Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
RobbiParticipant
Já eins og Skabbi segir þá var boltuð ný leið í Tvíburagili í dag. Leiðin er næsta vinstramegin við Ólym. Fer upp klettaslútt á milli tveggja kerta og svo ræður maður hvort maður fer hægri eða vinstri.
Leiðin er töluvert erfiðiari en Ól…Ég hef svo sem ekki mikinn mælikvarða á það nema ógleðina og blóðbragðið þegar ég loksins hafði það upp á brún eftir ansi skrautleg föll. Leiðin hefur upp á að bjóða nokkur grip og er langt á milli allra þeirra, að augi eru flest allat klippingar í bolta tæpar. Sama hvað ég másti og blés þá hafði kletturinn betur svo ekki er komið nafn eða gráða. Leiðin fær nafn og gráðu þegar hún verður farin í viðeigandi stíl.Varðandi jakkann, þá já…þetta er fyrisætujakki að kröfu Gumma Dúllu. Það þýðir ekkert að vera klæddur eins og malbik alla daga. En þess má geta að nýji jakkinn minn kemur með 100 boltasjóðsaugum til Íslands einhverntíman í febrúar.
RobbiParticipantÞetta er soldið eins og að finna upp hjólið. Það eru svo fáar leiðir í þessum dúr hérna heima.
M-gráðurnar í Breiðdalnum voru miðaðar út frá Scottish leader og Pabbaleiðinni í Múlafjalli. Svo reyndi ég eitthvað að bera það saman við leiðir sem ég klifraði í Noregi. Ef við berum Ólympíska við Pabbaleiðina þá er ólym… erfiðari. Ég myndi segja að M7 væri ekki svo fjarri lagi. Mér finnst samt eins og Drög að sjálfsmorðum (M7) í Breiðdalnum væri erfiðari. Klettakaflinn var lengri og ísinn brattari. Það þurfa bara fleiri að prófa þetta.
Hér er ágæt viðmiðun frá Will Gadd, hann ætti að kunna eitthvað í þessu :
http://www.gravsports.com/Gadfly%20Pages/gadfly20052.htmRobbi
RobbiParticipantÞað eina sem ég sé sem möguleika á þessum myndum er…
FOKK ! snjóflóð.Robbi
RobbiParticipantArnar,
Þú hefur þennan valmöguleika. Að sjálfsögðu er leikurinn til þess gerður að klippa þeim sitt á hvað til þess að minnka ropedrag og allt það.
En ef þú lendir í þeirri stöðu að þurfa minniteygju í byrjun leiðar, Td. klettabyrjun og það eru 3m upp í fyrsta bolta, og 4m uppí þann næsta og mjög tæpt klifur þar á milli þar sem þú dettur alltaf. Þá væri fýsilegt að klippa báðum línunum í fyrsta boltann til þess að minnka líkur á því að skella á jörðina ef þú dettur.Þetta er undantekning frá reglunni og það er hægt að nýta sér hana ef þarf. Mæli samt ekki með þessu í miðri leið þar sem það eykur ropedrag. Tryggingin þarf sem áður sagði að vera mjög góð því álag á hana eykst ef báðum línum er klippt í hana.
robbi
RobbiParticipantHalf rope skal aldrei klippa í sömu tryggingu nema…
Að um 1. tryggingu í leiðinni sé að ræða, fyrir ofan mega syllur og eitthvað svoleiðis. Þá skal hún vera bomber. Það er einungis gert þar sem er möguleiki á grándi og byrjunin er tæp, óvissar axir ogfrv. Teygjan minnkar og þá minni líkur á því að maður lendi á jörðinni við fallið, og það munar miklu á teygjunni. Þeir kannast kanski við það sem hafa klifrað toprope í einni half rope línu að þegar þeir detta þá teygist MJÖG mikið á henni og það liggur við að maður eigi á hættu að gránda á fyrstu 15 metrunum. Þetta fer að sjálfsögðu eftir því hvað er mikið af línu í kerfinu.
Bottom line:
Klippa einni halfrope í hverja tryggingu,
Klippa báðum twin rope í hverja tryggingu
Fyrir þetta eru þær hannaðar.Robbi
RobbiParticipantJæja drengir…það þýðir ekki að benda hver á annan. Koma svo, taka afstöðu.
Ívar skrifaði:
Ef Haukur er annarar skoðunar þá má hann ráða hvað gert verður.
Kv.
hardcore – Gleðileg Jól!Robbi
RobbiParticipantGlæsó !
Robbi
RobbiParticipantÞið eruð ágætir….stefnum á fund eftir jól. Bjalliði bara ef ykkur vantar bolta. Hvort sem þið ætlið að bolta eða ekki, þið ráðið þessu bara.
robbi
RobbiParticipanthttp://rds.is/siggi/klifur/topo/pdf/
það á eftir að skella Mýrarhyrnu og Eyjafjöllum þangað inn. Þeir leiðavísar eru ekki alveg tilbúinir en gefa góða mynd af svæðunum. Varstu með eitthvað sérstakt í huga ?
robbi
RobbiParticipantLíst vel á þetta. Verð þó að taka aðeins undir það sem Ívar sagði. Ef það er augljóslega hægt að tryggja þetta á náttúrulegan hátt þá skal vanda það að bolta þetta í drasl.
Góð viðbót í mixheiminn.Líst vel á að halda mixfund fljótlega.
robbiRobbiParticipantÞetta með spjaldið er góð vinnuregla sem maður gerir allt of sjaldan. Þetta er sérstaklega gott ef það verður slys eða einhver týnist.
robbi
RobbiParticipant…algert rippoff að kaupa þetta í útilíf.
rhRobbiParticipantÓdýrasta hreinsaða bensínið fæst á N1. Það heitir SBP (special boiling point) og er fyrir Catalys brunaofna. Tunnan eru 4 llítrar og kostar eitthvað rétt yfir 1000 kjell.
Hægt var að fá þetta á Esso á Gelgjutanga en starfsemin er flutt.
Svo má líka nota rauðspritt.robbi
RobbiParticipantÞað er semsagt búið klifra báðar leiðirnar sem eru þarna ?
http://picasaweb.google.co.uk/ivarfinn/TtARsmRk#5274937547620360546
greinilega skv. spjallinu.
Palli, you know the drill… ég vil nöfn og gráður á þessar leiðir. Ef engin nöfn eru til þá skeilliru bara einhverju á þetta. Ekkert gaman að ekkert heiti neitt og hafi engan erfiðleika.
Sendu mér bara póst og ég sting þessu inn í leiðavísi yfir Eyjafjöllin sem er langt kominn.ps. smá leiðiarlýsing skemmir ekki fyrir.
robbiRobbiParticipantHvernig væri að þessir kappar myndu nú bara skrá allt sem þeir fara…eða amk segja frá því. Þá væri þetta aldrei vandamál.
rh
RobbiParticipantGott að þú ert heill eftir þetta. Ég er gríðarlega ánægður með þessa ferðasögu. Það er nauðsynlegt að heyra af fólki að detta, því oftast heyrir maður bara frá föllunum þar sem einhver stórslasaðist, en ekki þeim sem sluppu með skrekkinn.
Ég get hinsvegar sagt ykkur hvað er orðið að reglu, og það er jeppinn hans Viðars:http://picasaweb.google.com/roberthalldorsson/Ili#5038157986363802866
robbi
RobbiParticipantÞessi upptalning hjá Ívari hljómar voðalega hversdagsleg. En það er eitthvað sem stingur í stúf. Er það bara ég eða er það 30m fallið sem hljómar ekki hversdagslegt ?
robbi
RobbiParticipantDjöfull get ég ekki beðið eftir næsta trompi hjá sissa. You rock !
rhRobbiParticipantÉg á split-hjólabretti inní kompu. Þegar þú ert búinn að fá leið á því að renna þér einbretta getur tekið það í sundur og notað sem línuskauta.
Fer til hæstbjóðanda.robbi
RobbiParticipantHahahaha.
Ívar hardcore lætur lauk fara að gráta.
Tek undir með honum, ef ég segði ykkur það þá þyrfti ég sennilega að senda Chuck Norris á ykkur.Væri samt alveg til í að skella mér í Berufjörðinn. Nóg að gera þar.
robbiRobbiParticipantSnilld. Þá er það ákveðið.
robbiRobbiParticipantGlæsilegt. Gaman að heyra af fleirum að klifra, og gaman að skoða myndir.
robbi
RobbiParticipantgleymdi…
Leiðin sem Skabbi og Gulli klifruðu fékk það fríða gælunafn: Rjúkandi, og er WI3.rh
RobbiParticipantNæs…takk fyrir þetta.
Það er hægt að kaupa eitthvað sambærilegt frá Petzl, en ætli maður þurfi ekki að láta annan handlegginn fyrir það í dag.robbi
RobbiParticipantÆtlar enginn í ísklifur um helgina. Koma svo…skapa smá stemningu.
robbi
-
AuthorPosts