2806763069

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 276 through 300 (of 528 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Ný stjórn #51134
    2806763069
    Member

    Það er mín tilfinning að sportklifur og Ísalp hafi með árunum verið að fjarlægast hvort annað. Vonandi verður það að hafa nokkrar ,,æfinga rottur” í stjórninni til að bæta úr þessu. Svo maður vitni í öflugasta ísklifrara Íslendinga fyrr og síðar þar sem hann var að klifra 3gr. í Glymsgili: ,,Þetta er allt klifur!”

    Styð því allar hugmyndir um að koma á Klettafestivali (aftur) og það má þá líka endurvekja Hnappavallaglímuna og Rauðhöfðahlaupið!

    Og svona þar sem ég er farinn að skipta mér af:
    Sakna þess að sjá gönguskíðaferðir á dagskránni og held einnig að menn ættu að gera eitthvað fyrir sívaxandi hóp þeirra sem stunda fjallaskíðun (samheiti yfir það að labba á fjöll á skíðabúnaði hverskonar með það að markmiði að renna sér niður aftur, konur eru líka menn, en menn eru ekki konur).

    Spennandi tímar framundan!

    Kv. Ívar

    in reply to: Ný stjórn #51130
    2806763069
    Member

    Hlakka til að sjá fundargerðina. Það er mín skoðun að þrátt fyrir að ársritið hafi ekki komið út í nokkurn tíma hafi fráfarandi stjórn staðið sig með miklum ágætum. Fráfarandi formaður var að öðrum ólöstuðum frábær fulltrúi fyrir klúbbinn og á að mínu mati stóran þátt í fjölgun félaga.

    En það er gaman að heyra að menn bera hag klúbbsins fyrir brjósti og ég hlakka ekki síður til að lesa væntanlegt ársrit.

    Ívar

    in reply to: Brýna ísskrúfur #51117
    2806763069
    Member

    Renniverkstæði Jóns Þorgrímssonar í skútuvoginum, neðarlega. Það jafnast ekkert á við það, þær verða eins og nýjar.

    in reply to: Blað/blöð í Axar/Pulsar frá Charlet #51051
    2806763069
    Member

    Margur heldur mig sig!

    Og Olli hefur enn og aftur bjargað mér frá botnlausu þunglyndi með því að sturta yfir mig úr óþrjótandi reyslubrunni sínum, sem er svo barmafullur af jákvæðni að meðal maður nær ekki til botns.

    Takk fyrir það, á morgun læt ég lita á mér hárið og kaupi líkamsræktarkort! Eða kannski bara í næstu viku, ekkert liggur á, langt í fertugt enn.

    Svo er maður líka með smá forskot, byrjaði snemma á síðstu öld þegar enn komu smá vetur á milli lægða!

    in reply to: Blað/blöð í Axar/Pulsar frá Charlet #51047
    2806763069
    Member

    Gummi sláni:

    Líklega var maður bara að skríða heim og ákvað að tékka á hlutabréfunum og ísalp áður en farið var að sofa!

    Eða kannski er maður kominn á fertugsaldurinn, farinn að grána í vöngum og vaknar snemma til að vinna í að skrá niður endurminningarnar!

    Ibbi Cool!

    P.s.
    Halli, þú mannst samninginn !

    in reply to: Blað/blöð í Axar/Pulsar frá Charlet #51041
    2806763069
    Member

    Laugardagur klukkan 23:00
    NÖRD

    in reply to: Ísfestival í norð #51032
    2806763069
    Member

    ,,Það var ekki mikið spjallað á heimleiðinni, enda var ég einn í bílnum” Einar Steingríms (eða Stefáns) í síðasta eða þar síðasta ísalp riti. Man ekki lengur hvort, enda var ég bara krakki þegar þau komu út!

    in reply to: Blað/blöð í Axar/Pulsar frá Charlet #51038
    2806763069
    Member

    Þig vantar ekki bara ný blöð kallinn minn!

    Þú og Haukur ættuð að stofna stuðningsklúbb saman. Ótrúlegt að þið eigið GSM síma og notið internetið!

    in reply to: Gullna reglan #51007
    2806763069
    Member

    Í tilefni af því að menn hafa verið að ræða hér um fótbrot vegna frambrodda:
    Ég hef oft orðið vitni af því að íslenskir fjallamenn þramma upp jökla landsins með brodda á fótunum, án þess að aðstæður á yfirborði gefi tilefni til. Auðvitað eiga menn þá á hættu að það sem rætt er um hér að ofan geti gerst ef svo óheppilega fer að einhver fellur í sprungu.

    Broddarnir geta auðveldað mönnum að komast upp úr sprungunni og að stoppa félagann. Ég held hinsvegar að þetta sé ekki þess virði nema landslagið sé bratt og fáir séu saman í línu.

    Það sama á reyndar við í almennri fjallamennsku, t.d. ef viðkomandi lendir í snjóflóði eins og mér skilst að hafa komið fyrir Palla um árið í Skarðsheiðinni.

    in reply to: Gullna reglan #51003
    2806763069
    Member

    Takk fyrir þetta Örlygur. Ég held að það sé óthætt að segja að þetta sé lang besta viðtalið sem ég hef gefið. Man reyndar ekkert eftir þessu en ég hef greinilega verið þroskaðari á þessum tíma en nú á síðari árum.
    Hljómar kannski eins og sjálfshól en þetta segir allt sem segja þarf og ætti að vera aðgengilegt til útskýringa á vef klúbbsins.
    (reyndar byggir þetta líklega mest á því að blaðamaðurinn hefur verið góður).

    Reyndar er þetta með að ef maður er ekki að detta er maður ekki að reyna komið frá sportklifurferlinum. Ég hef að mestu haldið mig við hina gullnu reglu ísklifursins. Nema bara þegar línan hefur komið að ofan eða ekki verið til staðar. Treysti enganvegin þessum skrúfum og samvæmt minni tölfræði heldur bara 1 af hverjum 4 klettatryggingum.

    Góða skemmtun í vetur!

    in reply to: Gullna reglan #50996
    2806763069
    Member

    Ef maður er ekki að detta er maður ekki að reyna!

    in reply to: Axir #51012
    2806763069
    Member

    Held að þessi sé svona meira hugsuð sem þrðja tólið. Mig fýsir amk ekki mikið að klifra mikið með svona græju.

    in reply to: Glaumur og gleði í Glymsgili #50977
    2806763069
    Member

    Ekki sár, gleymdi þér bara aðeins. Þú ert ekki heldur gamall!

    in reply to: Loksins ástæða til að fara í sund #50957
    2806763069
    Member

    Við Viðar vorum ekki alveg að finna okkur innst inni í gilinu. Það vantaði svo sem ekki ísinn. Reyndar allt blómkál með mjúkum kjarna. Fyrir þá sem eru heitir fyrir að krossa við Glym eða einhverja að hinum leiðunum þarna innst er allt í aðstæðum og allt ætti að vera í auðveldari kanntinum.

    Viðar og ég létum okkur hinsvegar nægja eina stutta leið í minni gilsins og þar með er þetta season búið fyrir mig. Stutt gaman en mjög skemmtilegt! Vona bara að veturinn haldi áfram fyrir ykkur hin.

    in reply to: Leiðangurssjóður #50960
    2806763069
    Member

    Ekki það að Jökull og Haraldur séu ekki kempur, þeir eru bara ekki gamlir!

    in reply to: Leiðangurssjóður #50959
    2806763069
    Member

    Þetta eru ákaflega góðar fréttir. Vonandi verður þetta til þess að ungir klifrarar leggja land undir fót og koma heim með skemmtilegar myndasýningar og sögur sem veita öðrum innblástur.

    Hvaða upphæðir er annars verið að tala um? Bara svona af því að ég er forvitinn!

    Ég hefði reyndar haft gaman af að sjá einhverjar gamlar kempur í stjórn svona sjóðs en skil vel tenginguna við Cintamani.

    in reply to: Hakkarar hrella #50936
    2806763069
    Member

    Ingvar kom þarna með einn af betri bröndurunum sem ég hef heyrt lengi.

    Annars nægur ís í Glymsgili. Sá reyndar aðeins fremsta hlutann. Námskeiði Ísalp og ÍFLM lokið með 7 nemendum og tveimur leiðbeinendum. Fór vel fram og fæstir voru mjög blóðugir í lokinn.

    Ólalaustu ungstirnin og fréttagellann fóru eitthvað lengra inn í gilið og eru þar enn eftir því sem ég best veit. Sá eini þeirra sem sneri aftur vildi meina að það væri eitthvað lítill ís austan megin í gilinu (einmitt þeim megin sem þau voru að klifra)(reyndar sá sami og átti hérna bling, bling, sing, sing, textann að ofan).

    Þvílíkur m.f. vetur!

    in reply to: Eyjafjöll í þokkalegum aðstæðum #50911
    2806763069
    Member

    Ók framhjá í dag og fannst reyndar ekki vera mjög mikill ís á svæðinu. Líklega væri samt hægt að klifra Paradísarheimtina.

    Fórum annars langleiðina á Eyjafjallajökul. Gátum skíðað niður í bíl en skíðinn fara víst í bekkinn hjá Útilíf eftir þessa ferð!

    in reply to: Var að berast – toppísklifrarar á leiðinni #50906
    2806763069
    Member

    Sounds like a job for Robbi ?!?! And Glacier Bergmann could most likely show them the North side of the island! Just becaus no one else is writing any thing!

    (just call him Robin, like Batmans litle helper! jipers creepers!)

    in reply to: Púður og snjóflóðahætta #50902
    2806763069
    Member

    Get tekið undir þetta með síðasta ræðumanni. Við Viðar vorum að koma úr Grafarfossinum. Ísaðstæður eru eins og best verður á kosið. Hinsvegar hefur hið sjaldgæfa púður nú fokið til og myndað væna fleka í öllum giljum. Það er því full ástæða til að fara að öllu með gát. En þar sem ekki er mikill snjór ætti að vera nokkuð auðveld að velja snjólausar/litlar leiðir upp og niður. Gleymið samt ekki að þunnir flekar bresta frekar en þykkir.

    Mæli með því að síga t.d. niður út leiðunum í Villingardal til að losna við hættulegustu snjóflóðabrekkurnar.

    Samt engin ástæða til að sitja heima, bara að kveikja á hausnum og passa að batteríin í ýlinum séu í lagi. Hann er svo eins og Árni bendir á frekar léleg fjárfesting ef ekki er til staðar kunnátta, skófla og stöng.

    Kv.
    Softarinn

    in reply to: Var að berast … hvar er Gummi #50876
    2806763069
    Member

    Úbbs, ætli maður eigi orðið lítinn frænda eða frænku??

    Hljómar pínulítið eins og hún Sigurlín Eydal þarna um árið!

    En það er líklegra að hann sé spánverji en að hann sé stór, ekki satt?

    Djöfulinn ertu búinn að gera núna strákur !!!!

    in reply to: Skíði og skór #50858
    2806763069
    Member
    in reply to: Skíði og skór #50854
    2806763069
    Member

    Já, ég er ekki með skíði á fótunum dags daglega eins og sumir!

    in reply to: Vefurinn #50848
    2806763069
    Member

    Mér finnst þetta bara mjög viðeigandi. Auðvitað á að leggja vef Ísalp.is niður þegar veðrið er svona. Gleðileg jól.

    in reply to: tilkynningarskyldan! -aðstæður #50836
    2806763069
    Member

    Horfðu á myndina Gummi. Þetta eru bara nokkur stutt höft tengd saman með ekki svo bröttum ís, sem verður mjúkur þar sem hann er þakinn snjó. Þið farið létt með þetta! Ef þið eruð ekki búnir að því.

    Annars sýnis fossinn hafa styðst eitthvað, eða er það viðmiðið sem er eitthvað bjagað?

Viewing 25 posts - 276 through 300 (of 528 total)