Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
Stefán ÖrnParticipant
Vorum þrír á ferðinni örlítið á undan Óla og Bjössa. Gengum upp hrygginn á Hátind og byrjuðum á því að renna okkur beint niður af honum til austurs (niður í dalinn á milli Hátinds og Laufskarða) Það er alger eðalbrekka sem er líklega allt of sjaldan skíðuð. Fullt af fallegum lænum í téðum dal – en þær eru á síðustu metrunum fyrir þetta ár.
Fórum svo aftur upp og niður Yfsilonið – vestari greinina.
Steppo
Stefán ÖrnParticipantPælingin er að geta klifrað (sem næst) fetlalaust án þess að eiga það á hættu að glata öxunum ef eitthvað óvænt gerist – ekki satt?
Væri gaman að heyra frá þeim sem hafa notað svona græjur -utanhúss- hvort þetta sé mikið að flækjast, hvort fetiill taki mikið í þegar maður teygir vel úr sér eða hvort þetta sé fyrir löppunum….nú eða hreinlega bara að þetta svínvirki!
kv,
SteppoStefán ÖrnParticipantMan þetta aldrei alveg. Ég er í 44 svona venjulega.
Stefán ÖrnParticipantGaman að þessu…hef oft verið að velta því fyrir mér hvar þessi leið sé.
Verður heimsótt við tækifæri.
kv,
SteppoStefán ÖrnParticipant….og hann er kominn á Hvolsvöll!
kv,
SteppoStefán ÖrnParticipantMinni á hressandi vinnuferð upp í Tindfjöll um helgina. Markmiðið er að klára undirstöðurnar fyrir skálann og hafa þannig allt til reiðu fyrir sjálfan skálaflutninginn síðar í sumar.
Góður hópur hefur þegar meldað sig inn og má þar nefna stórmagistera eins og:
Kristján Guðni
Hlynur Stefáns
Hlynur Skagfjörð
Hálfdán veðurguð
Fjallaskarpur
Bragi Freyr
Bjarki granni
..og e-r afkvæmi og makar auk undirritaðs.Þess utan hafa ýmsir Tindfjallanaglar eins og
Valli Knastás
Halligrímur Magg
Óli Júll
..og fleiri og fleiri hótað að heiðra samkomuna í lengri eða styttri tíma!Allir velkomnir og öll hjálp velþegin hvort sem menn vilji kíkja í stutta hvatningarheimsókn eða bera olíu á upphandleggi og bryðja íslenskt grjót!
Mætið á svæðið eða hafið samband ef spurningar (bílamál o.s.v).
Hils,
Steppo
stefankri@gmail.com
6641014Stefán ÖrnParticipantHæ,
Minni á vinnuhelgina í Tindfjöllum. Endilega að melda sig inn…margar hendur vinna létt verk og allt það!
Meldingar hingað: stefankri@gmail.com
kv,
SteppoStefán ÖrnParticipantTek undir það með Kristínu!
Fórum nokkrir saman norður á Tröllaskaga helgina í kringum sumardaginn fyrsta. Man ekki eftir jafngóðum aðstæðum og núna.
Full ástæða að mæla með Syðrihnjúk (næsti tindur framan við Hestinn í Skíðadal). Það er klassabrekka!
Nokkrar myndir
http://picasaweb.google.com/siggiskarp/SkiAdalurApril09#kv,
SteppoStefán ÖrnParticipantGlæsilegt piltar.
Hlakka til að sjá fleiri myndir.
Hils,,
SteppoStefán ÖrnParticipantMyndir frá Brynjudal:
http://picasaweb.google.com/stefankri/20090207Brynjudalur#Annars er við ágæta frásögn Skabba að bæta að við sáum inn í Glymsgil úr leiðunum okkar. Var ekki annað að sjá en að fullt af ís væri í stóru leiðinum (Glymur, Þrymur…). Um gæði íss vitum við ekkert…enda dágóðan spotta frá.
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantGratúlera piltar! Hlakka til að sjá myndir.
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantÉg, Skabbi, Freyzi, Danni og Gulli skelltum okkur í sósíalklifur í Orion. Var það afar skemmtilegt og komust allir upp.
Verðrið varð mjög hressandi þegar leið á daginn.
Setti inn nokkrar myndir hér:
http://picasaweb.google.com/stefankri/20081207Orion#Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantSæll,
Svarfaðadalur/Skíðadalur er sannkallað gósenland. Þar má nefna fjöll eins og Hestur, Rimar og Sýlingahnjúkur. Vífilsfjall innst/fremst í Svarfaðadal er stórskemmtilegt fjall. Helga Björt og Jökull Bergmann kunna vafalaust frá fleiri fjöllum að segja.
Svo er náttúrulega fullt hægt að gera í Hjaltadalnum. Hvammsfjall (?) er eitt slíkt. Gæti verið að ég fari með rangt nafn en mynd hér: http://gallery.askur.org/main.php?g2_itemId=41484
Reyndar er barasta hægt að leika sér nánast hvar sem er þarna á Tröllaskaganum.
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantHæ,
Ég myndi segja að bergið væri betra en Hraundranginn. Leiðin er í sjálfu sér auðrötuð – fylgir hryggnum upp á topp. Eina vesenið er blábyrjunin. Halda sér hægra megin (sunnan) við hrygginn í byrjun.
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantHeljareggin er alger snilld. Það er bara þannig!
Hvetjandi myndir verð ég að segja!
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantFantafínt ársrit!
Takk fyrir mig,
SteppoStefán ÖrnParticipantÞetta mun vera af hinni stórgóðu plötu The Wall með Pink Floyd.
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantTil hamingju drengir og vel af sér vikið!
Hvaða weggur var svo skemmtilegastur???
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantJú það má ef menn lofa að nota dótið!
Stefán ÖrnParticipantDynafit TLT Comfort – alveg þrælvirka. Mér sýnist Dynifit vera hættir að framleiða þær bindingar en TLT Vertical ST virðast vera sambærilegar.
Stefán ÖrnParticipantSkipti út telemarkinu fyrir fjallaskíði síðasta vor. Keypti mér Black Diamond KiloWatt skíði, Scarpa Spirit 4 skó og Dynafit bindingar.
Get ekki annað sagt að þetta dót hafi allt þrælvirkað hingað til og títtnefndar Dynafit bindingar staðið sig með mikilli prýði….
Ath að það er hægt að kaupa Dynafit í nokkrum útgáfum – frá því að vera meira hugsað fyrir þramm og framleitt úr andefnum yfir í brekkubindingar úr jarðneskum efnum (en samt létt).
Kostur við Spirit 4 skóna er að það fylgir með þeim stífari tunga ef menn vilja stífa skóna enn frekar upp. Veit ekki hvor þetta fylgi með öðrum týpum frá Scarpa eða örðum tegundum almennt.
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantÞetta er glæsilegt!
Ekki spurning að mar verður að kíkja þarna hið fyrsta!
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantTjah, þú ræður hvort þú viljir telemarka eða festa hælinn. Það er örugglega stuð.
Stefán ÖrnParticipantÉg, Robbi, Sissi, Freyzi og Skabbi fórum í Múlafjallið í dag.
Enduðum á að klifra tvær leiðir í Leikfangalandi auk þess sem Freyzi og Robbi léku sér í tveim styttri mixleiðum alveg við niðurferðarskriðuna, steinsnar frá Pabbaleiðinni og Íste.
Kom mér á óvart hve mikill ís var þarna. Það var a.m.k. minna um mix í Leikfangalandi en við áttum von á.
Góður dagur í Múlanum.
Hils,
SteppoStefán ÖrnParticipantFórum nokkrir í Tindfjöll þann 15. des (soldið síðan já) og þar var allmikill snjór til að leika sér í. Ástandið þar ætti að hafa síst versnað þessa síðustu daga en bílarnir þurfa væntanlega að vera stærri til að komast alla leið upp í Ísalpskála.
Myndir frá þeirri helgi og af skálanum góða birtast innan tíðar.
Hils,
Steppo -
AuthorPosts