Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
Helgi EgilssonKeymaster
Mér finnst eins og Björgvin Richards hafi skrifað um þetta í sína eigin bók. Man ekki hvort það var eitthvað af þessum útkallsbókum eða hvað. Ég hef allaveganna einhvers staðar lesið ítarlega lýsingu á uppferðinni þarna…
Helgi EgilssonKeymasterBolta akkeri út um allt í Stardal helst í gær. Skil ekki hvað er því til fyrirstöðu, nema það séu einhver friðunarákvæði á klettinum?
Er einhver á móti því að það séu sett upp toppakkeri þarna?Helgi EgilssonKeymasterTil hamingju með þetta! Hrikalega flott sprunga!
Helgi EgilssonKeymasterFínt að stika leið upp í Búahamra. Spurning hvort þú værir til í að skella upp nokkrum toppakkerum á góðum stöðum í Stardal líka, fyrst þú ert byrjaður á þessu?
Helgi EgilssonKeymasterJá. Þetta var snilld. Takk fyrir frábært kvöld allir sem mættu!
Helgi EgilssonKeymasterHugmyndin sem við erum að vinna með er að hafa aðra álmuna sem svefnálmu (eingöngu) og hina álmuna sem matar- og samkomuaðstöðu (eingöngu).
Við erum að hugsa um olíukyndingu eins og er. Þingvallaþjóðgarður setti skilyrði um þurrklósett og við gerum ráð fyrir að annað herbergið í miðálmunni verði klósett, en hitt verði geymsla, t.d. fyrir eldavið ef það verður kamína.
Við ætlum að reyna að halda í það útlit sem var á skálanum þegar hann var á Kaldadal eftir besta megni. Það þarf að klæða skálann með Alu-zink (bárujárni) og koma fyrir loftunartúðum í klæðningu.Endilega varpið öllum hugmyndum hingað fram!
Helgi EgilssonKeymasterOpna hér með upp á nýtt fyrir umræður um hönnun Bratta!
Helgi EgilssonKeymaster.
Helgi EgilssonKeymasterMér sýnist hlekkirnir ekki virka…
Helgi EgilssonKeymasterÞað verður annar fundur til að fylgja málinu eftir á þriðjudag kl. 20 (16.ágúst).
Helgi EgilssonKeymasterMinni á fundinnn á morgun kl. 20!
Helgi EgilssonKeymasterÉg boða hér með til fundar um Bratta í Klifurhúsinu, Ármúla kl. 20 þriðjudaginn 9.ágúst.
Við munum kynna sögu Bratta, vinnu Brattanefndarinnar og samkomulagið við FÍ.
Helgi EgilssonKeymasterHvernig litist ykkur á fund eftir verslunarmannahelgi? T.d. 10.ágúst. Við myndum þá fara vel yfir sögu málsins og forsendur fyrir þessari ákvörðun.
Svo ég svari þeim spurningum sem upp eru komnar (Frá Björk):
1. Það hefur ekki verið haldinn aðalfundur á þessu ári. Aðalfundir eru núna haldnir á haustin (september) í stað febrúar eins og það var. Ef þetta verður mjög umdeilt eftir fundinn í ágúst er hægt að bera þetta upp á aðalfundinum. Það er hins vegar ekki nóg að hafna bara þessari lausn. Þetta er lausnin sem nefndin komst að og ef menn sætta sig ekki við hana verða menn að taka málið að sér og klára það á annan hátt.
Það sem ég er að segja er: Það verður ekki kosið um þessa tillögu á aðalfundi með því að svara „Já“ eða „Nei“, heldur þarf að vera einhver valkostur á móti sem skilar skálanum 100% upp í Botnssúlur.
2. Við litum á FÍ sem áreiðanlegan aðila sem hefur mesta reynslu allra félaga á Íslandi í skálarekstri. Við litum á þá sem líklegan aðila til að klára dæmið með okkur og öflugan bandamann. Í lögum ÍSALP er til dæmis tekið fram að „Sé [ÍSALP] slitið og hætt starfsemi skulu allar eignir þess, lausa- og fastafjármunir fengnir Ferðafélagi Íslands til vörslu og umsjónar þar til Ísalp verður endurvakið“. Við rekjum sögu okkar til Ferðafélagsins og það hefur reynst okkur vel. T.a.m. hafa þeir alltaf lánað okkur salinn sinn endurgjaldslaust þegar þess hefur verið óskað. Upphaflega leituðum við að kaupanda að einni einingu af skálanum og út frá því spruttu viðræður við Ferðafélagið. Áður hafið fyrirtækið HL adventures (HL) sýnt áhuga á samstarfi. Þetta er fyrirtækið sem lét byggja skálann fyrir Land Rover, áður en hann var færður okkur. HL hafði flottar hugmyndir um nýtingu á skálanum, en það kom ekki til tals að þeir yrðu meðeigendur. Það er ekki útilokað að HL gætu nýtt skálann, þó rekstarformið og eignarhaldið á honum muni breytast.
3. Það er búið að áætla gróflega kostnað við að klára dæmið og við getum farið yfir það á fundinum.
- This reply was modified 8 years, 4 months ago by Helgi Egilsson.
Helgi EgilssonKeymasterÉg má til með að svara nokkru af því sem Sissi segir hér að ofan, enda er það eina efnislega gagnrýnin sem hefur borist til þessa.
Í fyrsta lagi er smánarlegt að bera þetta samkomulag saman við það að ætla að selja Tindfjallaskála á 500.000 kr.
Hver er munurinn?
1.Þetta er yfirlýsing um samvinnu, en ekki uppgjöf – ÍSALP mun áfram eiga skálann.
2.Ferðafélagið mun leggja fleiri milljónir í þetta verkefni.
3.Þetta mun skila flottari skála en klúbburinn hefði kost á einn og sér.Framtakið sem þið stóðuð fyrir var og er ómetanlegt. Það er því framtaki að þakka að klúbburinn á skálann í Tindfjöllum. Ég sé samt enga ástæðu til þess horfa með öfund til Tindfjalla í þessu máli. Vonir okkar standa einfaldlega til þess að ná betri árangri Í Botnssúlum en í Tindfjöllum. Tindfjallaskáli er glæsilegur skáli og allt það, en notkunin er slöpp sem sést á því að veltan í gegnum skálann samtals árin 2010-2014 var undir 200.000 kr. Viðhaldi er vissulega vel sinnt – en það er eingöngu vegna þeirrar staðreyndar að Tindfjallahópurinn hefur ennþá áhuga á að sinna því.
Markmið með rekstri fjallaskálanna er að þeir séu notaðir sem allra mest – og að þeim sé vel sinnt.
Að fá sterkan bandamann í Botnssúlur mun bæði fjölga þeim sem nota skálann og stórauka líkurnar á því að viðhaldi verði vel sinnt.Ekkert vil ég frekar en að klúbbfélagar segi skoðun sína á þessu máli og það væri ákaflega ánægjulegt að þeir sem stóðu að baki endurreisn Tindfjallaskála „myndu leggja blessun sína yfir ákvörðunina“. Mig langar líka að taka fram að Brattanefnd hefur verið starfandi í eitt og hálft ár. Þessari nefnd var falið umboð klúbbsins til að stýra framtíð skálans. Nefndin er og var opin öllum klúbbfélögum og oftar en einu sinni hefur verið óskað eftir fólki í nefndina og í verkefni sem hún hefur sinnt. Þessi ákvörðun kemur úr nefndinni en auk þess var haft samráð við stjórn klúbbsins og nýtur ákvörðunin stuðnings hennar.
Helgi EgilssonKeymasterÞað má svo sannarlega biðja um fund. Eigum við að hittast á miðvikudagskvöldið í næstu viku, 20. júlí kl. 20 í Klifurhúsinu?
Endilega spyrjið hér líka og tjáið skoðanir ykkar.Helgi EgilssonKeymasterHugmyndin var að klæða hann með alu-zinki, en þetta verður ákveðið eftir sumarið.
Helgi EgilssonKeymasterEndilega ræðið.
Helgi EgilssonKeymasterGlæsilegt. Hlakka til að prófa!
Helgi EgilssonKeymasterBirtast á forsíðu.
Helgi EgilssonKeymasterVið vorum að funda í kvöld og það nú styttist verulega í að síðustu blöð verði borin út. Vesturbærinn mætir alltaf afgangi, eins og eðlilegt er.
Helgi EgilssonKeymasterDæmi Nebúkadnesar Nebúkadnesarson +2 gista í uppbúnum rúmum (3ja manna herbergi). Vilja morgunmat (1.500kr/dag) og kvöldmat (3.000 kr./dag) báða dagana.
Helgi EgilssonKeymasterOg… svo verður myndasýning miðvikudaginn 21.október. Takið kvöldið frá. Nánari upplýsingar síðar.
-
AuthorPosts