Allt í bullandi ísaðstæðum á norðanverðum Vestfjörðum og lítið sem ekkert af snjó!
Við Sigga, Sædís og Jón Smári fórum í Seljadalinn á laugardaginn og svo fórum við Sigga, Sædís og Haukur í Eyrarhvilft á sunnudaginn.
Fórum fimm í Botnsdalinn í botni Súgandafjarðar á Laugardaginn, náðum hörkufínu rennsli í fínasta púðri. Það var töluvert af snjó og skilst mér að þarna sé nokkuð djúpt á grjótið allan ársins hring.
Tvær myndir frá Jóni Smára og Hauki Sig.