Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
2802693959Member
Gott til þess að hugsa að skriður sé komin á þetta mál. Þakka mínum sæla fyrir að skálinn sé enn í eigu klúbbsins og þar hafi fundist menn framkvæmda.
Hefði gaman af að leggja hönd á plóg ef einhver finnst starfinn.
kv, Jón Gauti
P.s. hvar skildi endurbygging skálans fara fram?2802693959MemberTil hamingju Ingvar með glæsilega frumraun á fjallamyndasviðinu. Tek undir með þeim sem segja myndina hafa verið betri en margt annað sem var í boði á Banff. Greinilega fagmaður til klifurs og kvikmyndunar. Ekki sjálfgefið að klifra fjallið (þótt það virðist allt að því teppalagt upp á topp) og taka myndir á þrjár kamerur.
Skora á þá sem ekki áttu heimagengt í gær og fyrradag að kíkja á aukasýningu í kvöld.
Jette kul
Jón Gauti2802693959MemberMetnaðarfullt og glæsilegt. Til hamingju með afrekið.
Jón Gauti2802693959MemberSýningin hefst klukkan 20.
kv, Jón Gauti2802693959MemberGekk á Þverfellshorn síðastliðinn laugardag í fylgd Leifs Arnar og Guðjóns Marteins. Náðum ágætri siglingu upp hornið og gátum ekki stoppað með góðu móti fyrr en halla fór undan að norðanverðu. Gengum vanmáttugir undir Þilið sem virtist í feitum aðstæðum – amk. betri en er við fórum það um árið- og Tjaldsúlurnar voru vel kleifar, nema kannski helst sú lengst til vinstri. Með aðeins nokkrar ísskrúfur upp á vasann varð Einfarinn fyrir valinu… og hann hefði næstum mátt skíða niður með vel brýnda kannta. Frábær dagur og engan annan að sjá … svo trúlega vorum við þeir sem til sást (sjá ofar)! Alltaf gaman að klifra fyrir áhorfendur þótt ljóst sé að þeir hafi flykkst um aðra um nýliðna helgi.
Allavega… hér eru aðstæður úr nokkru návígi úr Eilífsdal laugardaginn 5. jan.
http://picasaweb.google.com/jongauti/VerfellshornEilFsdalur
kv, jgj2802693959MemberTil hamingju Leifur ef satt reynist…
Í tilkynningu frá leiðangrinum er talað í fleirtölu um leiðangursmenn en ekki um Leif sjálfan. Þótt ég efist ekki eitt augnablik og viti vel að hann hefur báða fætur jafn langa! þá bíð ég enn eftir stóru fréttunum… fór hann með eða án súrefnis á tindinn. Hafi hann sleppt því held ég að það sé í fyrsta skipti sem Íslendingur fer yfir 8000 metra án súrefnis.
Það kemur þó væntanlega betur í ljós í kvöld eða á morgun þegar hópurinn er kominn í Efri Grunnbúðir (EGB).
Sjá http://www.utivera.is/frettir/nr/1067
Kveðja,
Jón Gauti
p.s. minni áhugasama á viðtal við kappann í nýjasta tbl. Útiveru en þar er m.a. komið inn á fetisman í háu fjöllin.2802693959MemberTja… við Útiverumenn keyptum hugmyndina á fyrstu stigum og viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma upplýsingum um Höfðingjann til skila. Það er hins vegar ekki fyrr en á síðustu vikum sem Hátindahöfðinginn og hundrað tindaverkefnið hefur náð eyrum fólks. Undir þetta vorum við hins vegar búnir. Undirsíða á vef Útiveru um Hátindahöfðingjann er þegar í smíðum en þangað til segjum við fréttir af ferðum hans á vefnum. Stefnan er svo að fylgjast með og blogga í beinni á síðunni hans í hverri ferð. Á síðunni verður líka myndasafn.
Áfram Olli
Kveðja, Jón Gauti2802693959MemberLangar að minna Guðlaug að senda mér myndina af Herdísi svo ég geti skvísað henni og mynd Gumma í næsta tbl Útiveru … á meðan fréttin er heit;-)
Vinsamlega sendu á jongauti@fjolvi.isTakk, jgj
2802693959MemberJá, það eru víst örlög mín að vera bara efnilegur. Það væri nú strax til bóta ef ég yrði efnalegur!
Þakka sömuleiðis mikið fyrir mig … skemmtilegt mót í alla staði.2802693959MemberSetti nokkrar hráar myndir inn með frétt um helgina á vef Útiveru http://www.utivera.is.
Öll aðstoð við að nafngreina þá keppendur er vel þegin.
Vinsamlega sendi elínu á jongauti@utivera.is
Til stendur að segja frá helginni í stuttu máli og myndum í næsta tbl. og því þætti mér vænt um að fá að sjá góðar myndir hjá þeim sem þær tóku.
Sérstaklega vantar mig myndir úr stökkkeppninni á föstudaginn og svo frá fjallabruninu sem Skúli vann svo eftirmynnilega. Held það hafi einmitt verið Skúli sem sagði við mig klukkan 12.30… “Þetta verður blásið af!” Hann verður því að efast í eitt ár um hvað hefði getað gerst ef…
jgj2802693959MemberHeyrði í Skúla Magg sem bað fyrir kveðju úr Hlíðarfjalli nú í hádeginu þar sem hann sagði s.k. púðurmaníu ríkja á meðal gesta fjallsins. Brettastrákar væru áberandi en vonandi myndu þeir skilja eitthvað eftir fyrir langþreytta sunnlenska telemarkara.
Sjáumst um helgina.
kv,jgj2802693959MemberHef löngum mænt upp í þetta gil á ferð um svæðið. Nú síðasta í dag á leið ofan af Langjökli, þar sem nótebene var blankalogn í dag … já! Útivera er í prentun.
kv,jgj2802693959MemberGlæsilegur árangur drengir. … óska hér með eftir einkaviðtali í Útiveru fyrir… janúarblaðið.
kv,jgj2802693959MemberVið Leifur Örn létum ekki þessar fádæma góðu ísaaðstæður fram hjá okkur fara en héldum okkur sólarmegin og hlémegin (það var logn) fjalla. Fórum í Grafarfossinn og bjuggumst við fjölmenni enda frost nægt. Ólíkt því sem áður var (þetta er eins og með Stardalinn forðum) þá kom engin í Grafarfoss þennan fallega dag. Nægur ís í “orginalinum” og nokkrum afbrigðum “direktsins”… og það batnar bara ef marka má kuldan í kortunum.
Þarna var vissulega kallt í skugga en algert logn og svo kom sólin um miðjan foss og þá var gaman að lifa.
Góð byrjun á mjög svo lofandi vetri.2802693959MemberSælir
Má til með að plögga smá í þessu samhengi!
Útivera í samvinnu við ÍFLM stendur fyrir heljarmikilli myndasýningu, frá a.m.k. sex nýlegum ferðum Íslendinga (flestra félaga í ÍSALP) á erlend fjallasvæði í sumar og haust, þann 29. nóvember næstkomandi.
Herlegheitin verða í stóra salnum á Hótel Nordica og hefjast klukkan 19.30 og standa til kl. 23.00.
Þetta verður allt kynnt nánar í næsta tölublaði Útiveru sem kemur út 20. nóvember næstkomandi.Já… ef þið eigið ísalptengtefni sem á erindi á síður Útiveru … þá hikið ekki við að senda mér línu.
Kv, Jón Gauti jongauti@utivera.is2802693959MemberFrábær ganga og útifundur í gær. Vonandi til marks um aukna meðvitund þjóðarinnar í náttúruverndarmálum.
Tek það fram að ég óska þess að Alpaklúbburinn taki afstöðu í þessum málum en láti ekki nægja að vera bara hluti af ákvörðun Samút …hvenær sem hún kemur eða hvort af henni verður yfir höfuð. Ef félagsmenn Alpaklúbbsins geta fylgt sér um stefnu Samút því þá ekki í eigin nafni? Er þetta ekki borðleggjandi samhengi hlutana… náttúra og útivist? Hvort öðru háð og þótt vissulega verði að vega og meta hvert tilvik fyrir sig þá ætla ég að Kárahnúkavirkjun, Þjórsárver, Fjallabak og fleira séu borðleggjandi dæmi í hugum félagsmanna Alpaklúbbsins… eller hur?
Ég myndi glaður borga félagsgjöld þessa árs ef ég vissi að klúbburinn stæði vörð um hagsmuni mína sem félagsmans í þessu tilliti.
kv,
Jón Gauti2802693959MemberÞetta er ágæt og falleg hugsjón hjá Kalla
Styður þetta ekki ágætlega hvort annað? Útivera mun aldrei slökkva fjallþorsta sófaklifrandi Ísalpara en gæti stytt þeim stundir. Efni Útiveru nær athygli fólks sem nefna mætti jaðarhóp Ísalp og gæti kveikt þar neista sem síðar verður að báli í félagsstarfinu.
Útivera vill gjarnan geta frumheimilda…Bestu kveðjur,
Jón Gauti2802693959MemberÉg veit af þessu! Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hef þessi áhrif á félagsstarf. Það koðnar bara einhvernvegin allur félagsandi niður þegar ég hef upp raust mína, mæti á svæðið eða hef mig í frammi!
Sannleikur málsins er samt sá að þetta skilaði árangri… merkilegt nokk þrátt fyrir lífleysið hér! Þið getið lesið allt um það í næsta tbl. Útiveru… þar er þó líf.Bestu kveðjur, Jón Gauti
Já og takk fyrir allar ábendingarnar sem ég fékk símleiðis.
2802693959MemberNýkominn frá Slóveníu þar sem ég var meðal annars á umræddu svæði við lake Bohinj en mest þó í svokölluðum Kamnisko – Savinjske Ölpunum sem liggja fast við landamæri Austurríkis. Óhætt að fullyrða að þessi ferð hafi opnað mér nýja sýn á alpana og ótæmandi möguleika sem bjóðast í Slóveníu, enda eru Slóvenar augljóslega mikið útivistarfólk. Óhætt að mæla með fjallgöngu (170 fjallakofar með fullri þjónustu fram í okt), klifri, hellaskoðun (yfir 8.000 kalksteinshellar) og rafting (prófaði reyndar ekki). Hæsta fjall Slóveníu er Triglav (Þríhöfði), sérlega glæsilegt úr fjarska og ku státa sig af þriðja hæsta norðurfésinu í Ölpunum!!! (sjá grein um göngu á Triglav í 3. tbl. Útiveru 2005).
Svo er verðlag sérlega þægilegt, á að giska þriðjungur af kostnaði á Ísl. Verð án efa með grein um ferðina í fyrsta eða öðru tölublaði Útiveru á næsta ári.
kv, Jón Gauti2802693959MemberÚtivera þakkar skipuleggjendum Telemarkmótsins samstarfið og sigurvegurum árangurinn.
Bendi áhugasömum á nokkrar myndir sem Jón Haukur tók (augljóslega allar nema eina) á heimasíðu Útiveru http://www.utivera.is.
Mæti að ári með sænskan stíl sem þykir líklegur er til sigurs.
Jón Gauti2802693959MemberSvo er hægt að fara millileiðina kaupa á vefnum hérlendis hjá þeim sem gera góð kaup erlendis. Viðurkenni vel að harðvöruúrvalið hjá http://www.utivera.is/verslun er ekki mikið og verður það sjálfsagt ekki, enda ekki stefna Útiveru að fara í samkeppni við útivistarvöruverslanir, nema þar sem skóin kreppir. Með beinum innflutningi á bókum og engri yfirbyggingu má ná verðum niður fyrir það sem hver og einn gæti fengið bækurnar pantaði hann sjálfur með öllum þeim prósentuálögum sem slíkum innflutningi fylgir. Jólagjöf útivistarmannsins er lesefni.
Jón Gauti…með heimþrá og á heimleið eftir viku…en þá verður sjálfsagt farið að vora!
2802693959MemberÞarna er Árni kominn að kjarna málsins, fjallamenn eru hestamenn. Það er nefnilega líkt komið á með fjallamönnum undan V-Eyjafjöllum og Fjallamönnunum þeim sem Ívar telur sig samboðinn þ.e. félögum Guðmundar frá Miðdal í Fjallamannafélaginu, að þeir voru eins og Árni bendir réttilega á hestamenn. Þungir leiðangrar með allt til alls til að dvelja í nokkrar vikur ef því var að skipta. Ekta hardcore!
Svo virðist því sem búið hafi verið að úthluta einkaleyfinu á notkun orðsins. Hlakka til að heyra nýja skilgreiningu þína Ívar á fjallamönnum með axir en engin hross. Reyndar er gott til þess að vita að grasmótorar falla innan þröngrar skilgreiningar þinnar Ívar…ég á þá enn möguleika.
kv, JGJ2802693959MemberVil nota tækifærið og þakka umsjónarmönnum kærlega fyrir mig og mína. Þetta var mín fyrsta reynsla af annars umtöluðu telemarkfestivali og olli það litlum vonbrigðum nema síður sé enda fór allt saman, góður félagsskapur og frábært veður…í það minnsta á sunnlenskan mælikvarða. En af því að ég hef tilhneygingu til neikvæðni og er orðlagður tuðari þá langar mig að geta þess að ég sé ekkert eftir þeim hæðarmetrum sem ég gekk á Kaldbak á laugardeginum. Þvert á móti held ég að ganga á fallegt fjall og skíðaleiðin niður væri vel til fundinn til að hrista saman hópinn í upphafi móts. Eftir fjallið eru allir endurnærðir á sál og líkama! og minni líkur á að einhverjum leiðist hangsið við horfa á…eða smíða stökkpalla.
Kveðja, Prúðmennið með stafinn eina (lánaði hinn…glætan!) Jón Gauti2802693959MemberÍ gegnum aldirnar hafa Öræfingar haft lag á að styggja fáa og fara með góðu! Klettaspírurnar á Hafrafelli bera vitni um það. Framar (sunnar) og lægra standa Fremrimenn en ofar og norðar standa Efrimenn. Þannig var á engann hallað í nafngiftum. Klettaspíran sem er oftast klifinn er hluti Fremrimanna.
2802693959MemberVei þeim því þeir vita ekki hvað þeir gjöra!
Yfirlýsing frá róttækum armi boltadeildar ÍSALP:
Ég undirritaður, siðferðisfulltrúi boltadeildar ÍSALP, verð á staðnum og mun láta einskis ófreystað til að knekkja á jafnt gömlum og gegnum sem ungum og óstýrlátum félögum klúbbsins. Og ef ég þekki ábuendur í Stardalshnúknum þá munu borvélar ávalt snúast rangsælis, riðstraumur breytast í jafnstraum…eða var það öfugt? og batterí og hverskonar rafurmagns generatorar verða undir skæðadrífu lausagrjóts…já gætið ykkar plastklifrarar því enn finnst einn og einn laus steinn á ótryggum brúnum hnúksins.
Óska hér með eftir slagorðum hins róttæka arms:Góða ferð í dalinn
-
AuthorPosts