Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
Gummi St
ParticipantHehe góður Rúnar!
Annars er bara að mæta á basarinn 12. okt, ísskrúfur hafa oft verið til sölu á búnaðarbasar
Gummi St
ParticipantÉg á BD Fusion par ef þú hefur áhuga á svoleiðis
Gummi St
ParticipantÞetta er almennilegt, flott video og snilld að geta enn skíðað!
Gummi St
ParticipantHér er önnur fyrirspurn sem mér barst:
Hi,
I’m Jacopo from Italy and I’m looking for someone to climb the
Snaefellsjokull in the days between the 2nd and the 6th of August.
If somenone is interested in join the excursion he can contact me at
jacopo.zezza@gmail.comSá vildi einnig komast í klettaklifur ef hann fengi einhvern með sér.
-GFJ
Gummi St
ParticipantFyrir þá sem hafa áhuga að þá eru komnar myndir og nýtt Video úr ferðinni inná http://www.climbing.is
Gummi St
ParticipantEkki þegar ég er í bláa beltinu sem þú heldur svo mikið uppá
Gummi St
ParticipantSissi, eigum við ekki bara að athuga hvort Þilið nái ekki niður?
Gummi St
ParticipantGott að ekki fór verr og ég tek ofanaf fyrir ykkur að segja bara vel frá því annara til áminningar.
Það eru til margar misgáfulegar sögur af svaðilförum sem aldrei hafa verið opinberaðar vegna hræðslu við gagnrýni og ég er alltaf ánægður með þegar menn segja bara rétt frá því sem fór úrskeiðis sjálfum sér og annara til áminningar og ýtrekunar að fara varlega.Gangi ykkur vel og endilega farið sem fyrst að klifra aftur til að losna við “skrekkinn”. Það hægði mikið á mér þegar ég tók leiðsluflugið í glymsgili hér um árið en það bjargaði miklu að ég fór fljótlega aftur að klifra.
Gummi St
ParticipantGóð ábending Bjöggi, en þetta var trúlegast aðstandandi annars þeirra sem póstaði þessu á aðra síðu sem ég ætla ekki að nefna hér en síðasti stafurinn er acebook…
-GFJ
Gummi St
Participantlas á annari vefsíðu að þeir hafi toppað Denali
“Þeir toppuðu 6.194 metrar (20.320 fet) í gær kl. 15 í snjókomu og kulda.
Gistu í 17.200 fetum (High Camp) í nótt og ætla í 14.200 í dag.
Þeir biðja að heilsa öllum.”Gummi St
ParticipantHæbb
Varðandi ljósmyndakeppnina að þá fannst okkur ekki nógu gott að halda hana þegar fólk er í sitthvorum salnum en við stefnum á að hafa hana síðar á árinu, ásamt meiru svipuðu góðgæti!
Sendum út fréttatilkynningu bráðlega þess efnis, en okkar kraftar hafa farið í BANFF síðustu misseri og ákváðum við að bíða með að skipuleggja keppnina þangað til hátíðin er búin.-GFJ
Gummi St
ParticipantSæll,
Það er ekki snjór fyrren komið er dáldið uppfyrir Arnarstapann á jökulhálsveginum sýndist mér og því ekki hægt að renna sér niður að þjóðveg. Sést kannski best á myndinni þar sem jökullinn er á bak við Adda hversu stutt snjórinn nær niður.
-GFJ
Gummi St
ParticipantGaman að heyra af þessu Bergur, ég hef lengi ætlað að fara þarna upp einhverja lænuna á Lambatind, hlakka til að sjá myndir og ekki væri verra ef þið eigið “yfirlits” mynd sem sýnir leiðina.
Gummi St
ParticipantJább,
Eins og sést á dagskránni hér vinstra megin er þetta í kvöld kl. 20 !
-GFJ
Gummi St
Participantfyrir áhugasama að þá eru komnar myndir inná http://www.climbing.is úr Tindaborgarferðinni um helgina
-GFJ
Gummi St
ParticipantSpennandi, hvet menn til að fjölmenna á þetta!
Gummi St
ParticipantJá það eru flottar aðstæður
Á myndinni sést útsýnið af Tindaborginni á Hnúkinn í gær
Gummi St
ParticipantGaman að sjá þetta, hann er einnig kominn með http://icelandkiteexperience.com/
Eru ekki einhverjir hérna sem hafa dundað við þetta sport?
Gummi St
Participantúfff, sá var heppinn að sleppa svona vel. Skil samt ekki hvernig honum datt í huga að hanga bara í fetlinum á annari exinni eins og hann segir í videoinu. Annars ágætis punktar frá Gadd.
Gummi St
ParticipantÉg setti nokkrar svellkaldar myndir síðan í gær í grein efst á síðunni.
-GFJ
Gummi St
ParticipantÞað eru líka einhverjar myndir frá síðustu helgi þegar við klifum Rísanda á http://climbing.is/lesa_frett.php?id=164
Gummi St
ParticipantFrábært, ég setti inn nokkrar myndir af aðstæðum eftir bíltúr í kvöld í fréttagrein efst á forsíðunni fyrir forvitna.
Muna svo bara að eiga örlitla orku fyrir partýið eftir klifrið!
-GFJ
Gummi St
ParticipantTil upplýsinga:
Við höfum verið að liggja yfir veðurkortunum en það eru bölvuð lægðarkerfi að þvælast yfir landinu svo það er erfitt að segja til um veðrið fram í tímann.
Hinsvegar viljum við stefna á það að fara um helgina, hvort sem það verður dagsferð eða gistiferð einhvert í seilingarfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu, hugmyndirnar eru að ef slæmt veður er á sunnudag að halda bara góðan klifurdag hér í nágrenninu og enda í félagsheimilinu og eiga góða stund þar. Annars er hægt að fara lengra og taka 2 klifurdaga.Ekki er hægt að siga fjöldanum alla leið á Bíldudal með svona örstuttum fyrirvara svo það getur verið gott að eiga það inni á næsta ári.
Í núverandi spá gerir einnig ráð fyrir hlýindum eftir helgina og þá má guð vita hvort hægt sé að berja ís eitthvað meira á láglendinu í vor.
mbkv,
StjórninGummi St
ParticipantTakk fyrir þetta Freysi, við erum nokkrir að spá í að kíkja í ísbíltúr á morgun.
kv. Gummi St.
Gummi St
ParticipantVery næz!
Flott video, gaman að sjá þetta þegar maður er búinn að hugsa lengi um að fara þarna upp.
mbkv,
Gummi St. -
AuthorPosts