðanverðu. Stoppað við bæinn Betaníu (flott nafn). Hvilft þar fyrir ofan hýsir nokkrar skemmtilegar leiðir. Hvilftin ber nafnið Hafradalur.

50m lúmskt brött spönn í byrjun. Síðan taka við léttir 50m sem enda í 15m íshafti.

FF: Rúnar Óli K. og Kristján Jónsson, 12. jan. 2002, tvær og hálf spönn

Crag Ísafjarðardjúp
Sector Hafradalur
Type Ice Climbing

Flott lína WI 5

Leið númer 1, hinar eru ófarnar

Núpshlíð

Austari(innri) leiðin af tveimur stórum sem snúa til móts við Lómagnúp.

Ein 50m spönn í byrjun (4+), stallur og svo stutt 5. gr. spönn ca. 30m. Eftir stall kemur síðasta spönnin sem er einnig fimmta gráða en einungis um 20m.

FF: Einar, Ívar og Hjalti, 30. des. 2001, 100m

Crag Öræfi, Vestur
Sector Lómagnúpur
Type Ice Climbing

N-18 WI 5

Leið númer 1. á mynd

Næsta gil við Stjórnárgil. Stór lína sem snýr í suður. Fara upp hjá hvíta bústaðnum

Ein spönn, byrjar í aflíðandi en verður brattari þegar ofar dregur. Mögulega léttari þegar meiri ís er. Er frekar fjarkaleg á að sjá.

FF: Hjalti og Ívar, 29. des. 2001, 45m WI 5/+

Crag Kirkjubæjarklaustur
Sector Kirkjubæjarklaustur
Type Ice Climbing

Grátmúrinn WI 4

Nokkuð sennilegt að þetta sé mynd af leiðinni, betri mynd óskast

Fyrir ofan þriðja vegskálann er gil. Þetta er neðsti fossinn í gilinu

Þegar upp á vegskálann er komið, er haldið upp gilið. Fossinn virðist alltaf vera frekar blautur en mjög fallegur.

FF: Rúnar Óli Karlsson og Eiríkur Gíslason, 20. des. 2001, 50m

Crag Ísafjarðardjúp
Sector Óshlíð
Type Ice Climbing

Bændaglíma WI 4

Mynd óskast

Ofan við fyrsta bæinn fyrir austan Pöstin en þar býr mjög skapmikill bóndi.

Fyrsta spönn WI3+, 35m, önnur spönn var lét 50m hliðrun með smá mosaklifri en einnig er hægt að klifra bratt kerti beint upp en það var ekki vel frosið þetta skiptið, þriðja spönn var WI4, 35m.

Sagan á bakvið nafnið er sem sagt þannig að við fórum af stað með það að markmiði að kanna ís á nýjum slóðum undir Eyjafjöllum. Ég (Freyr) hafði farið niður gljúfur á þessum slóðum um sumarið (canyoneering, en það er önnur saga) og litist vel á möguleika fyrir ís. Við fengum leyfi fyrir könnunarferðinni í gljúfrinu en í stuttu máli var um sneypuför að ræða, enginn ís sem heita mátti klifurvænlegur. Lítið annað að gera en að fara út aftur og halda áfram að svipast um. Þá sáum við að skammt undan reyndist vera ís uppi í fjallsbrún. Ókum við sem leið lá til að nálgast ísinn og frá bílnum séð sýndist okkur sem það myndi þá mögulega rætast úr ferðalaginu eftir allt saman. Við lögðum bílnum á plani við rúllustæðu, græjuðum okkur aftur af stað og upp í átt að ísnum. Allt var í stakasta lagi, bara allir glaðir með að hafa fundið ís eftir allt saman.

Á einhverjum tímapunkti í stansinum þegar Örvar er að horfa í kringum sig rekur hann augun í hvar bóndi nokkur á Massey Ferguson sem skömmu áður hafði verið að sækja rúllur í stæðuna þar sem við lögðum bílnum, bílnum hans Örvars, virðist vera hættur við að eiga meira við rúllurnar en er þess í stað farinn að sýna bílnum hans Örra meiri áhuga. “Hvað er í gangi þarna niðri”? Massey Ferguson er núna með rúllugreipina tóma og alveg niðri við jörðina. Hægt og rólega færist hann nær bílnum. “Er hann að”? “Ekki er hann að fara að færa bílinn minn”!? Ótal sinnum hefur manni fundist maður vera varnarlaus þegar hangið er í stansi í ísklifri. En oftast hefur það verið vegna kulda eða íshruns, í þetta skiptið var það vegna Massey Ferguson. Við gátum akkúrat ekkert gert í stöðunni nema að horfa á. Þegar greipin er komin alveg undir bílinn sjáum við hvernig henni er lyft rólega… En svo stoppar allt. Bóndi snarast út. Gengur heim að bæ. Bílinn var ekki hreyfður en það er útilokað að við sleppum af hlaðinu án þess að Massey Ferguson leyfi okkur það. Við klárum klifrið. Ekkert annað í stöðunni, þannig lagað. Stoltir og ánægðir með nýja leið göngum við svo niður.

Niðurlútir og skömmustulegir og skýtnir bönkum við upp á bænum. “Já góða kvöldið, við erum eiginlega fastir hérna niðri á plani hjá þér” . “Nú já”? “Ehh, já, hérna ég sé ekki betur en það sé mögulega búið að leggja dráttarvélinni aðeins of nærri bílnum okkar”. .. Því næst vorum við látnir heyra það! Það væri auðvitað argasti dónaskapur að vaða bara um annarra manna land og láta eins og maður ætti það. Það hefði nú ekki verið neitt vandamál að leyfa klifur í fossinum en það væri ólíðandi að við hefðum ekki einu sinni bankað upp á og látið vita af ferðum okkar! Ok! Point taken, en geturðu núna komið með og fært Massey Ferguson og rúllugreipina undan bílnum? Það vildi hann og gerði svo að lokum. Samningaviðræður báru sem sagt þann árangur að við komumst í burtu á óskemmdum en skelkuðum fólksbílnum og munum aldrei aftur klikka á því að banka upp á og taka spjallið.

FF: Örvar A. Þorgeirsson, Bergur Einarsson, Freyr Ingi Björnsson, 04. jan. 2001, 120m

 

Crag Eyjafjöll
Sector Pöstin
Type Ice Climbing

Two steps WI 3+

Mynd óskast

Half way between Þröskuldur and the inner arena, at the place where it starts to be possible to see into the arena. It is on the east side, and little bit further north is a brownish pillar.

After the first step (about 10m high) follows a 8m long ramp with some parts WI and snow. The second step (thin ice) has been climbed on the left side to the top.

FF: Einar R. Sig. & Bernhard Hochholdinger

Crag Öræfi, Vestur
Sector Grænafjallsgljúfur
Type Ice Climbing

Þröskuldur WI 3

Þröskuldurinn er íshaftið sem klífa þarf til að komast úr ytra gljúfrinu upp í innra og aðal gljúfrið. Það hefur augljóslega oft verið klifið, en hingað til hefur verið svo mikill snjór að klifrið hefur verið mjög auðvelt sóló. Núna var enginn snjór svo a

Ísinn var kúlaður og þunnur, en mjög góður.

FF: Einar R. Sig. & Bernhard Hochholdinger, 27. des. 2000, 13m

Crag Öræfi, Vestur
Sector Grænafjallsgljúfur
Type Ice Climbing

Stekkjastaur WI 4+

Álftafjörður sunnan Ísafjarðar

Leiðin er í stóru gili sem heitir Valagil. Leiðin er áberandi fallegasta leiðin í gilinin, mjó og brött íslæna með nakta kletta á hvora hönd.Mjög þægilegt er að komast upp að leiðinni.

Byrjar auðveldlega fyrstu metrana, en verður sífellt brattari og nær ,,lóðréttu` síðustu 15 – 20 metrana.

FF: Rúnar K. Eríkur Gíslason, 20. des 2000, 70m

Crag Ísafjarðardjúp
Sector Valagil
Type Ice Climbing

Heimtur úr helju WI 4+

Innst í Stekkjargili. Leiðin sért stundum frá veginum. Er efst í gilinu í gilinu og verður maður að klifra upp aðra leið til að komast að þessari. (Sennilega leiðin fyrir ofan leið 2 og 3)

Löng auðveld spönn og svo bratt haft í lokin ca. 60m. Byrjunin á síðasta haftinu var yfirhangandi að hluta en er líklega ekki alltaf svoleiðis.

FF: Örvar og Ívar, 21. des. 2000, 110m

 

Crag Haukadalur
Sector Stekkjagil
Type Ice Climbing

Rörið WI 3

Mynd óskast

Sunnan við brúna að vestanverðu

Nokkuð greinilegt kerti sem sést vel neðan af veg. Góðar tryggingar neðst en þegar ofar var komið varð ísinn frekar þunnur og helst tryggjanlegur með spectrum. Upp á brún var  ísinn það þunnur að gáfulegast þótti að síga niður úr leiðinni.

FF: Jón Marinó Sævarsson (Bassi) og Sigurbjörn Gunnarsson (Böbbi), 25. nóv. 2000, 14m

Crag Hörgárdalur
Sector Öxnadalur
Type Ice Climbing

Gollurshús WI 3+

Mynd óskast (Svæði 3 í Öxnadal)

Vestanmegin í Öxnadal og rétt sunnan við bæinn Gil. Fyrir neðan Gilshnjúkinn í Heiðarfjalli

Leiðin byrjar í WI 2 ísbrölti og síðan eru þrjú 7-14 metra höft. Efsta haftið er erfitt að tryggja þar sem stórt holrúm er á bakvið þunnan ísinn og nýttust stuttar ísskrúfur og spektrur einna best. Lítið um ís uppi á brúninni, aðeins mosi og þunn ísskæna á steinum

FF: Jón Marinó Sævarsson (Bassi) og Sigurbjörn Gunnarsson (Böbbi), 11. nóv. 2000, 60m

Crag Hörgárdalur
Sector Öxnadalur
Type Ice Climbing

Hörgárdalur

Hörgárdalur liggur frá Eyjafirði og suðvestur inn í land að Öxnadalsheiði. Hörgárdalur greinist í sundur 13 km frá dalmynninu og skiptist í Öxnadal, Hörgárdal, Myrkárdal, Barkárdal og Syðri-Sörlártungudal. Nokkrar leiðir eru þekktar í Hörgárdal og Öxnadal sem og á Hraundranga sem er á fjallsegg mitt á milli dalana.

Öxnadalur
Djúpur dalur í vestanverðum Eyjafirði, inn af Hörgárdal. Hann er um 25 kílómetra langur frá mynni dalsins við Bægisá inn að Öxnadalsheiði. Um hann fellur Öxnadalsá. Hringvegurinn, þjóþvegur 1, liggur um Öxnadalsheiði og Öxnadal áleiðis til Akureyrar.

Öxnadalur merkir eiginlega nautgripadalur eða uxadalur. „Öxn“ er hvorugkynsorð í fleirtölu, þau öxnin, og er gamalt orð um nautpening, skylt uxi. Samkvæmt Landnámabók var Öxnadalur numinn af Þóri þursasprengi.

Leiðirnar hér eru á víð og dreif og lítið virðist vera til af myndum, aðsendar myndir eru vel þegnar. Hér er einnig ein óstaðsett leið, Rörið, upplýsingar um hana eru einnig vel þegnar.

Svæði 1 í Öxnadal (Efstaland)
Engin mynd er til af leiðinni eins og er.

  1. Two Fat Boys – WI 3

Svæði 2 í Öxnadal (Steinstaðir II)

Hægt að leggja bílnum við Steinstaðir II. Endilega banka upp á hjá bóndanum og biðja um leyfi til að leggja.

Klettabeltið sést greinilega frá bænum og tekur ca. eina klukkustund að labba uppí leiðir frá bóndabænum.

Einhvað var að flottum mix leiðum þarna.

  1. Sólbaðið -WI3
  2. Unclimbed
  3. Unclimbed
  4. Unclimbed
  5. Unclimbed
  6. Party Klifrið -WI3+
  7. Vitalys-nightmare – W3+
  8. wiener-schnitzel -WI4+
  9. Unclimbed

Svæði 3 í Öxnadal (Örlygur)
Hægt að leggja bílnum við Engimýri II. Endilega banka upp á hjá bóndanum og biðja um leyfi til að leggja.

Hnit á klettabeltinu 65°34’10”, -18°30’44”

Frá bóndabænum tekur aðkoman að klettinum ca. eina klukkustund Leiðirnar eru á milli 500m og 600m yfir sjávarmáli svo að ætla má að þær hangi inni í aðstæðum þó svo að hlýni aðeins á láglendi.

1. Thin/mixed? line (unclimbed)
2. First date – WI4
3. Örlygur – WI4
4. Uxi – WI4
5. Unclimbed

Svæði 4 í Öxnadal (Súlan)
Stærsta svæðið í Öxnadal, hér eru í kringum 5 leiðir og möguleiki á nokkrum í viðbót

GPS hint af útskoti sem hægt er að leggja í:  65.537868, -18.570634. Ef einhver snjór er á svæðinu er ekki hægt að leggja venjulegum fólksbílum í þetta útskot.

  1. Yersinia – WI 3
  2. Unclimbed
  3. Súlu sectorinn
    1. Rennibrautin – WI 3+
    2. Maxi popp – WI 3
    3. Súlan – WI 4
  4. Unclimbed
  5. Samloka Bjarka – WI3

Svæði 4 í Öxnadal (Varmavatnshólum)

Hægt er að leggja afleggraum til að komast í Varmavatnshólum þaðan er rúmur klukkutíma labba í leiðina.

Ein leið eins og komið er en eru nokkrar þarna í viðbót bæði ís og mix.

  1. from austria with love – W4

Svæði 6 í Öxnadal (Heiðarfjall)

  1. Gollurshús – WI 3+

Svæði 7 í Öxnadal (Skagafjarðarmegin við heiðina)

  1. Kertið í Kotinu – WI 4

Hraundrangi
Áberandi tindur í Drangafjalli, upp á hann eru þekktar tvær leiðir. Auk þess er leið upp á Kistuna, næsta tind sunnan við Hraundrangan. Einnig segir sagan að Alex Lowe hafi í einni atrennu þverað alla eggina, ef einhver hefur frekari upplýsingar um það, þá má endilega koma þeim til klúbbsins.

Hér eru einnig tvær erfiðar Mixaðar línur í Drangafjalli undir Hraundranga

Rauð punktalína: Hraundrangi, upprunalega leiðin
Hvít punktalína: NV hryggur Hraundranga – D+, M 5
Rauð lína: Kistan

Hoarniglsheidi – M 7 / WI 6
Exciting Trousers – M 6

Hörgárdalur

Ný dönsk
Lagt er við bæinn Flögu, sem er síðasti bærinn áður en komið er að Staðarbakka þar sem gangan upp á Drangann hefst yfirleitt. Í klettabeltinu er urmull ísklifurleiða sem hafa víst verið klifraðar oft í gegnum tíðina án þess að Ísalp hafi vitað af. Því hafa nöfn og gráður skolast til og eru allar nýjar eða betri upplýsingar vel þegnar (eins og alltaf). Leiðirnar á svæðinu heita allar eftir lögum með hljómsveitinni Ný dönsk.

  1. Skynjun
  2. Regnbogaland
  3. Apaspil
  4. Horfðu til himins – WI 4+
  5. Veröld – WI 4
  6. Tilvera – WI 4
  7. Draumur
  8. Nostradamus
  9. Skjaldbakan
  10. Hlébarði
  11. Eplatré
  12. Hjálpaðu mér upp